Heimilisritið - 01.01.1955, Page 12

Heimilisritið - 01.01.1955, Page 12
svarta þoka. Það er ótrúlegt, að nokkur skuli vera á ferð í þessu, en þér eruð ef til vill neyddur til þess “ „Hefði ég verið staddur á að- alþjóðveginum, hefði ég leitað hælis í næstu krá — ég heiti Curtis Flanagan.“ Hann rétti fram höndina — og svo kom honum í hug, að maðurinn í stólnum gæti ekki séð hann. „Ég heiti Ross, Jed Ross,“ kynnti blindi maðurinn sig og rétti fram höndina. Flanagan tók í hana. „Og þetta er frænka mín, Judy Ross — hún annast mig núna, meðan ráðskonan mín er í orlofi. Hún vonast til að erfa mig.“ Hann hló, og Flanagan hló með, jafnframt því að hann sendi ungu stúlkunni aðdáunar- augnaráð. Hún fór út og kom að vörmu spori aftur með vínflösku og glös á bakka. Hún skenkti í glös- in. „Réttu mér glasið, barnið mitt,“ sagði Ross. Judy fékk honum glasið upp í höndina. „Ætlið þér ekki að fá yður eitthvað sjálf, ungfrú Ross?“ spurði Flanagan. „Nei takk.“ „Fáðu þér bara glas með, ég er viss um, að Flanagan hefur ánægju af félagsskap þínum. Mér er ánægja að heimsókn yð- ar — það er dálítið dauflegt hérna, og fólk má ekki vera að því að sinna blindingjum eins og mér.“ Ross lyfti glasinu. „Judy,“ sagði hann, „Þarf ekki að bæta á arininn? Mér finnst ekki vel heitt.“ Judy ætlaði að ganga að arn- inum, en Flanagan varð fyrri til. „Þetta er karlmannsverk,“ sagði hann rólega og skaraði í glæðurnar með skörungnum. Ofurlítill glóandi kolamoli hrökk fram úr arninum. Flana- gan fylgdi honum með augun- um, greip 1 snatri kolaskófluna og tók hann upp. „Ég vona, að gólfteppið hafi ekki skemmzt,“ sagði hann. í sama bili mætti hann augnatil- liti Judy og honum flaug nokk- uð í hug. Þegar hann hafði lok- ið við að moka kolum á arininn, sagði hann: „Ég yrði þakklátur, ef ég gæti fengið bensín — ég verð að halda áfram, áður en dimmir. Næturakstur í þessari þoku er ekki skemmtilegur.“ „Eigum við nokkurt bensín úti í skúrnum — á brúsa, Judy?“ spurði Ross. „Já, það held ég.“ „Láttu Flanagan fá lykilinn, svo hann geti sjálfur náð í það. 10 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.