Heimilisritið - 01.01.1955, Blaðsíða 31
hin gula riddaraþjóð hans aftur
til heimalanda sinna í Asíu.
Aétius fylgdi á eftir honum í
gröfina. Þessir voldugu menn
hurfu næstum samtímis af sjón-
arsviðinu. Þegar hermeistarinn
gekk fyrir Valentinian eftir her-
förina, fann hann keisarann
liggjandi á gylltum legubekk,
umkringdan ambáttum, tömd-
um dýrum, reykelsisberum og
hljóðfæraleikurum. Aétius rak
allt hyskið út og ætlaði að gefa
keisaranum skýrslu um undan-
hald Attila, en Valentinian leit
fýlulega á hann, og bauð honum
sæti beint á móti sér, og allt í
einu, eins og höggormur, brá
hann rýting undan rauðri skikkj-
unni og rak hann á kaf í háls
Aétiusi.
„Hérna! Þú, sem vildir svipta
keisarann frægð hans!“ æpti
hann.
Þannig dó Aétius, sem frelsaði
Evrópu frá þrældómi Asíu. Ári
síðar var Valentinian sjálfur
drepinn, og tuttugu árum seinna
féll Vestur-rómverska ríkið end-
anlega. *
Það sem karlmönnum mislíkar
„Smámunir“ í augum kvenna eru oft verstu yfirsjónir í augum kar?-
manna. Ástin nærist á töfrum. Sú kona, sem gleymir þessu grundvallar-
atriði, býður hjónabandsóhamingjunni heim.
Engum manni fellur í geð að sjá konu sína ógreidda. Tilfinninga-
næmum mönnum verður óþolandi að búa við hirðuleysi í fari kvenna.
Meðan á tilhugalífinu stendur, hefur konan ýtrustu gát á öllu útliti
sínu. Eftir giftinguna er oftast slakað á kröfunum. Konan ætti að líta
á hjónabandið sem stöðuga trúlofun.
Karlmönnum mislíkar við konur, sem reyna að hnýsast í einkamál
þeirra. Gætið ykkar fyrir þeirri freistingu! Það er merki um vantraust
af ykkar hálfu, að leita í vösum manna ykkar og lesa bréf hans.
Það er ódrenglegt að láta hann bíða. Margar konur hafa það fyrir
fasta reglu, að láta bíða eftir sér.
Manni þínum eða unnusta fellur ekki vel við þig, ef hann finnur,
að þú eyðir eins miklu af peningum hans og þú getur. Elamingjusamt
hjónaband getur ekki byggzt á því, að annar gefi en hinn þiggi.
Of mikil athygli, sem beinist að öðrum en fylgdarmanni þínum,
er líkleg til að erta hann — það særir sjálfsálit hans.
Af hverju þarf kvenmaður að púðra sig og mála við hvert tækifæri?
Konan ætti að búa sig í einrúmi. Það dregur úr yndisþokka konunnar,
að vera sífellt að veifa púðurkvastanum á almannafæri.
(Current Physology)
JANÚAR, 1955
29