Heimilisritið - 01.01.1955, Blaðsíða 42
ÞRÍR INNFÆDDIR
Allir lialda að þeir þekki sannleik-
ann, þegar þeir sjá hann . . . og þekki
lygina, þegar þeir heyra hana. Hér er
próf á hæfni þína til að finna, hver seg-
ir satt.
Á eyju einni í Kyrrahafi búa kyn-
hreinir menn og kynblendingar. Þeir cru
eins, að öðru leyti en þessu eina: Kyn-
hlendingarnir ljúga ætíð, en þeir kyn-
hreinu segja ætíð satt.
Setjum svo að þú værir trúboði og
gengir eftir fjörunni einn góðan veður-
dag. Þú mætir þremur íbúum og spyrð
þá, hvort þeir séu kynblendingar eða
kynhreinir.
Sá fyrsti muldrar eitthvað, sem þú
heyrir ekki. Annar bendir á þann fyrsta
og segir: „Hann segist vera kyn-
hreinn.“ Sá þriðji bendir á nr. 2 og seg-
ir: „Hann lýgur."
Nú er aðeins einn af þessum kyn-
blendjngur. Getur þú fundið, hver
þeirra það er?
REYKNUM AÐ BRÁÐ
„Illt skal illum!“ Með þessum kulda-
legu orðum arfleiddi maður nokkur
einkason sinn að vindlakassa miklum.
Sonurinn reykti einn vindi! fyrsta
daginn og gaf tólfta hlutann af því, sem
þá var eftir í kassanum.
Næsta dag reykti hann tvo og gaf
aftur tólfta hluta af því, sem þá var
eftir. Og þannig áfram, jók við sig ein-
um vindli á dag, og gaf burtu tólfta
hluta af afganginum, þar til (eftir
minna en mánuð) allir voru búnir.
Hve niargir voru vindlarnir, og hve
marga reykti hann?
TENINGARNIR
Nokkur böm áttu teninga, alla með
jöfnum hliðum. Þau náðu í dálítið af
blákrít, og með þessum litum ætluðu
þau að mála alla fletina, hvem með að-
eins öðrum litnum. Nú var um að gera
að búa til cins marga mismunandi ten-
inga og hægt var, með þessum tveimur
litum.
Með hversu mörgu mismunandi móti
var hægt að lita fletána?
SMÁPENINGAR
„Þegar ég kom á stöðina í morgun,“
sagði Siggi, ,,þá uppgötvaði ég, að ég
hafði gleymt veskinu heima og hafði
aðeins smápeninga á mér. Nákvæmlega
helmingur af því fór fyrir farmiða, og
svo keypti ég blað fyrir 15 aura. Svo
eyddi ég helmingnum af afganginum
fyrir bíl og keypti síðan sígarettur fyr-
ir 2 kr. Og nú hef ég nákvæmlega 10
aur'a eftir. En hve mikið hafði ég, þeg-
ar ég fór að heiman?"
(Svör á bls. 22)
40
HEIMILISRITIÐ