Heimilisritið - 01.01.1955, Page 15

Heimilisritið - 01.01.1955, Page 15
þama? Ungfrú Róss sá það einn- ig, og ég tók eftir óttanum í aug- um hennar — þá skildi ég, að ekki var allt með felldu.“ „Ágætt,“ sagði Murdoch. „Ef þér viljið, getið þér vel fengið bensín hjá mér. Við höfum brúsa úti í bílnum — og þér getið ek- ið á eftir okkur, við höfum sér- stök þokuljós á bílnum.“ „Langar yður ekki að borða með okkur kvöldverð, Flana- gan?“ spurði Judy. „Gjarnan,“ svaraði Flanagan og mætti augnatilliti hennar í þriðja sinn. „Verið þið þá sæl, og góða semmtun,“ sagði Murdoch bros- andi og gekk út í bílinn. # Samtök E£ mér vcittist tækifæri til að ávarpa Sameinuðu þjóðirnar, myndi ég blátt áfram segja frá atviki, sem gerðist á yngri árum mínum í Massa- chusetts. Morgun einn stanzaði strætisvagninn, sem ég var í. Stór hest- vagn með þungu æki stóð fastur á miðjum veginum. Okumaðurinn öskraði og barði hestana fjóra af öllum kröftum, hestarnir streittust við, frísuðu, toguðu í, fyrst einn, síðan annar, en vagninn haggaðist ekki þumlung. Annar ökumaður var nú kominn á vettvang, og stóð nú rólegur og horfði á árangurslaust strit hestanna. „Spennið þessa fjóra hesta frá, og ég skal ná vagninum burt með hestunum mínum, þó að þeir séu ekki nema tveir,“ sagði hann í áskorunartón. Ökumaðurinn hló. „Hvað gemr þú gert, þegar mínir fjórir geta ekki dregið vagninn!" svaraði hann hæðnislega. „Mínir tveir skulu draga vagninn af stað,“ sagði hinn ömggur. „Látm það þá sýna sig, og gerðu það!“ kallaði bílstjóri strætis- vagnsins. Hestarnir fjórir vom nú leystir frá vagninum, og hinir tveir hest- arnir spenntir fyrir. Nýi ökumaðurinn tók lauslega í taumana, og sagði aðeins tvö orð í rólegum tón — „Samtaka nú." Hestamir svömðu með því að teygja fram makkana sem einn hest- ur og toguðu öldungis samtaka í hlassið. Við þmmandi fagnaðarlæti drógu þeir vagninn af brautinni, en ökumaðurinn brosti og sagði: „Tveir hestar eru allmiklu betri en fjórir, ef þeir em samtaka.“ — Philip /. Cleveland. JANÚAR, 1955 13

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.