Heimilisritið - 01.01.1955, Síða 17

Heimilisritið - 01.01.1955, Síða 17
Framhaldssaga, sem byrjaði í síðasta hefti. Nýi herragarðs- eigandinn Eftir Ruth Fleming Nýir lesendur geta byrjað hér: Sir Hamish Kinlock býr á skozk- um herragarði með Lindu dóttur sinni, sem er einkabarn og gjafvaxta stúlka. Þau lagaákvæði eru, að kon- ur mega ekki erfa herragarðinn, svo að ef Sir Hamish deyr, áður en Linda giftist og eignast son, fer eignin til einhvers fjarskylds frænda þeirra. En þenna dag hefur Sir Hamish séð svip látins forföður síns og telur það feigðarboða. Linda er nú á göngu úti á heiðinni og fer framhjá Carnforth-höllinni, en þar býr gamall leikbróðir hennar, óráðsíupilturinn Maurice. Það var Maurice Carnforth. Hann virtist vera taugaóstyrk- ur og sló svipuskaftinu sífellt við reiðstígvélin sín. „Bíddu augunablik, Linda!“ hrópaði hann, og hún nam stað- ar til að hlusta á erindi hans. Hann var snotur maður með svart, afturstrokið hár og dökk, eirðarleysisleg augu. Hið eina, sem ef til vill óprýddi andlit hans, var alltof nautnalegur munnur. Hann var einkasonur auðugra foreldra, og hann var sorglega spilltur af eftirlæti. Alla sína ævi hafði hann fengið allt, sem hann hafði bent á — og nú hafði hann fengið ágirnd á Lindu. Hann stökk glæsilega yfir hvítu hliðgrindurnar, kom til Lindu, og þau gengu samhliða eftir götutroðninunum. „Þú ert eitthvað svo fýluleg- ur á svipinn,“ sagði hún. „Er nokkuð að?“ „Bara sama sagan í fjölskyld- unni,“ svaraði hann og gretti sig. „Pabbi getur aldrei lært að JANÚAR, 1955 15

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.