Heimilisritið - 01.01.1955, Side 40

Heimilisritið - 01.01.1955, Side 40
En nú verðum við að hugsa um þig. Því fyrst þú ætlar þér að skilja, verðurðu að bera fram einhverja ástæðu, og hún hlýtur að vera sú, að hann hefur lagt hendur á þig!“ „Lagt hendur á mig?“ „Já, auðvitað. Sá nokkur, þeg- ar hann sló þig?“ „Æ, talaðu ekki eins og hún amma!“ sagði Beth gremjulega. „Sló og sló ekki . . . ég hef aldrei sagt, að hann hafi slegið mig. Hann hrinti mér . . . og af ásetn- ingi!“ „Það er sama hvort hann sló þig eða hrinti þér! En sá það nokkur?“ „Nei, -vitanlega sá okkur eng- inn. Við stóðum bæði 1 baðher- berginu. Rex var að raka sig og ég að mála mig. Við ætluðum nefnilega út í átveizlu. Okkur hafði verið boðið í hana löngu áður en allt þetta byrjaði. . . . Fyrst var allt í lagi; en svo ýtti hann mér til hliðar og vildi fá að nota spegilinn einn. Að lok- um var ekki eftir nema eitt lít- ið hom handa mér, svo að ég gat varla séð svo mikið sem aðra augabrúnina á mér. Og . . . já, svo tók hann bezta baðhandklæðið mitt og ætlaði að þurrka rakvélina sína með því, og ég reif það náttúrlega af honum, og . . . og, já, hann hef- ur verið önugur alla vikuna, og það var þá, sem hann hrinti mér!“ „Sér nokkuð á þér?“ spurði frú Barnes rólega. „Á ég að hringja í lækni, svo að hann geti skrifað vottorð?“ „En mamma ... hvað áttu við? Nei, nei, ég held að það sjái ekk- ert á mér, en . . .“ „Það er leitt! Það er alltaf auðveldara að fá skilnað, þegar . . . jæja, en þá verðurðu að hafa andlegt ofbeldi sem ástæðu. Hvernig var það nú aftur? Þú segir að hann hafi verið ósvíf- inn alla vikuna?“ „Ósvífinn? Þú heyrðir hvað ég sagði, er það ekki, um kaffið og sokkana og . . . allt það. Svo, að ég væri ókurteis við konu for- stjórans! Svo, að ég hringdi of oft til hans í skrifstofuna og .. .“ „Hættu, hættu! Þetta er meira en nóg! Þú hefur meira en nóg af skilnaðarástæðum . . . ef þú vel að merkja getur komið því svo fyrir, að það verði Rex, sem sækir um skilnaðinn! Hann get- ur gert sig sekan um að segja, að þú rækir ekki húsmóðurskyldur þínar, að þú hafir ekki neitt vit á að annast heimili o. s. frv. Láttu hann sækja um skilnað- inn, vinkona. Það er miklu auð- veldara.“ „Já, en mamma þó!“ sagði 38 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.