Heimilisritið - 01.01.1955, Side 48

Heimilisritið - 01.01.1955, Side 48
þótt maður baði sig ekki? Sá sem einu sinni hefur laugað sig í blóði Krists, þarf ekki að þvo sér framar“. Hinn heilagi An- toníus gerði sig aldrei sekan um að þvo fætur sína. Þessir hrylli- legu, andstyggilegu og upptærðu postular eigingirninnar, sneydd- ir þekkingu, föðurlandsást og eðlilegum kærleik, sem eyddu lífi sínu í endalausum og and- styggilegum meinlætum, urðu dýrlingar kristinnar trúar. Þeir voru átakanlegustu dæmin um rangsnúinn skilning á skírlífi og ranghverfðum kynhvötum. Menn þessir og konur, löðrandi í óþrif- um í afkimum sínum, voru upp- hafin til að vera öðrum mönn- um og konum til fyrirmyndar. Skírlífi af slíku tagi var álitið eftirsóknarverðara en hjóna- band. Á bak við var vonin um sáluhjálp og endurgjald í öðru lífi. Heilagur Símeon Stýlítes er eitt furðulegasta dæmið um eyðimerkurbúann. Hann batt reipi um sig miðjan svo þétt, að það grófst inn í holdið, sem úldnaði allt í kring. Ormar kom- ust í kýlasár, sem þöktu fætur hans. Eitt ár, sem hann stóð á öðrum fæti, hafði hann með- hjálpara við hlið sér, til að tína upp ormana sem féllu af líkama hans og láta þá aftur í sárin, og sagði dýrlingurinn við orm- ana: „Etið það, sem Guð hefur gefið ykkur.“ Er hann dó, var hann úrskurðaður sem hið æðsta fordæmi, sem einsetumenn gætu valið sér og mestur allra dýr- linga. Ævisaga annars einbúa, heil- agrar Maríu frá Egyptalandi, varpar nokkru ljósi á afstöðu frumkristninnar til vændis- kvenna. Vændiskonan gat af- plánað fyrri syndir og orðið kristin. Kristur hafði fyrirgefið' hórkonunni. Egypzka María var vændiskona, en hún fékk iðrun, og játaði fyrir Zosimus, að hún hefði stundað atvinnu sína . í seytján ár í Alexandríu. Er hún hafði snúizt til réttrar trúar, tók hún sér far með skipi til Jerú- salem, og borgaði fargjaldið með því að stunda sitt gamla starf á skipinu. Hún bætti fyrir synd- ir sínar með því að ástunda iðr- un í óbyggðum. Hún reikaði um í 47 ár, þakin óhreinindum og hafði ekkert til að skýla nekt sinni nema hvítan hárlubbann. Til slíkrar tilbeiðslu leiða rang- hverfðar kynhvatir. Ef kristilegur skilningur á skírlífi hefði lagt áherzlu á snemmbyrjað og dyggðugt hjónalíf, myndi það hafa leitt. til þjóðfélags sigurs yfir kyn- sjúkdómum. Það hefði getað 46 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.