Heimilisritið - 01.01.1955, Qupperneq 49
bjargað menningu Rómaríkis og
það hefði getað bjargað heimin-
um frá hinu langa og hrylli-
lega tímabili miðaldanna. En
það skírlífi, sem sótzt var eftir,
var utan og ofan við mannlegt
eðli, þar sem bæling kynhvatar-
innar var gerð að höfuðmark-
miði.
Guðfræðin reyndi að finna leið
út úr þessum ógöngum. Siðalær-
dómar guðfræðinnar héldu þó
áfram að snúast um kynlífið.
Einlífið bar ávallt að taka fram
yfir hjónabandið. Allar samfar-
ir voru syndsamlegar, nema þær,
sem miðuðu beinlínis að því að
geta börn. En syndir urðu fyrir-
gefnar. Fyrirgefanlegar syndir
bar að taka framyfir þá spill-
ingu, sem spratt upp af því að
þvingft kynhvötina umfram það,
sem stóð í mannlegu valdi. Guð-
fræðileg röksemdafærsla tók til
að finna afsakanir fyrir starf-
semi vændiskvenna. Heilagur
Ágústínus sagði t. d.: „Útrýmið
vændiskonum, og ósiðsemi og
spilling munu blómgast í þjóð-
félaginu.“ Samkvæmt heilögum
Ágústínusi var því vændiskona
vemdari siðgæðisins.
Önnur villukenning — líklega
af arabiskum uppruna — reis á
miðöldum upp úr hinum frjóa
jarðvegi kynlífsóranna. Hún var
sú, að einlífi eða samfaraleysi
gæti orsakað sjúkdóma. Óttinn
við að samfarabindindi gæti leitt
til líkamsskemmda, var notaður
til að skírgreina og fyrirgefa
hegðun margra miðaldaklerka.
Samkvæmt þessari trú, var lit-
ið á vændiskonuna sem innblás-
ið varnarmeðal gegn sýkingu
holdsins. Þjónustur og ráðskon-
ur miðaldaklerka voru, að því
er sagt var, „ekki til ánægju-
auka, heldur til þess að offram-
leiðsla á „efni“ verði ekki fyrir
skemmdum, sem áreiðanlega
mundu hafa það í för með sér,
að illkynjaður sjúkdómur myndi
ná útbreiðslu í hinni æruverð-
ugu stétt geistlegra.“
Hugmynd þessi, að samfara-
bindindi fylgdi líkamleg óholl-
usta, hefur haldizt að nokkru
allt fram á síðustu tíma. Hinn
einlægi fylgismaður hófsemi í
þessum efnum, Benjamín Frank-
lín, var og á þessari skoðun. Nú-
tíma þekking á þessum efnum
hefur sýnt fram á staðleysu þess-
arar miðaldakenningar, en það
hefur ekki breytt grundvallar-
eðli kynhvatarinnar fremur en
kristin trú. Ef snemmbyrjuð
hjónabönd verða ekki stofnuð
af einhverjum ástæðum, er ein-
ungis hægt að koma í veg fyrir
ranghverfu kynstarfsenji með
því að veita hinni bældu eðlis-
hvöt útrás í upphafningu (sub-
JANÚAR, 1955
47