Heimilisritið - 01.01.1955, Page 60

Heimilisritið - 01.01.1955, Page 60
að grípa í öxl frú Taylors. Hann ræskti sig hátt og sagði: „Andartak, frú mín. Er yður ljóst, að það, sem þér hafið sagt í viðurvist allra þessara vitna, er fullkomin játning? Gerið þér yður það Ijóst?“ Jósefína rak upp hrossahlátur, svo að hún varð að grípa utan um sig til þess að rifna ekki af hlátri. Hún fnæsti eins og tarfur, tók allt í einu undir sig stökk og greip um gömlu konuna aftan frá með báðum handleggjum, kreisti oln- bogana saman fyrir aftan bak á henni og hrópaði: „Komið þið þá og takið hana. Hvað viljið þið meira? Vitið þið ekki, að ann- ars ræðst ég á hana af alefli? Takið þið hana og þetta sonaróféti hennar og kast- ið þeim í tugthúsið. Þau myrtu Daisy Vane engu síður en gamli maðurinn. Og svo gengu þau feti framar og myrtu hann þar að auki! Komið þið þeim hurt héðan!“ Eddi dansaði villtan indíánadans. „Flýttu þér!“ öskraði hann til Berg- cn. „Skelltu handjárnunum á þau! í lög- reglubílinn með þau!“ Með óvæntu átaki losaði sú gamla sig úr fangbrögðum Jósefínu og réðist á Wayne. Hann greip annarri hendi fyrir andlit sitt, sér til varnar, en kreppti hinn hnefann og var í þann veginn að nota hann sem barefli á móður sína. Greyið Bergen! Eg hef aldrei séð eins skelfdan mann, jafn algerlega óhæfan mann til að koma lagi á málefni, sem í óefni virtist kom- ið. Hann hafði sýnilega ckki hugmynd um, hvað til bragðs skyldi taka. Hann var nokkra stund að setja handjárn á frú Taylor og miklu lengur að járna Wayne. Það mátti ekki seinna vera, því annars hefðu þau limlest hvort ann- að. En handjárnrmin hafði undarleg áhrif á Edda. Um leið og handjárnin voru tekin upp, um leið og Bergen og að- stoðarmaður hans höfðu handtekið þá gömlu og Wayne, var Edda litla ekki lengur skemmt. Ánægjusvipurinn hvarf a£ andliti hans, og drengurinn varð hflíigginn. Allt í einu — á svipaðan hátt og Wayne hafði áður gert — kast- aði hann sér í faðm Lindu. Ég átti bágt með að trúa eigin augum, þegar ég sá axlir hans taka kippi, þegar ég heyrði ekkahljóðið frá honum og sá hann þrýsta kinninni upp að vanga Lindu og halda dauðahaldi utan um hana. Eddi grét! 18. KAPÍTULl Það leið ekki á löngu —- eftir að ríkis- saksóknarinn kom skömmu eftir klukk- an þrjú um daginn með líkskoðunar- menn og marga lögreglumenn í fylgd með sér, og var skolli geðillur út af því að láta eyðileggja sunnudagsgolfleikinn sinn —- að fenginn yrði botn í málið. Að lokum ’luku þeir við allar yfir- heyrslur og óku burt með gömlu frú Taylor, sem var upplitsdjörf á ný, og Wayne, sem ennþá kveinaði og hélt því fram, að hann væri alsaklaus, en væri alltaf hafður að skotspæni. John einn varð eftir hjá okkur, þangað til flutningsbíllinn kæmi eftir líkunum tveimur. Ekki fannst mér neitt betra á eftir, og þögnin og friðurinn, sem gagntóku staðinn, urðu næstum óþolandi. Við vorum { vandræðum með hvað við átt- um af okkur að gera. Eddi læddist skömmustulegur um húsið, eftir að hann hafði gefið tilfinningum sínum lausan tauminn. Jósefína tautaði eitthvað um, að nú, þegar allt væri um garð 58 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.