Heimilisritið - 01.08.1958, Page 17
amerísk stúlka að geta það líka.
Nellie sigldi því til London og
Ameríkumenn fylgdust með
hverju hennar fótmáli eftir það.
1 blaÖi Pulitzers mátti sjá kort af
leiðinni, sem hún fór og lesa frá-
sagnir hennar af ferðinni, og
menn veÖjuðu mikið um það,
hvort hún yrði fljótari í förum en
Phileas Fogg. Var almennt taliÖ
að hún hefði enga möguleika á
að komast alla leið á áttatíu dög-
um.
Er Nellie fór um Frakkland,
kom hún við í Amiens og heim-
sótti þá skáldið Jules Verne. —
Hann óskaði henni góðs gengis
í ferðinni, en kvaðst ekki vera
trúaður á það, að ,,þessi litla,
ameríska stúlka stæði Phileas
mínum á sporÖi.“ Þetta reyndist
þó rangt hjá blessuÖum karlin-
um.
Nellie var svo fljót í ferÖum,
að hún var viku á undan Phileas
Fogg á ferÖinni. Þegar hún kom
aftur til New York fögnuðu tug-
þúsundir manna henni sem þjóð-
hetju. Hún kom aftur 25. janúar
árið 1890 og hafði þá fariÖ sam-
tals 39.838 kílómetra vegalengd
á 72 sólarhringum, sex klukku-
stundum og 11 mínútum.
En Nellie sá um það, að frægð
hennar félli ekki í gleymsku. —
Eftir fjögurra vikna orlof, var
hún aftur komin til starfa. Hún
lýsti þá opinberlega stríði á hend-
ur þeim óþokkum, sem sátu um
að ráðast á einmana konur í
Central Park skemmtigarÖinum
í New York að kvöldlagi. Það
leið ekki á löngu þar til hún hafði
haft hendur í hári þeirra.
Kvöld eftir kvöld var hún á
ferli í garðinum og slóst í fylgd
með karlmanni nógu lengi til þess
að sjá andlit hans, eða jafnvel
fá nafn hans, en síÖan laumað-
ist hún í burtu. Næsta morgun
var nafn mannsins í blaðinu og
nákvæm lýsing á framkomu
hans.
Þessir óþokkar hættu síðan að
sækja garÖinn og fjórum vikum
eftir að Nellie Bly hafði byrjað
baráttu sína, var enginn þeirra
eftir þar.
Næsta afrek hennar var að láta
handtaka sig og setja í fangelsi
í því skyni, að kynnast því,
hvernig búið væri að konum í
kvennafangelsum í New York.
Lýsingar hennar á hrottalegri
meðferð fangavarðanna á stúlk-
unum, varð til þess að upp komst
um einhver verstu hneyksli í
sögu lögreglunnar í New York,
og eftir það voru konur skipaÖ-
ar fangaverðir í fangelsinu.
Nellie lék alls konar listir. Hún
fór upp í loftið í loftbelg, niður
á hafsbotn í kafarabúningi, hún
vann í verksmiÖjum til þess að
HEIMILISRITIÐ
15