Heimilisritið - 01.08.1958, Síða 25
neinu haldi að gráta og berjast
um á hæl og hnakka. Hún gat
ekki losað sig úr faðmlögum
hans.
Slíkar hættur verða ávalt á
vegi ungra stúlkna, sem eru trú-
gjarnar og dreymir um að verða
frægar kvikmyndaleikkonur.
HEIMURINN er fullur af
óþokkum, sem nota hvers kon-
ar klæki sér til framdráttar. —
Margir þeirra nota póstþjónust-
una fyrir klæki sína. Póstlögregl-
an í Chicago hafði nýlega hend-
ur í hári afbrotamanns, sem hafði
þótzt vera myndarleg ekkja og
fyrirsæta listamanna. Hann sagði
að þessi fallega ekkja væri 29 ára
gömul og að ,,hún væri að leita
að eiginmanni, sem gæti orðið
góður félagi og faðir Júlíu litlu,
sex ára dóttur hennar, sem nú
væri orðin föðurlaus." Þessi svik-
ari skrifaði til fjölda karlmanna,
sem leitað höfðu til hjúskapar-
miðlara og til klúbba, sem ann-
ast samskipti einmana karla og
kvenna, og til þess að auka áhug-
ann, lagði svikarinn mynd af fal-
legri stúlku í umslagið.
Fjölda mörg svör bárust frá
einmana karlmönnum, sem vildu
giftast og höfðu ekkert á móti
því að konan ætti barn af fyrra
hjónabandi. Og nú hófst svika-
leikurinn.
Hver einasti bréfritari fékk
innilegt bréf frá fölsku ,,ekkj-
unni“ og sömu lygasöguna. Hún
skrifaði, að hún ætti enn eftir að
borga kostnaðinn af sjúkralegu
og útför látna eiginmannsins og
auk þess væri hún í stökustu
vandræðum með að fæða sig og
klæða. Hún bætti því við, að
Júlía litla væri himinlifandi yfir
tilhugsuninni um að fá nýjan
pabba.
Allt gekk að óskum og hjóna-
bandstilboðin komu frá næstum
fjörutíu mönnum, sem allir létu
talsvert fé af hendi rakna til
þessa góða málefnis. Falska ekkj-
an varð þúsundum dala auðugri
án þess að hafa nokkru sinni séð
einn einasta aðdáenda sinna. En
svo var það undarleg tilviljun,
sem kom upp um þessi svik.
Sölumaður einn trúði kunn-
ingja sínum fyrir því, að hann
ætlaði innan skamms að giftast
ungri og fallegri fyrirsætu, hún
væri ekkja og ætti sex ára gamla
dóttur.
,,Það var einkennilegt," sagði
kunninginn. ,,Ég er sjálfur með
mjög svipaða fyrirætlun í huga."
Þegar þeir fóru að bera saman
bækur sínar, kom í ljós, að þeir
höfðu báðir verið blekktir af
sama svikaranum. Lögreglan var
furðu lostin þegar hún fór að
handtaka ekkjuna, því að þá kom
HEIMILISRITIÐ
23