Heimilisritið - 01.08.1958, Side 27

Heimilisritið - 01.08.1958, Side 27
Tíu dollara seðill kom upp um hataðasta mann í heimi BARNSRÁN er einhver fyrir- litlegasti glæpur, sem framinn verður, og veldur skelfingu með- al allra heiðarlegra manna, ekki sízt foreldra. Eitt frægasta mál þeirrar tegundar er Lindbergh- málið. Það eru nú liðin 26 ár síðan skozk hjúkrunarkona kall- aði í örvæntingu sinni: ,,Lind- bergh ofursti, hafið þér barnið, ekki að reyna að leika á mig. Það er farið.“ Bælt rúm, autt barnaherbergi, dökkir moldarblettir, sem lágu út að glugga. Arið 1932 var Lindbergh ofursti heimfrægur fyrir það afrek, að fljúga einn síns liðs yfir Atlants- hafið í einum áfanga. Þetta af- rek hafði hann unnið fimm árum áður og það var enn á allra vör- um. Hann giftist Ann Morrow og þeirri giftingu var fagnað eins og um konungborið fólk væri að ræða, og þegar þeim hjónum Charles Lindbergh, flugkappinn heimsfrægi, varð að gjalda fyrir frægð sína. fæddist sonur, var það álíka mik- ill viðburður og þegar prins fæð- ist. En það kostar mikið að vera frægur og það kom bezt í ljós þegar Lindbergh kallaði í ör- væntingu sinni: ,,Það er búið að ræna barninu okkar !“ Heimurinn beið með öndina í hálsinum og Lindbergh-hjónin áttu samúð allra. Lögreglan gat ekki haft upp á ræningjanum og enn síður upp á drengnum, sem var 20 mánaða gamall, þegar þetta gerðist. Það var ekkert að græða á þeim ummerkjum, sem ræninginn skildi eftir sig. HEIMILISRITIÐ 25

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.