Heimilisritið - 01.08.1958, Side 34
Gestur í húsi
dauðans
Oskiljanlegir
atburðir í litlu
húsi á ströndmni
SUMARIÐ áður en Þjóðverjar
hertóku Danmörku leigði ég mér
lítið hús við Norðursjóinn.
Það skiptir engu máli hvar það
var. 1 þessu sambandi nægir að
taka það fram, að það var næst-
um tveggja stunda gangur frá
þessum sumarbústað mínum, til
næsta sjávarþorps.
Ströndin var þá — áður en
Þjóðverjarnir höfðu reist strand-
virki sín þar — ósnortin Paradís.
Hin vilta náttúra, hið síhvika haf
og hin óbyggðu heiðalönd —
allt verkaði þetta sem græðandi
smyrsl á sálina og þar sem ég
hafði þjáðzt af taugaveiklun, all-
Gamla konan opnaði dyrnar í hálfa
gátt, en sagði ekki neitt.
an veturin, var það ekki eftir-
væntingarlaust, sem ég flutti í
litla húsið á ströndinni.
Ég var aleinn. Konan mín og
Mia, einkadóttir okkar, höfðu
farið í ferðalag til Garmisch-
Partenkirchen. Okkur kom mjög
vel saman, öllum þrem, en eins
og ég tók fram áðan, þá hafði
ég þjáðst af taugaveiklun. Vegna
gjaldeyrisskorts og yfirvofandi
stríðshættu hafði verzlun mín
gengið mjög mikið saman og það
setti auðvitað sín merki á fram-
komu mína, innan veggja heim-
ilisins okkar í Kaupmannahöfn.
1 fáum orðum sagt: Ég hafði ver-
32
HEIMILISRITIÐ