Heimilisritið - 01.08.1958, Síða 36

Heimilisritið - 01.08.1958, Síða 36
renndi til mín góðlegum augum: „Ég er skyggn, skal ég segja þér. Ég hef séð þetta allt fyrir. En ég veit líka að hann kemur of seint.“ Ég brosti: — ,,Þú átt eftir að a í mörg, mörg ár, Stína mín. Sannaðu til.“ Gamla konan sagði aðeins: — ,,Það vona ég að ekki verÖi, vegna þess að hér eiga eftir að gerast hræðilegir atburÖir.“ Svo lækkaði hún róminn og hvíslaÖi að mér, eins og fleiri væru við- staddir. — „Erlendir hermenn eiga eftir að búa hérna í húsinu mínu. . . .“ Ég minntist á þetta við kaup- manninn, þegar ég kom til þorps- ins. Hann yppti öxlum : „Já, menn segja að Stína gamla sé skyggn, en ekki veit ég hvað er hæft í því.“ Svo var það fjórum dögum síð- ar, að ókunnugur maÖur bankaÖi á húsdyr mínar. ÞaS var þrek- legur og herðibreiður náungi, á sextugsaldri og hann kynnti sig sem Karl Hansson frá U.S.A. Hann hafði komiÖ gangandi að sunnan og hefði helzt viljað halda ferðinni áfram, en var hálf- lasinn og baðst því gistingar hjá mér. „AuSvitaS,“ sagði ég og á sama augnabliki datt mér dálít- ið í hug. — „Þér skylduð þó ekki vera sonur hennar Stínu ?“ Jú, það var þá hann. Honum varð stirt um mál, kannske komst hann við, — kannske var hann feiminn: „Ég skrifa nú dönskuna ekki sem bezt," sag§i hann — „og ég bjóst ekki við að mamma skildi ensku." „Á ég ekki að fylgja yÖur heim til móður yÖar undir eins ?“ spurði ég og sagði honum hvað gamla konan hefði sagt við mig. „ViS skulum heldur fara þang- að á morgun," sagði hann. — „Mér líður ekki rétt vel núna.“ Næstu klukkustundirnar sagði hann mér alla sína ævisögu. — Meðan hvessti á vestan í ofsa- veður. Líf hans í U.S.A. hafði sannarlega ekki verið neinn dans á rósum. Tímunum saman hafði hann setið í fangelsi og það var ein orsökin til þess, að hann vildi ekki setja sig í samband við for- eldrana í gamla landinu. En nú hafði hann loksins hagnazt það mikið á heiðarlegan hátt, að hann gat vitjað heimkynnanna og gamallar móður sinnar. — Hvernig leið henni ? Var hún veik ? „O, nei,“ svaraði ég. — Hún heldur sér mjög vel og þegar þér heimsækiÖ hana á morgun, mun hún eflaust lifa mestu hamingju- stund ævi sinnar." 34 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.