Heimilisritið - 01.08.1958, Page 45
kynnu að vita, sem máli gæti
skipt, um atburðinn á Aljuneid-
götu, voru yfirheyrðir og var það
nánast heppni, að í eitt vitni náð-
ist, sem gat þess af tilviljun að
það hefði séð bíl á götunni um
það leyti sem líkið hafði verið
látið þar. SagSist vitnið muna
eftir bílnum vegna litarins, sem
var rauður.
Nú var það svo, að þessi lit-
ur á bílum var fremur sjaldgæf-
ur í Singapore og nágrenni og
þess vegna takmörkuðu þessar
nýju upplýsingar mjög leitina að
Chevroletbílnum með fernskon-
ar hjólbörðum. Hin mesta áhersla
var nú á það lögð að afla upp-
lýsinga um hvern einasta rauð-
an Chevroletbíl, sem finnanlegur
væri, og að lokum barst tilkynn-
ing um, að einn slíkur væri í
Johore. Lögreglan þar var beð-
in að taka hann í sínar vörzlur,
og sendur var þangað leynilög-
reglumaður til að skoða hann.
Hann hafði meSferðis ljósmynd-
ir af hjólförunum, sem fundust
morSkvöldiS, og þegar þær voru
bornar saman við hjólbarðana á
bílnum reyndist algert samræmi
vera á milli.
Þetta var ágætt, svo langt
sem það náði, en ekki var sönn-
un fengin fyrir því, að þetta væri
rnorðbíllinn. Hins vegar var ör-
uggt að þessi bíll hafði verið á
Aljuneidgötu um sama leyti og
líkið var skilið þar eftir. Eigand-
inn, sem hafði útleigu bíla að at-
vinnu, hafði greinilega fjarvistar-
sönnun.
„Þetta var kvöldið sem Chev-
roletinum var stolið, þar sem
hann stóð úti fyrir veitingastofu,
þar sem ég var að fá mér kaffi-
sopa,“ sagði eigandinn. Þetta
staðfesti lögreglan f Johore, sem
hafði fengiS tilkynningu um
þjófnaðinn.
„Hvernig fenguð þér bílinn
aftur?“ spurði lögreglan.
,,Hann stóð úti fyrir húsi mínu
morguninn eftir. Hefur verið skil-
inn þar eftir um nóttina.“
Fleiri spurningar voru lagðar
fyrir eigandann og allt í einu
kom hann með upplýsingar, sem
fengur var í. „Eftir á að hyggja,“
sagði hann, „man ég eftir því,
að Kínverji nokkur falaðist eftir
að fá bílinn leigðan kvöldið, sem
honum var stolið. Ég neitaði,
vildi ekkert við hann eiga og fór
hann þá leiðar sinnar. Ef til vill
hefur það verið þessi náungi,
sem stal bílnum.“
ÞaS var talsverðum vandkvæð-
um bundið að grafa upp, hver
maður þessi væri, en það tókst,
og kom þá í ljós, að hann var ný-
lega kominn til héraðsins. Fyrst
í stað neitaði hann að hafa reynt
að fá bílinn leigðan, en þegar
heimilisritið
43