Heimilisritið - 01.08.1958, Page 59

Heimilisritið - 01.08.1958, Page 59
En liti hann hins vegar innilega til mín um leið og hann gerði einhverja athugasemd viðkomandi mér, eða að ég fann klökkva eða góSlátlega kímni í rödd hans, er hann lét einhver slík orð falla, þá veit sá sem allt veit að mér fannst ég vera hamingjusamasta stúlkan í veröldinni. ,,Já, það væri synd að segja að þér væruð léttúðug,“ sagði hann. ,,Þér eruð verulega dugleg, ung stúlka, og þess vegna öfundsverð.“ III OG FYRIR hvað hlaut ég svo þessi hrósyrði, sem höfðu svona unaðskennd áhrif á mig, og ég var svona ánægð yfir ? Stundum þurfti ekki annað til en ég tæki þátt í gleði Gre- gors gamla þegar hann lék við litlu sonardóttur sína, sem var eftirlætið hans, eða þá að ég segði að einhver skáldsaga eða kvæði hefði slík áhrif á mig aS ég gæti glaðzt og þjáðst meS söguhetjunni, eða ég lét þá skoðun mína í ljós, að Mozart væri mestur allra tónsmiða. Mig furðar á því núna, að skoðanir mínar á hlutunum skyldu alltaf vera nokkurn veginn þær réttu og hvernig ég, oft af einskærri tilviljun, datt niður á einmitt það, sem var hans skoðun líka. Allar þær hugmyndir, sem ég hafði gert mér áður um eitt og annaS, féllu honum yfirleit ekki í geð, það fann ég greini- lega á svipbrigðunum í andliti hans ef ég reyndi að flíka þeim, og stundum hristi hann höfuðið í fullkominni vand- lætingu. ÞaS kom líka ekki ósjaldan fyrir, er hann var að leggja mér lífsreglur, að ég vissi það alveg fyrirfram, hvað hann ætlaði að segja. Ég hafði yfirleitt tileinkað mér hugs- anir hans og tilfinningar og gert þær að mínum eigin. í einu vetfangi hafði orðið gjörbreyting á lífi mínu, sem gerði það fegurra en nokkru sinni fyrr. Ég var alveg ójálfrátt farin að sjá alla hluti í nýju ljósi; Kötju, Sonju, allt heimilisfólkið, sjálfa mig og hin daglegu viðfangsefni mín. Bækurnar, sem ég las til að drepa tím- ann, vöktu nú orðiS alveg sérstaka ánægju hjá mér, af því HEIMILISRITIÐ 57

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.