Heimilisritið - 01.08.1958, Page 62

Heimilisritið - 01.08.1958, Page 62
Það leið ekki á löngu þar til Bill Newell hafði girt staðinn og rekið alla forvitna í burtu. Hann benti fólki á, að þetta væri hans land og það ætti engan rétt á að vera þar. Innan fárra klukku- stunda var hann búinn að koma upp tjaldi yfir risann og fór að selja aðgang. Langar biðraðir mynduðust fyrir utan tjaldið fyrstu vikurnar á eftir þegar blöðin höfðu kom- izt að þessu og fréttin borizt út, og brátt námu gestirnir þúsund- um. Bill hækkaði aðgangseyrinn um helming, en miklar deilur stóðu um þetta mál. — Sendinefndir presta heimsóttu staðinn og gláptu á risann steingerða. Fólkið talaði í hvíslingum og andagt við gröfina. Var þessi risi virkilega steingerður maður ? Var þetta ævaforn guð ? Prestar ræddu þetta mál í stól- ræðum sínum og sögðu að risinn væri sönnun orða Biblíunnar um að risar hefðu verið til á Biblíu- tímanum. Prófessor Drater frá ríkis-þjóðminjasafninu, skoðaði risann og sagði á eftir, að þetta væri merkilegasti fornleifafund- ur, sem nokkru sinni hefði verið gerður í Ameríku. Prófessorar frá Yale-háskólan- um og færir efnafræðingar lýstu yfir því, að risinn væri örugglega steingervingur og gestunum fjölg- aði sí og æ. Það leið ekki á löngu þar til Bill Newell hætti að ganga í fátæklegum bóndafötum. Hann keypti sér lafafrakka og hélt lærða fyrirlestra um risann. Stundum var glettnissvipur í augum hans þegar vísindamenn- irnir töluðu af miklum lærdómi um risann, en það sáu ekki aðrir en kona hans. Næstum hvern dag fór frú Newell í bankann með aðgangs eyrinn frá deginum áður, en hún komst að því í samtölum við bankastjórann, að maður hennar lagði ekki inn neinar stórar upp- hæðir, eins og hún hafði þó haldið, því að gestirnir voru margir. Hún tók líka eftir því, að maður hennar skrifaði mjög oft til frænda síns, George Hull, sem bjó í Chicago. Forvitni hennar var nú vakin og hún náði eitt sinn tveimur bréfum til Hull og opnaði þau með gufu frá katlinum. Það var stór ávísun í hvoru bréfi. George Hull fékk auðsýnilega bróður- partinn af aðgangseyrinum, þó að risinn hefði fundizt á jörð bónda hennar. Þegar kom fram á vetur, fékk Hull ennþá stærri skerf af að- gangseyrinum. Þá borgaði hann flutninginn á risanum til sýning- arskála í borginni Syracuse. — 60 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.