Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.03.2012, Blaðsíða 46

Fréttatíminn - 16.03.2012, Blaðsíða 46
8 viðhald húsa Helgin 16.-18. mars 2012  Fjöleignarhús Ákvarðanir sem mÁli skipta a llar ákvarðanir sem máli skipta í fjöleignarhúsum verður að taka á húsfund- um. Það er forsenda fyrir lögmæti ákvörðunar að hún hafi verið tek- in á fundi sem er löglega boðaður og haldinn. Húsfundir eru tvenns konar. Annars vegar aðalfundir, sem halda skal einu sinni á ári og hins vegar almennir fundir. Í grund- vallaratriðum gilda sömu reglur og sjónarmið um aðalfundi og aðra húsfundi. Munurinn er sá að aðal- fundur hefur tiltekin lögboðin verk- efni. aðalfundatími – miklir hagsmunir Aðalfundi húsfélaga skal halda ár hvert fyrir lok aprílmánaðar og þá ber að boða með minnst 8 daga fyr- irvara. Almennir fundir eru haldnir eftir þörfum og skal boða þá með minnst 4 daga fyrirvara. Í báðum tilvikum er 20 daga hámarks boð- unarfrestur. Annars eru ekki í fjöl- eignarhúsalögunum bein fyrirmæli um fundartíma og fundarstað. Nú stendur yfir tími aðalfunda í hús- félögum. Á aðalfundum er vélað um mikla hagsmuni eigenda og húsfélaga. Þar eru teknar ákvarð- anir um þýðingarmikil mál og framkvæmdir sem hafa í för með sér miklar skuldbindingar og fjár- útlát. Það er forsenda fyrir lögmæti ákvörðunar um framkvæmdir og greiðsluskyldu eigenda að hún hafi verið tekin á fundi sem er löglega boðaður og haldinn. aðild að ákvörðunum Ein mikilvægustu réttindi eiganda í fjöleignarhúsi er aðild að hús- félagi og réttur til að eiga hlut að sameiginlegri ákvarðanatöku. Allir eigendur eiga óskoraðan rétt á að eiga og taka þátt í öllum ákvörðun- um um sameiginleg málefni. Sam- eiginlegar ákvarðanir skulu teknar húsfundi. Hafi eigandi ekki verið hafður með í ráðum og ekki boð- aður á húsfund með þeim hætti sem lög mæla fyrir um þá er hann ekki bundinn af ákvörðunum fundarins. Til að þessi grundvallarréttur sé virtur, verður fundur að vera hald- inn á eðlilegum tíma og stað og við boðlegar aðstæður. Ber vitaskuld að velja stað og tíma þegar ætla má að allir eða flestir geti með góðu móti mætt. Ekki má beita hrekkjum og skollabrögðum í því efni. ríkar kröfur til funda Megintilgangur húsfélags er að við- halda verðmæti og notagildi húss- ins. Í því skyni getur húsfundur yfirleitt, án tillits til þess hversu margir sækja fund, tekið bindandi ákvarðanir með einföldum meiri- hluta fundarmanna. Þegar ákvarð- anir lúta að umtalsverðum endur- bótum og breytingum er krafist aukins meirihluta og til verulega breytinga er krafist samþykkis allra. Vegna þessa og grundvall- arþýðingu samráðs við töku sam- eiginlegra ákvarðana gera lög ríkar kröfur til húsfunda sem eru hinn lögboðni samráðsvettvangur. Húsfundir - aðalfundir Tími og staður sem hentar flestum Fundarboðend- um ber, innan skynsamlegra marka, að taka sanngjarnt og eðlilegt tillit til aðstæðna og óska ein- stakra eig- enda um stund og stað funda þótt seint sé unnt að mæta öllum óskum allra. Fundarboðend- ur verða að lesa í spil- in og horfa til þess hvað hentar flestum eigendum og stuðla með því að góðri fundarsókn en ekki fámennum laumufundum. Ákvarðanir á að taka á fundum – fundarboð Allar ákvarðanir sem máli skipta verður að taka á fundum sem standa verður rétt að. Nauðsyn- legt er vanda fundarboð og greina í því meginefni tillagna, sem bera á upp. Annars getur ákvörðun ver- ið óskuldbindandi og skapar ekki greiðsluskyldu. Mikilvægt er að fundurinn sé boðaður og haldinn í samræmi við fyrirmæli fjöleignar- húsalaga. Sú skylda hvílir á stjórn- inni að undirbúa fund af kostgæfni í alla staði, bæði fundarboðið, til- lögur, skipulag, umgjörð og stjórn fundarins, þannig að hann verði löglegur, markviss, málefnalegur og árangursríkur. Stjórn húsfélags ber sönnunarbyrðina fyrir því að fundur hafi verðið löglega boðað- ur og haldinn. Brýnt er að vanda fundarboðun sérstaklega ef um er að tefla mikla mikilvægar ákvarð- anir til dæmis um dýra framkvæmd eða umdeild atriði. Það eru mörg dæmi um húsfélög og stjórnarmenn þeirra, sem hafa orðið fyrir tjóni og skakkaföllum vegna þess að kastað var til höndum við undirbúning og framkvæmd húsfunda. Fundarstjórn formanns Algengt er að fundi sé stjórnað af formanni húsfélagsins en heimilt er að fá ráðgjöf og aðstoð sérfræðinga við að undirbúa og halda húsfundi. Í mörgum tilvikum er það nauðsyn- legt til að rjúfa sjálfheldu sem hús- félagið eða einstök mál eru komin í vegna deilna í húsfélaginu. Oft er formaður deiluaðili eða blandast í mál með þeim hætti að brigður verði bornar á hlutleysi hans og fundarstjórn. Þá fer best á því að sá kaleikur sé frá honum tekinn og fenginn hæfum og hlutlausum sér- fræðingi. Eins er það skynsamleg öryggisráðstöfun bæði inn á við til og út á við að tryggja lögmæti fund- ar og að ákvarðanir séu löglega teknar. Markvissar umræður – fundarfriður Í umræðum á húsfundum er brýnt að menn séu gagnorðir og málefna- legir og setji fram skoðanir sínar og rökstyðji þær skilmerkilega þannig og fundartíma sé ekki sólundað í aukaatriði. Það er frumforsenda ár- angursríkra fundarstarfa að friður ríki á fundi og menn fái gott hljóð til að koma sjónarmiðum sínum, skoð- unum og rökum á framfæri. Gjamm og kliður og vapp og ráp getur hæg- lega rústað fundi og verður fundar- stjóri því að taka fast á því. Boðleg fundaraðstaða Það er mjög mikilvægt að húsnæði fundar sé hæft til funda. Yfirleitt er best að halda húsfundi annars stað- ar en í viðkomandi húsi. Fundir á hlutlausu svæði við góðar fundarað- stæður takast miklu betur en hinir. Það er ekki boðlegt að halda stóra fundi í sameign húsa, í stigagangi, þvottahúsi, bílageymslum eða geymslum, við bága fundaraðstöðu. Það eyðileggur fundarformið og virðingu fundarins. Sama má segja um fundi inn í einstökum íbúðum. Þeir fá ávallt á sig óformlegan blæ kaffisamsætis og eru yfirleitt langir, ómarkvissir og ómálefnalegir. Fólk betlandi kaffi, talandi og hjalandi, þvers og kruss, hvert ofaní annað með tilheyrandi þrætum, þrasi og þófi. Og þegar upp er staðið veit enginn, ekki einu sinni fuglinn fljúgandi, hvað var sagt og ósagt og hvað var samþykkt og hvað ekki. Fundargerð Undir umsjá fundarstjóra skal rita fundargerð um meginatriði þeirra mála sem tekin eru fyrir og allar ákvarðanir sem teknar eru og hvernig atkvæði hafa fallið. Hún verður að vera áreiðanleg og ná- kvæm án þess að aðalatriði séu kaffærð í smáatriðum. Það er óþarfi að bóka orðrétt vaðal sem fer út og suður. Ljósrit fundargerða eiga að vera aðgengilegar eigendum. hvað má stjórn? Stjórn húsfélags framkvæmir fyrst og fremst ákvarðanir húsfunda en henni er líka innan þröngra marka heimilt að taka ákvarðanir sem lúta að venjulegum daglegum rekstri og hagsmunagæslu. Hún getur á eigin spýtur látið framkvæma á minni háttar viðhald og viðgerðir og gert brýnar ráðstafanir sem ekki þola bið. Um allt sem lengra gengur er henni almennt skylt að leita fyrst samþykki húsfundar. Á það fortakslaust við um allar ráð- stafanir og framkvæmdir sem eru verulegar hvað kostnað, umfang og óþægindi varðar. Stjórn getur keypt fundaraðstoð og ráðgjöf og gert vissar ráðstafanir og aflað upp- lýsinga og gagna vegna fyrirhug- aðra framkvæmda sem nauðsyn- legar eru til að húfundur geti tekið upplýsta ákvörðun um mál. Stjórn er þó rétt að fara varlega í þessum efnum og afla jafnan fyrst samþykk- is húsfundar. Verður seint of brýnt fyrir framkvæmdaglöðum stjórn- armönnum að húsfundir séu ekki bara hraðahindranir heldur æðsta valdið í sameiginlegum efnum. grátt gaman Að lokum þetta: Samkvæmt eðli máls og meginreglum fjöleignar- húsalaga er eigendum ekki skylt að sækja húsfundi á afbrigðilegum tímum og stöðum og slíkir fundir yrðu yfirleitt taldir ólöglegir. Fund- arboðendum ber að boða fundi á stundu og stað þegar sem flestir eigendur eiga að geta mætt. Þess vegna ber að forðast, nema eitthvað mikið liggi við, að boða húsfundi um hásumar og nálægt jólum og páskum. Afbrigðilegur fundartími og fundarstaður er yfirleitt valinn til að útiloka eða torvelda fundar- sókn eða þá sem grikkur eða liður í innanhússtríði. Slíkt fer í bága við orða og anda fjöleignarhúsalaga og kemur viðkomandi í koll. Á ólög- mætum fundi verða engar lögmæt- ar ákvarðanir teknar. Þá er verr af stað farið en heima setið. Klækja- refir og gráglettnir fundaboðendur geta skotið sig illa í fótinn og víðar með því að velja fundi afbrigðilegan stað og tíma. Okkar eigin framleiðsla HÁGÆÐA PLANKAPARKET BEINT FRÁ VERKSMIÐJU TIL VIÐSKIPTAVINAR EIGIN FRAMLEIÐSLA - ENGIR MILLILIÐIR - LÆGRA VERÐ Síðumúla 31 • 108 Reykjavík Símanr: 581 2220 • 840 0470 www.parketverksmidjan.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.