Fréttatíminn - 16.03.2012, Blaðsíða 76
56 fermingar Helgin 16.-18. mars 2012
Allt á einum stað!
Þín ánægja er okkar markmið
vodafone.is
Vertu í stöðugu sambandi við vinina
í gegnum Facebook, Twitter og aðra
samfélagsmiðla með Lumia 800.
Kynntu þér málið í næstu verslun
okkar eða á vodafone.is
Fermingargjafir
Gjafirnar sem krakkarnir fá á fermingardaginn hafa um margt
breyst í áranna rás. En eitt hefur ekki breyst og það er sú hugmynd
að vilja gefa gjafir sem nýtast í mörg ár og jafn vel alla ævi. Rúm
og úr eru gott dæmi um þetta. Og þótt unglingar séu nær hættir
að ferðast einir til Þórsmerkur og í Húnaver þá eru alltaf verð-
mæti í góðum svefnpoka. Svo eru það gjafirnar sem óharðnaður
unglingurinn kærir sig kollóttan um fyrr en einmitt að nokkrum
árum liðnum. Þá sér hann ljósið en fyrr ekki. Á þeim lista tróna
orðabækur á efa í efstu sætunum. Fatnaður og skór geta ekki talist
til hentugra gjafa sé litið til endingar enda fylgja þessum tíma oft
kröftugir vaxtarsprettir og þá sérstaklega hjá piltunum.
iPod:
MPþrír spilarar eiga undir
högg að sækja vegna þess
hversu snjallsímarnir
eru orðnir góðir í að
spila tónlist. Nettur
og flottur iPod nanó
er þó ekki fallinn úr
tísku og heldur nota-
gildi sínu. Hann gerir líka
annað og meira en bara að
spila lög; geymir til dæmis myndir,
telur skref við æfingar og reiknar svo
út hversu mörgum kaloríum hefur verið
brennt. Þetta þing fæst í Epla-búðinni og
Mac-landi og kostar frá þrjátíu og fjögur
þúsund níuhundruð og níutíu krónum.
Fermingargræjur:
Fyrir tuttugu til þrjátíu árum fengu nánast allir hljómtæki í fermingargjöf.
Núna kaupa fáir geisladiska, kassettur og vínilplötur en flestir hlusta þó
enn á tónlist og vilja spila hana hátt þegar svo ber undir. Þá er málið að
kaupa netta og góða dokku eins og þessa, Sounddock tvö frá Bose. Fæst í
Nýherja og kostar fjörutíu og níu þúsund og níu hundruð krónur.
Spjaldtölva:
Spjaldtölvur voru
kannski ekki jólagjöf
síðasta árs en þær verða
svo sannarlega fermingar-
gjöfin í ár. Hvort sem það
er iPad eða Android þá er
nokkuð víst að enginn verður
unglingurinn fullveðja einstak-
lingur í samfélagi fullorðinna
án spjaldtölvu. Ein mest spenn-
andi tölvan á markaðnum í dag
er galdratækið Samsung galaxy
sjö komma sjö; lítil og nett þrír-
G-tölva sem hefur meira að segja
til að bera míni-SD-kortarauf. Kostar hundrað
tuttugu og níu þúsund og níu hundruð krónur
í Samsung-setrinu.
Stóll:
Skrifborð og stóll eru gjafir sem eiga
vel við á þessum tímamótum. Ekki þarf
endilega að fara troðnar
brautir í þeim efnum. Til
dæmis er hægt að stokka
hlutina upp með litríkum
og flottum stól eins og
þessum límónugræna
Panton stól úr Pennanum
og gefa fyrir þrjátíu og
níu þúsund og níu hundruð
krónur.
Bolti:
Það er Evrópu-
keppnisár í
knattspyrnunni
og það þýðir að
það er kominn
nýr keppnisbolti:
Tangó tólf. Hann
verður vafalaust vinsæl
fermingargjöf hjá fótbolta-
áhugamönnum, bæði strákum og stelpum.
Fæst til dæmis í Adidas-búðinni í Kringlunni
og kostar tuttugu og fjögur þúsund,
níuhundruð níutíu og níu krónur.
Sjónvarp:
Yfirráð yfir imbakassanum er eitt stórt skref í áttina til sjálfstæðis. Í Samsung-setr-
inu er margt um sjónvarpið þar á meðal þetta þrjátíu og tveggja tommu LED-tæki
sem meðal annars spilar bíó af USB kubbi og talar við Android síma frá Samsung
eins og ekkert sé. Það kostar hundrað fjörutíu og níu þúsund og níu hundruð
krónur.
Rúm:
Fáar gafir bera með
sér jafn skýr skilaboð
um að krakki sé komið í
fullorðinna manna tölu
og þegar prinsessu- eða
kappakstursbílarúminu
er lagt fyrir stórt og
gott fullorðins rúm.
Tempur heilsurúm
hundrað tuttugu
sentimetra breitt frá
Betra bak kostar áttatíu
og sex þúsund og níu
hundruð krónur. Tilvalið
er svo fyrir ömmu að gefa góða sæng og frænda að gefa heilsukodda og
svo má ekki gleyma Damask-bómull í sængurfatnaðinn.
Heyrnartól:
Fátt gleður unglingana
meira en að geta hundsað
mömmu og pabba með góðri
samvisku og eru góð heyrnatól
svo gott sem besta leiðin til þess.
Þá eru litríku en jafnframt góðu
heyrnartólin frá Sennheizer og fást
í Paff ágætur kostur en þau kosta
níu þúsund og níuhundruð
krónur.
Hnöttur:
Hugurinn leitar oft til
útlanda á uppvaxtarár-
unum og því er tilvalið
að gefa flotta míniútgáfu
af sjálfri jörðinni. Þessi
hnöttur fæst í Epal og
kemur í mörgum litum. Fæst
með og án ljóss og kostar frá
nítján þúsund tvöhundruð og
fimmtíu krónum.