Fréttatíminn - 16.03.2012, Blaðsíða 59
S ögulegur aðalfundur Dýra-verndarsambands Íslands (DÍ) var haldinn síðast-
liðinn laugardag. Stjórnarhættir
DÍ hafa verið gagnrýndir undan-
farið og hefur Árni Stefán Árna-
son dýraréttarlögfræðingur farið
þar fremstur. Mæltist gagnrýnin
illa fyrir af stjórn DÍ og sagði hún
starfshætti Árna óásættanlega, án
rökstuðnings.
Félagsmenn töldu mikilvægt
að endurnýja í stjórn DÍ. Árni var
hvattur til framboðs sem formað-
ur. Gott orðspor hans í framlagi
til dýraverndar hefur vakið mikla
athygli. 200 undirskriftir söfnuð-
ust fyrir framboði Árna á netinu.
Óskað var eftir rafrænni kosningu.
Stjórnin hafnaði því. Margir kom-
ust ekki á kjörstað. Lýðræðið var
ekki virt.
Óvænt mótframboð – mis-
notkun félagaskrár?
Stuttu fyrir kosningar tefldi fráfar-
andi stjórn fram Sif Traustadóttur
dýralækni sem formannsefni.
Fundarsókn fór í sögulegt hámark.
Smölun stjórnar virtist staðreynd.
Sif fékk 105 atkvæði, Árni 29.
Munurinn þótti óeðlilegur enda
stuðningsmenn Árna að minnsta
kosti 200. Má vera að stjórnin, sem
ein hefur aðgang að félagaskrá
hafi misnotað hana í sína þágu?
Gömul íslensk aðferðafræði fyrir
kosningar þegar minnihluti telur
að veldi sínu vegið.
Samtök lífrænna neytenda
(SLN) gegn Árna á Facebook
Dominique Pledel, í framkvæmda-
nefnd SLN og ritstjóri Facebook-
samtakanna lýsti yfir ágæti Sifjar
Traustadóttur á
Facebookvef SLN:
„Dýraverndarfélag
Íslands heldur aðal-
fundinn á laugardag-
inn kl 11 í Norræna
Húsinu. Þar verður
kosinn nýr formaður
og Sif Traustadóttir
gefur kost á sér. Hún
er besta formanns-
efni sem til er á
landinu, föst en ekki
öfgakennd, fagmaður
fram í fingurgóma
með hugsjón að
vopni, og reynslubolti. Allir sem
eru meðlimir í DÍ geta kosið og
hægt er að skrá sig fram á föstu-
daginn (dyravernd@dyravernd.is),
ég hvet alla til að skrá sig og kjósa
Sif á fundinum. (Dominique).“
Skrifin voru síðan fjarlægð!
Skrifin sættu undrun. SLN-Fa-
cebookvefurinn var notaður gegn
Árna sem hefur unnið hvað mest
starf fyrir SLN í starfshópnum Vel-
ferð búfjár (SLN-VB), langstærsta
og virkasta hóp SLN undir stjórn
Árna. Dominique hefur eldað grátt
silfur við Árna innan SLN og ekki
sætt sig við gagnrýni sem Ólafur
Dýrmundsson meðlimur í hópnum
SLN-VB hefur fengið af hálfu Árna
fyrrverandi hópstjóra hópsins.
Téð Dominique hélt því fram
að engin tengsl væru á milli Ólafs
Dýrmundssonar fráfarandi for-
manns og sín. Hún var þó fundar-
stjóri aðalfundarins og fórst það
ekki vel gagnvart stuðningsfólki
Árna. Þeim gekk seint og illa að fá
orðið.
Þá vakti kjörkassi unninn af
handvömm athygli, geymdur undir
borði í móttöku og á
borðinu óútfylltir eftir-
litslausir kjörseðlar.
Stjórna framleið-
endur dýraafurða nú
DÍ?
Miður er ef stjórnin
hefur misnotað félaga-
skrá til þess að fella
Árna. Ekki verða eftir-
mál vegna þess. Barátta
Árna-fólks fyrir dýrin
mun halda áfram. Það
hefur tvíeflst við þetta
mótlæti. Hefta þarf áhrif hags-
munaaðila inn í DÍ og bæta eftirlit
með gæludýrum. Mikið vantar þar
á. Hagsmunaðilarnir eru Bænda-
samtökin, loðdýrabændur, eggja-
framleiðendur og fleiri ásamt
Matvælastofnun sem sætt hefur
linnulausri gagnrýni undanfarið.
Á fundinum mátti meðal annars
sjá lögfræðing Bændasamtakanna,
sem ekki hefur áður verið gestur
á félagsfundum DÍ að sögn þeirra
sem til þekkja.
Blað brotið í sögu dýraverndar
á Íslandi – tímamótafundur
Aðalfundurinn var tímamóta-
fundur vegna fjölmennis og átökin
í umræðunni gleymast seint. Árni
hefur hrist rækilega upp í allri
dýraverndarumræðu. Málflutning-
ur hans hefur verið málefnalegur
en hefur stungið á viðkæmum
kýlum og troðið á aumum tám.
Tilnefning Árna til samfélags-
verðlauna Fréttablaðsins síðast-
liðinn miðvikudag segir allt sem
segja þarf. Íslendingar kunna að
meta störf hans!
Hagsmunaaðilum stóð ógn af
Árna. Hann lætur verkin tala með-
an yfirvöld sitja hjá. Dapurlegast
er þó að einum af forystusaðilum
SLN tókst með brögðum að leggja
framboð Árna að velli að sinni. Árni
áorkaði miklu innan SLN og með
einkaframtaki en fékk andstyggð
fyrir. Árni og hans fólk mun sækja
fram á veginn, ennþá harðar en
áður, dýrum til hagsbóta.
Hagsmunaaðilum stóð ógn af Árna. Hann
lætur verkin tala meðan yfirvöld sitja hjá
Helgin 16.-18. febrúar 2012 viðhorf 39
Tryggðu þér eintak
strax!
Þín ánægja er okkar markmið
vodafone.is
Lumia 800 er með Windows Phone 7
stýrikerfinu sem hefur fengið frábæra
dóma - er stílhreint, flott og hraðvirkt.
Kynntu þér málið í næstu verslun
okkar eða á vodafone.is
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0030 · www.burstagerdin.is
- Í öll anddyri
- Hvaða stærð sem er
- Afgreidd á 2 dögum
• •B
U R
S TA G E R Ð I N
ÍS
L E N S K U R I Ð N
A Ð
U
R
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Teppi á stigaganginn
nú er tækifærið !
Komum á staðinn með prufur
og mælum,
ykkur að kostnaðarlausu
Eitt verð niðurkomið
kr. 6.390 m2
Aðalfundur Dýraverndarsambands Íslands
Aðför að dýravernd?
Kristín Cecilsdóttir
félagi í Dýraverndarsam-
bandi Íslands
MATAR &
KAFFISTELLUM
HNÍFAPÖRUM
SWAROVSKI
SKARTGRIPUM
ÖLLUM GLÖSUM
IITTALA VÖRUM
ÍTÖLSKUM HITAFÖTUM
og fleiru og fleiru t.d. fallegum fermingargjöfum
NÝTT KORTATÍMABIL
www.tk.is
ERUM EINGÖNGU
Á LAUGAVEGI 178
Laugavegi 178 - Sími. 568 9955
FIMMTUDAG, FÖSTUDAG, LAUGARDAG & MÁNUDAG
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
vertu
vinur á
Facebook
Í TÉKK-KRISTAL
Hnífaparatöskur
14 teg. TILBOÐ
8 stærðir
Full búð af fallegum vörum