Fréttatíminn - 16.03.2012, Blaðsíða 63
Bannað að Haardera!
Það voru mjög mörg ljós og bjöllur
og annað sem hefðu
átt að valda því að
ákærði átti að grípa
til aðgerða.
Sigríður Friðjóns-
dóttir, saksóknari
Alþingis, ræddi
meint aðgerðarleysi
Geirs H. Haarde þegar
hún reifaði málið gegn
honum fyrir Landsdómi.
Enski boltinn?
Það er ekki ljóst hvað
angraði hann varðandi
starfsemina hér.
Ari Edwald, for-
stjóri 365, um mann
sem lét öllum illum
látum í anddyri fjöl-
miðlarisans og hótaði
starfsfólki.
Fyrirsagnafúsk
Þeir sem starfa á fjölmiðlum eru við-
búnir óvæginni gagnrýni, en það hefur
ekki verið gefið skotleyfi til að ráðast
að fjölmiðlafólki með upp-
diktuðum ásökunum um
aðild að kynferðis-
brotum.
Feðgarnir Jón
Trausti Reynisson og
Reynir Traustason,
ritstjórar DV, í yfir-
lýsingu þar sem þeir
gerðu tilraun til þess að
kenna Steingrími Sævarri Ólafssyni,
ritsjórar Pressunnar, grundvallaratriði
í fyrirsagnasmíð. Þær þurfa víst að
standast vissar raunveruleikakröfur.
Staðgóð máltíð
Þetta er ekki sykurjukk, fita eða ógeð
líkt og Fannar sagði.
Ásgerður Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Metro, mótmælir
dylgjum um hamborgara sem hún
telur íþróttafræðinginn Fannar Karvel
Steindórsson hafa sett fram þegar hann
lýsti áhyggjum yfir því að Metro seldi
52 þúsund hamborgara á einum degi í
gegnum tilboðssíðuna Hópkaup.is.
Eins gott að vera ekki í skránni
Hún átti að fara til Jóhönnu en ég fann
ekki hvar hún á heima.
Sprengjumaðurinn við stjórnarráðs-
húsið, S. Valentínus Vagnsson, útskýrir
fyrir DV hvers vegna hann plantaði
sprengju sinni við vinnustað Jóhönnu
Sigurðardóttur.
Enginn verður óbarinn
fríkirkjuprestur
Þetta voru svona persónulegar
árásir. Hann var stöðugt að segja manni
hversu ómögulegt þetta og hitt væri.
Ása Björk Ólafsdóttir prestur um fram-
komu Hjartar Magna Jóhannssonar
fríkirkjuprests í hennar garð en hún
hraktist úr starfi fríkirkjuprests.
Vikan sem Var
m eð þessari stuðningsyfirlýs-ingu viljum við núverandi og fyrrverandi sóknarnefndarfólk
og starfsfólk Guðríðarkirkju í Grafar-
holti, vekja athygli þeirra sem koma að
kjöri biskups Íslands, á framboði sr. Sig-
ríðar Guðmarsdóttur til þess embættis.
Um leið og við af einlægni lýsum yfir
fyllsta stuðningi við sr. Sigríði, leitum við
til allra þeirra sem að kjörinu koma með
ósk um stuðning þeirra.
Sr. Sigríður hefur frá því hún var
skipuð sóknarprestur í Grafarholtssókn,
sýnt fádæma dugnað og einlægan áhuga
á öllu því er að kirkjunni lýtur. Er hún
tók við embætti var hvorki til kirkjuhús
né heldur mótað safnaðarstarf, enda
um nýjan söfnuð að ræða. Þrátt fyrir
takmarkað húsnæði og fábrotnar að-
stæður til trúarlegra athafna, hóf hún
markvisst uppbyggingarstarf sem laðaði
fólk til kirkjunnar og safnaðarstarfsins.
Við byggingu nýrrar kirkju, sem reis
fullbúin á 17 mánuðum, var starf hennar
ómetanlegt. Með einlægum áhuga,
fórnfýsi og dugnaði, miðlaði hún þekk-
ingu sinni um kristna kirkju, helgisiði
hennar, trúartákn, helgigripi og innviði
sem þakksamlega var þegin og innlegg
hennar réði hvað mestu um hversu vel
tókst að gera kirkjuna að svo fallegum
og innihaldsríkum helgistað sem raun
ber vitni um.
Starfsgleði, greind og metnaður
einkennir sr. Sigríði. Hún er með mikla
réttlætiskennd en jafnframt afskaplega
hlý manneskja, tilfinningarík og gott
til hennar að leita. Skoðanaágreining
leggur hún sig fram um að leysa þannig
að allir gangi sáttir frá borði. Söfnuði
sínum hefur hún verið trú, safnaðarnefnd
ómetanleg aðstoð og starfsfólk kirkjunn-
ar hefur þótt gott að vinna undir hennar
leiðsögn. Um þetta bera Guðríðarkirkja
og starfið þar skýrust merkin.
Einlæg trú sr. Sigríðar á boðskap
kristinnar kirkju og gífurleg þekking
hennar á þeim sviðum sannfærir okkur
undirrituð um að hún myndi verðug
skipa embætti biskups Íslands og emb-
ættið, þannig skipað, efla Þjóðkirkju Ís-
lands sem er og hefur verið landi og þjóð
til blessunar.
Níels Árni Lund, fyrir hönd sóknarnefnd-
arfólks og starfsfólks Guðríðarkirkju.
Stuðningsyfirlýsing
Séra Sigríði Guðmarsdóttur í embætti biskups Íslands
200 bíómiðar
Taktu þá
tt
í topplei
k
Cocoa Puf
fs!
Sendu þrjá bláa toppa af Cocoa
Puffs pökkum merkt:
Cocoa Puffs leikur, Klettagörðum 19,
104 Reykjavík – ásamt nafni og
símanúmeri og þú ert kominn í
pottinn.
Dregið 18. apríl.
www.cocoapuffs.is
20
á
rsk
ort í húsdýragarðin
n
Fe
rð
fy
rir
fjó
ra til Euro Disney*
Í aðalvinning er
fjölskylduferð fyrir
fjóra til Euro Disney
auk fjölmargra
annarra glæsilegra
vinninga.
*Innifalið: Flug fyrir fjóra til Parísar, báðar leiðir
og aðgangskort fyrir fjóra í Euro Disney.
Helgin 16.-18. febrúar 2012 viðhorf 43