Fréttatíminn - 16.03.2012, Blaðsíða 4
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
Uppþvottavél SN 46M203SK
á frábæru verði.
13 manna. Sex kerfi.
Mjög hljóðlát.
Tímastytting þvottakerfa.
Tækifærisverð:
129.900 kr. stgr.
(Fullt verð: 159.900 kr.)
Tækifæri
A
T
A
R
N
A
Fækkun fæðinga
milli ára
Árið 2011 fæddust 4.496 börn
með lögheimili á Íslandi, 2.327
drengir og 2.169 stúlkur. Því
fæddust 1.073 drengir á móti
hverjum 1.000 stúlkum árið
2011. Þetta er nokkur fækkun
frá árinu 2010 þegar 4.907
börn fæddust. Þrátt fyrir fækk-
unina var fjöldi fæðinga í fyrra
svipaður og meðaltal undan-
farinna áratuga. Árgangurinn
2011 er sá 26. stærsti frá 1951,
að því er Hagstofa Íslands
greinir frá. Fæðingartíðnin,
það er að segja fjöldi fæðinga
á hverjar 1.000 konur á aldr-
inum 20–44 ára, var 68 árið
2011, en 73,7 árið á undan. - jh
Kárahnjúkavirkjun er það íslenska
mannvirki sem helst virðast
í hættu fyrir hryðjuverkaá-
rásum. Áhættan telst þó fremur
lítil. Þetta kemur fram í nýju
áhættumati Almannavarna sem
birt var í vikunni og Austurglugg-
inn greinir frá. Öll mannvirki sem
tengjast Kárahnjúkavirkjun eru
„útsett fyrir árásum hryðjuverka-
manna og mótmælenda eins og
sýndi sig í mikilli andstöðu við
framkvæmdirnar,“ að því er fram kemur í áhættumatinu. - jh
Kárahnjúkavirkjun helst í hryðjuverkahættu
Michelsen_255x50_J_1110.indd 1 02.11.10 10:08 Lífeyrir eftirLaunasjóður starfsmanna Hafnarfjarðar
Lífeyrissjóðsstjóra sagt upp
Milljarða mínus í mörg ár hreyfðu ekki við stjórn Eftirlaunasjóðs stearfsmanna Hafnarfjarðar,
þrátt fyrir að bæjarstjórinn væri formaður stjórnarinnar og bærinn sjálfur í ábyrgð fyrir sístækk-
andi gjá milli skuldbindinga sjóðsins og eigna – líka í góðærinu. Ákveðið hefur verið að sameina
sjóðinn öðrum lífeyrissjóðum sveitarfélaga eftir alvarlegar athugasemdir Fjármálaeftirlitsins.
s igurjóni Björns-syni, fram-kvæmdastjóra
Eftirlaunasjóðs starfs-
manna Hafnarfjarðar-
bæjar, hefur verið sagt
upp störfum.
Sigurjón hefur
starfað hjá sjóðnum frá
árinu 1986. Heildar-
skuldbindingar
sjóðsins hafa verið
neikvæðar um árabil.
Í rannsóknarskýrslu
lífeyrissjóðanna má sjá
að þær voru neikvæðar
um 68 prósent árið
2006 en 78 prósent
árið 2009. Ekki var
greint frá nýrri tölum
í skýrslu rannsóknar-
nefndar lífeyrissjóð-
anna en þar kemur
fram að „ljóslega“ hefði mátt standa betur að fjárfestingum sjóðsins.
Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri, er núverandi formaður stjórnar Eftir-
launasjóðsins. Ekki náðist í hann en Fjölnir Sæmundsson, einn nefndarmanna, vill
ekki gefa aðra ástæðu fyrir uppsögn Sigurjóns en að færa eigi sjóðinn undir sam-
eiginlegan hatt annarra sjóða sveitarfélaga. Það verður 1. apríl.
Í gögnum sem Fréttatíminn hefur undir höndum og Fjármálaeftirlitið sendi frá
sér 6. mars síðastliðinn segir að ekki hafi verið ráðist í allar þær úrbætur sem eftir-
litið fór fram á í skýrslu sem það gaf út síðasta haust. Athugasemdirnar voru margar
og misalvarlegar en þó svo alvarlegar að Fjármálaeftirlitið mæltist til þess að stjórn
sjóðsins skoðaði að hann sameinaðist öðrum sjóði eða sjóðum. Engar verklags-
reglur, villur stóðu í bókhaldi árum saman og skortur á yfirsýn voru meðal athuga-
semda.
Í rannsóknarskýrslu lífeyrissjóðanna er tap sjóðsins rakið og skortur á skriflegri
stefnu hans og að munnlegur samningur hans við VBS fjárfestingarbanka séu helst
athugunarverð fram yfir aðra sjóði.
Tekist hefur verið á um málefni Eftirlaunasjóðsins í bæjarráði og bæjarstjórn.
Sjálfstæðismenn segja meirihlutann hafa sofið á verðinum og bæjarstjórinn segir
sjálfstæðismenn nú vilja standa í vegi fyrir umbótum á sjóðunum.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Í skýrslu Fjár-
málaeftirlitsins
frá síðasta hausti
kemur meðal
annars fram að:
A. Sjóðurinn setti sér
ekki starfsreglur fyrir
framkvæmdastjóra og
stjórnarmenn undir-
rituðu ekki starfsreglur
stjórnar. Engar reglur
og verkferlar um fjár-
festingar sjóðsins.
B. Samþykktir sjóðsins
höfðu ekki verið upp-
færðar frá aldamótum
C. Verklagsreglum um
verðbréfaviðskipti var
ekki fylgt eftir
D. Iðgjaldakerfi hélt ekki
nægilega vel utan um
upplýsingar sjóðs-
félaga
E. Útreikningar vegna
lífeyrisúrskurða voru
ekki yfirfarnir nema
upp hafi komið álitamál
F. Villur voru látnar
standa óleiðréttar
árum saman hjá
sjóðnum
G. Misræmi var í útreikn-
ingi á raunávöxtun
Eftirlaunasjóðsins og
útreikningi FME
H. FME gerði athugasemd
við utanumhald um
fjárfestingar sjóðsins
I. Fjárhagsbókhald
sjóðsins var ekki fært
með reglubundnum
hætti
J. Skortur á yfirsýn
framkvæmdastjóra yfir
kerfið og utanumhald
um fjárfestingar
K. Misbrestur var á því
að allar upplýsingar
um lánveitingar væru
bókfærðar í fundar-
gerð stjórnar
Guðmundur Rúnar Árnason tók við sæti Lúðvíks Geirssonar í
Hafnarfirði; bæði sem bæjarstjóri og formaður stjórnar Eftirlauna-
sjóðs starfsmanna bæjarins. Málefni sjóðsins hafa verið í ólestri og
bærinn í milljarða bakábyrgð. Samsett mynd/Hari
Milljarðar á hliðarlínunni gætu dregið sjóðinn enn meira niður
Bærinn berst við að forða því
að 1,5 til tveggja milljarða
króna skuldbindingar vegna
fyrrum starfsmanna Byrs falli
á sjóðinn sem bærinn ábyrgist.
Gerist það nemur fjárhæðin 55
til 75 þúsund krónum á hvern
einasta bæjarbúa. Bærinn
er ábyrgur fyrir því að brúa
gjána sem myndast hefur milli
skuldbindinga sjóðsins og
eigna hans. Bilið var 8,7 millj-
arðar króna árið 2009. Í rann-
sóknarskýrslu lífeyrissjóðanna
segir að falli skuldbindingin
á sjóðinn verði áhrifin mikil
og neikvæð á stðu hans. Nú
sé beðið eftir að krafan verði
viðurkennd sem forgangskrafa
í Byr. Það forði sjóðnum frá
skuldbindingunum.
4000 krónur fyrir
3300 króna úttekt
Það getur kostað allt að 1500 krónum meira að taka út
300 evrur í erlendum hraðbanka en í útibúi hér heima.
Þeir ferðamenn sem sækja sér reglulega skotsilfur
í útlöndum gætu aukið kostnað um tugi þúsunda,
segir á vefsíðunni Túristi. Borga
þarf 440 til 675 krónur fyrir
að nota erlendan hraðbanka
með íslensku kreditkorti. Fari
úttektin yfir fimmtán þúsund
krónur hækkar þóknunin og
nemur 2,5 til 4,5 prósent af
upphæðinni. Lágmarksþóknun
banka og kreditkortafyrirtækja
hér er oftast tæplega 700 krónur. Því borgar
sig ekki að taka út lágar upphæðir. „Til dæmis yrði
korthafi sem tæki út 20 evrur (um 3300 krónur) að
borga þessa lágmarksþóknun. Hann borgar því,“ segir
Túristi, „4000 krónur fyrir 3300 króna úttekt.“ - jh
veður föstudagur Laugardagur sunnudagur
HæGuR vinduR oG éL vestAntiL, en AnnARs
Að mestu úRKomuLAust. KóLnAndi
HöFuðboRGARsvæðið: SLyddA EðA
SNjóKoMA oG SÍðAr éL Í HiTA réTT oFAN
FroSTMArKS.
FRemuR KALt oG FRost um LAnd ALLt.
n-Átt, FRemuR HæG oG éL með noRðuR-
stRöndinni.
HöFuðboRGARsvæðið: LéTTSKýjAð oG
FroST 4 TiL 7 STiG.
ÁGætt FRAmAn AF deGi, en HvAssiR með
snjóKomu oG sÍðAR RiGninGu um KvöLdið.
HöFuðboRGARsvæðið: BjArT oG KALT uM
MorGuNiNN, EN SÍðAN HLýNAr oG HVESSir.
SLAGVEðurSriGNiNG uM KVÖLdið.
Fremur kalt en hlýnar á
endanum
Kalt loft leggur leið sína yfir landið um
helgina. Viðbrigðin verða kannski nokkuð
mikil fyrir marga því á laugardag verður ein-
dregið frost um land allt. Frostinu fylgir N-
átt, alls ekki hvöss og él verða norðanlands,
en léttskýjað syðra. Fallegt veður um mest
allt land til að koma sér út og njóta
marsbirtunnar. Á sunnudag
versnar veðrið með nýrri lægð,
en þó ekki fyrr en líður á dag-
inn. Framan af sunnudegin-
um verður birtan hins vegar
tær og veður hæglátt.
2
0 -1
-2
2 -5
-7 -4 -5
-4
-1
-4 -4
-6
-2
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
4 fréttir Helgin 16.-18. mars 2012