Fréttatíminn - 16.03.2012, Blaðsíða 91
Plötudómar dr. gunna
Kveldúlfur
Myrra Rós
Slakað á
Myrra Rós hefur víða komið
fram með lögin sín, meðal
annars starfað innan vé-
banda Trúbatrixu-hópsins. Á
þessari fyrstu plötu hennar
eru níu lög bæði á íslensku
og ensku. Myrra semur
alla textana en lögin með
Andrési Lárussyni. Platan er
silkislök og angurvær alla
leið. Kassagítarar, strok-
hljóðfæri og ásláttur skapa
lífræna umgjörð fyrir góðan
söng Myrru og liðsmenn
Hjálma sjá um undirspilið
í tveimur lögum. Þetta er
poppað fólk og kántrí og svo
sem engar tilraunir gerðar
til nýsköpunar á þeim vett-
vangi; þetta er bara traust
og ágætis stöff þótt lögin
séu missterk. Best finnst
mér Animal og Kveldúlfur,
bæði flott lög. Stundum er
þetta þó full flatt hjá Myrru.
Hún lofar góðu en mætti
vera framsæknari næst.
til næturinnar –
10 ástarsöngvar
Óskar Guðnason
Ljóða-kántrí
Kristín Jónsdóttir sló í
gegn árið 2009 með fyrstu
ljóðabókinni sinni, Bréf til
næturinnar. Sveitungi hennar
Óskar Guðnason samdi lög við
10 ljóð, sem þau Unnur Birna
Björnsdóttir og Arnar Jónsson
syngja. Óskar býr einlægum
ástarljóðum Kristínar róman-
tíska umgjörð og er stíllinn
mjúkt fullorðins-popp með
ansi sterkum kántrí-áhrifum.
Hér er vandað til verka; söng-
ur og undirspil er sannfær-
andi, en yfirbragðið kannski
full einhæft og svo mottulegt
á köflum að það nálgast það
að vera lyftutónlist. Sem
betur fer lifnar fólk aðeins
við í lögunum Ég veit ekki
hvenær og Fylgjan, sem eru
tvímælalaust best heppnuðu
lögin. Ljóðin eru góð sem fyrr
svo bæði ljóðaunnendur og
fólk sem fílar rómantískt popp
eru í fínum málum með þessa
plötu.
afsakið / Janúar
/
Þórir Georg
Fjölbreyttur Þórir
Þórir kom með sína fyrstu
sólóplötu árið 2004 og hefur
verið að síðan, meðal annars
undir nafninu My Summer
As A Salvation Soldier og í
tríóinu Ofvitarnir. Nýlega
kom hann með tvö albúm,
sem bera fjölbreytileika
hans gott vitni. Afsakið
er róleg kassagítarplata.
Textarnir eru mikið skamm-
degisþunglyndi, sem Þórir
flytur á einum of vælinn hátt
fyrir minn smekk. Nokkur
góð lög lyfta þessu þó upp
úr algjöru þunglyndi. Janúar
er miklu skemmtilegi plata,
enda meira að gerast í
útsetningunum; trommuheili,
rafgítarar og töff aukahljóð.
Hljóðheimur proto-goths The
Cure er til grundvallar og
trommuheilinn og takmark-
aðir sönghæfileikarnir minna
stundum á Curver á 10.
áratugnum. Margt er flott og
stundum óvænt. Stöffið má
nálgast frítt á netinu: www.
pbppunk.com.
Helgin 16.-18. mars 2012
Ingólfsstræti 3, 2. hæð | 121 Reykjavík | (354) 552 5450 | afs.is
VILTU
SKIPTINEMI?
GERAST
Ef þú ert á aldrinum 15-18 ára er enn möguleiki á að sækja um
skiptinemadvöl með brottför í sumar/haust. Fjöldi landa í boði.
Kynntu þér má
lið nánar!
Opið hús á skrifsto
fu AFS
nk. þriðjudag, 20.
mars frá kl. 17-19.
Allir velkomnir!