Fréttatíminn - 16.03.2012, Blaðsíða 26
Opið kl. 9 -18 • laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is
• Hágæða vatnsþétt LED ljós • Hönnuð fyrir fagmenn
Öflug höfuð- og vasaljós
Verslaðu á vefnum Frí sending að 20 kg 1 árs skilaréttur
H
ún
spurði mig
alltaf hvernig
hún hefði
staðið sig á
sviði eða eftir frumsýningu
kvikmynda. Hún spurði; stóð
mamma sig vel? Leit ég ágæt-
lega út? Já, þú ert flott, full-
komin,“ segir Bobbi Kristina,
dóttir Whitney Houston, að
hún hafi svarað móður sinni.
Þetta ræddi hún í viðtali við
spjallþáttadrottninguna Op-
ruh, um síðustu helgi, mánuði
eftir fráfall móður sinnar.
Beðið hafði verið eftir viðtal-
inu vestanhafs enda það fyrsta
sem Bobbi veitir eftir andlát
móður sinnar. Þar vísaði
Oprah til orða Kevins Costner
við jarðaförina í New Jersey
og spurði: Vissir þú hversu óörugg hún var við tökur kvik-
myndarinnar Bodyguard? Bobbi Kristina svaraði játandi. En
hvað sagði Costner? Jú, hann sagði: „Þrátt fyrir velgengni
sína velti hún því alltaf fyrir sér hvort hún væri nógu góð og
nógu falleg. Mun þeim falla vel við mig? Það var byrðin sem
gerðu hana frábæra og sá þáttur
sem hún hnaut um að lokum.“
Tvö Emmy-verðlaun, sex
Grammy-verðlaun, 30 Billbo-
ard-tónlistarverðlaun og
22 stykki af Amerísku tón-
listaraverðlaununum nægðu
ekki til þess að sannfæra
söngdívuna um ágæti sitt.
Dó drukkin og dópuð
Lágt sjálfsmat. Átti það
sinn þátt í andláti söng-
stjörnunnar? Var það
ástæða þess að hún gat
ekki horft framan í heim-
inn allsgáð heldur leitaði
í læknadóp, fíkniefni um
tíma og drykkju? Hún dó
lyfjuð í baðkari á hóteli eftir
drykkju og djamm í Los
Angeles. Krufning hefur
leitt í ljós að ólíklegt sé að
hún hafi drukknað, til þess
hafi of lítið af vatn verið í
lungum hennar, samkvæmt
vefnum Mail Online.
Bryndís Björk Ásgeirs-
dóttir, lektor í sálfræði
við Háskólann í Reykja-
vík, hefur ekki fylgst náið
með Whitney í gegnum tíð-
ina en segir rannsóknir hafa
sýnt að lágt sjálfsmat sé að vissu
leyti erfðafræðilega ákvarðað en
einnig félagslega mótað.
„Uppeldisárin hafa mikið að
segja um mótun sjálfsmats. Aðbún-
aður, líðan barna, tengsl þeirra
og velgengni í umhverfi sínu eru
grundvallarþættir félagsmótunar-
innar,“ segir hún. „Stúlkur eru mun
líklegri til að hafa lágt sjálfsmat en
strákar. En það kemur ekki fram
fyrr en á unglingsárum og munur
kynjanna helst fram eftir aldri.“
Bryndís segir að það sýni sig
að fólki sem vegnar vel, eins
og Whitney, geti þrátt fyrir
það haft lágt sjálfsmat. „Fólk
getur haft litla trú á sjálfu sér á einu sviði en mikla á öðru.“
Var Bobby orsök eða afleiðing?
En var lágt sjálfsmat Akkilesarhæll Whitneyjar frá upphafi
og ástæða þess að hún valdi hinn ómaklega Bobby Brown
sér við hlið? Eða var það hann sem braut sjálfstraust henn-
ar? Brown skyrpti framan í hana og virti lítils í fimmtán
ára löngu hjónabandi þeirra. Ofbeldið er þó sagt að mestu
hafa verið andlegt en einnig eru sögusagnir um líkamlegt
ofbeldi.
„Áföll og ofbeldi getur haft gríðarlega mikil áhrif á sjálfs-
mynd fólk. Það hefur líka sýnt sig að fólk sem er með hátt
sjálfsmat áður en það verður fyrir áfalli er ólíklegra til þess
að sýna neikvæðar afleiðingar þess en það fólk sem er með
lágt sjálfsmat. Hægt er að brjóta niður sjálfsmat fólks á
hvaða aldri sem er og sama hver bakgrunnur þess er. En
þar er mikill munur á einstaklingum,“ segir hún.
Þau Whitney og Bobby dópuðu og drukku í kór á tíunda
áratugnum, eins og frægt er. Var það vegna skorts á sjálfs-
trausti? „Lágt sjálfsmat getur leitt til vanlíðunar og jafnvel
sjálfsvígshugleiðinga. Þeir sem finna fyrir mikilli vanlíðan
eru líklegri til að sækja í vímuefni,“ segir Bryndís.
Eitt er víst að hægt er að finna fréttir á vefnum þar sem
því er velt upp hvort hún hafi ákveðið að taka eigið líf. Nið-
urstaða krufningarinnar er jú læknadóp og drykkja.
Örlög Bobbi Kristinu í beinni
En hver eru eftirköstin af því að eiga svona foreldra eins og
Bobby og Whitney? Og búa við allar þessar öfgar og standa
núna átján, að verða nítján ára, uppi móðurlaus eins og
Bobbi Kristina. „Það að búa við langvarandi ofbeldi á heim-
ili er mjög mikill áhættuþáttur. Þótt það sé unglingum og
ungu fólki afar þungbært að missa foreldra hafa rannsóknir
sýnt að það að búa við langvarandi ofbeldi hefur jafnvel enn
verri afleiðingar. Ofbeldi af hendi náins ættingja er með því
versta sem fólk lendir í.“
Bobbi Kristina sagði frá því í viðtalinu við Opruh að hún
hyggðist halda arfleið móður sinnar á lífi.
Jafnvel syngja opinberlega. Umheimurinn
mun því vart fara á mis við örlög hennar og
hvort áhyggjur fjölskyldunnar sem sögð er
óttast um líf hennar séu á rökum reistar;
og hvort sem verður undir nafninu
Bobbi Kristina Brown eða Kristina
Houston, eins og hún er nú sögð
íhuga að kalla sig.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Whitney Houston barðist við
marga djöfla; áfengi, kókaín,
marijúana og Bobby Brown.
Erfiðasta baráttan var
hugsanlega sú sem hún
háði innra með sér. Hún
barðist við spurningarnar:
Er ég nógu góð? Er ég nógu
falleg? Mun þeim
líka vel við mig?
Vinur hennar Kevin
Costner segir lágt
sjálfsmatið það
sem gerði hana
frábæra en einnig
það sem felldi
hana að lokum.
Gunnhildur
Arna Gunnars-
dóttir skoðar
sjálfsmynd
Whitneyjar og
ástæður slíks
með Bryndísi
Björk Ás-
geirsdóttur,
lektor í sál-
fræði.
Whitney Houston
og lífsbaráttan
Demi Moore óttast mest að vera ekki verðug ástar
Kvikmyndaleikkonan Demi Moore
sýndi hugrekki þegar hún sagði
frá litlu sjálfsmati sínu á stundum
í febrúarhefti tímaritsins Harper’s
Bazaar. Það er mat þeirra Seth
Meyers, sálfræðings í geðheil-
brigðisstofnun í Los Angeles, og
Katie Gilbert rithöfundar sem settu
saman grein um stjörnur og lágt
sjálfsmat og birtu á vefnum Psycho-
logy Today í janúar.
Demi segir þar að hún óttist að
hún finni út á endanum að hún sé
í raun ekki indæl í augum fólk, og
hafi ekki verið verðug þess að vera
elskuð. „Að eitthvað sé í grundvall-
aratriðum rangt við mig [...] og að
enginn vildi hafa neitt með mig að
gera á þeim stað þar sem ég er.“ Þau
Meyers og Gilbert segja að þótt það
komi hugsanlega mörgum á óvart
hversu óörugg og örvæntingafull
hún sé miðað við alla þá velgengni
sem hún hafi notið séu slíkar hugs-
anir alls ekki óalgengar.
Þau segja ótta og óöryggi stór-
stjarna einmitt oft öfgafyllri en
almennings enda sé líf þeirra það
einnig. Þau séu fram úr hófi falleg,
ótrúlega rík og lifi rússibana-lífi
fyrir framan myndavélar. Og þar
sem líf þeirra sé í sviðsljósinu nær-
ist stjörnurnar á skoðunum annarra.
Finna má umfjöllun um margar
stjörnur og lágt sjálfsálit þeirra á
vefnum; jafnvel óskemmtilega lista
þar sem þeim er raðað upp eftir
því hver hafi mestu sjálfseyðingar-
hvötina eða minnsta sjálfsálitið. Þær
stjörnur sem helst eru nefndar eru
Johnny Depp og Angelina Jolie. Þá
má lesa greinar um stjörnur sem
hafa talað um lágt sjálfsálit sitt,
svo sem Halle Berry. Þá má velta
því fyrir sér hvort stjörnur eins og
Pete Doherty og Courtney Love,
ekkja rokkarans Kurt Cobains séu
í hópi þeirra sem geti illa höndlað
sjálft sig. Sjálfur réði Cobain illa
við frægðina, vildi hana ekki þótt
hann vildi velgengnina, eins og haft
var eftir honum á einum miðlinum.
Hann sagðist hafa lágt sjálfsmat, var
þunglyndur og háður heróíni. Og
hann dó; tók líf sitt með haglabyssu
fyrir átján árum.
Whitney Houston og dóttir hennar og lifandi eftirmynd
föður síns Bobby Brown; Bobbi Kristina Houston Brown.
Myndin er tekin fyrir ári. Mynd/gettyimages
Ævi Marilyn Monroe var eins og ein rússíbanaferð. Hún er oft
nefnd sem stjarna sem hafði litla trú á sér, þrátt fyrir að vera ein af
kynþokkafyllstu konum heims. Hún lést ung rétt eins og Whitney.
26 frægð Helgin 16.-18. mars 2012