Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.03.2012, Blaðsíða 52

Fréttatíminn - 16.03.2012, Blaðsíða 52
14 viðhald húsa Helgin 16.-18. mars 2012 E kki er til nein einhlít regla um það. Verk eru mis- munandi og aðstæður sömuleiðis. Í fjöl- eignarhúsum þarf að liggja fyrir lögleg ákvörð- um. Þegar hún er komin, er rétt að fá hlutlausan sér- fræðing til að meta ástand hússins og viðgerðarþörf. Í því ástandsmati felst yfirleitt gróf lýsing á ástandi ásamt sundur- liðun verkliða með áætluðum magntölum. Húseigendur eru hvattir til að snúa sér til tækni- manna og fyrirtækja sem framkvæma slíkt mat en framkvæma þau ekki sjálfir eða fá fúskara til þess. Sé um minni verk að ræða er hægt að óska eftir tilboðum frá verktaka, byggðum á magntölum og verklýsingu samkvæmt ástandsmati. Við stærri verk eru úttektaraðilarnir jafnan fegnir til að full- gera útboðs- og verklýsingu og standa að útboði. Mikilvægt er fyrir eigendur að gæta þess að viður- kenndir meistarar standi fyrir viðhaldsverkum þar sem slík verk eru oft mjög vandasöm. Þá er ekki síður mikilvægt að leitað sé til hæfra ráðgjafa er hafi næga þekkingu til úttekta. Samið við verktaka Að velja verktaka er ekki auðvelt verk. Þannig er alls ekki víst að sá sem býður lægst sé með hag- stæðasta boðið þegar upp er staðið. Líta þarf til fleiri atriða svo sem hvort verktaki hafi fullnægj- andi fagréttindi, hvort af honum fari gott orðspor og hvort hann virðist fjárhagslega burðugur til að ljúka verki. Þegar verktaki hefur verið valinn er gengið til samninga við hann. Seint verður nægjanlega brýnt fyrir fólki mikilvægi þess að gera skriflegan samning við verktaka hvort sem er um lítil eða stór verk að ræða. Allt of algengt er að enginn skriflegur samningur er gerður eða að ekki sé vandað til samningsgerðar að öðru leyti. Skapar það hættu á óþarfa ágreiningi og deilum síðar meir um atriði sem hæglega hefði mátt koma í veg fyrir með skýrum og ítarlegum samnings- ákvæðum. Mikilvægt er að í verksamningi sé að finna sem ítarlegustu ákvæði um verkkaup og greiðslutilhögun þess, verktímann og framvindu verksins og síðast en ekki síst hvaða verkþætti verktaki eigi að inna af hendi. Þá er ýmist hægt að byggja á verklýsingu ástandsskýrslu sem aflað hefur verið eða á verklýsingu sem sett hefur verið fram í tilboði verktaka. Óljós eða rýr verksamn- ingur skapar hættu á að ágreiningur rísi um hvaða verkþættir samningur tók til og þá jafnframt að verktaki áskilji sér hærri greiðslur fyrir verkið en upphaflega var samið um þar sem hann hafi þurft að vinna við fleiri verkþætti en til stóð. Getur fasteignareigandi verið í óþægilegri stöðu þar sem verkið er þá ef til vill langt á veg komið. Lög um þjónustukaup Ákvæði laga um þjónustukaup, sem gilda í sam- skiptum eigenda íbúðarhúsnæðis og verktaka geta þá komið til skoðunar. Þar er svo mælt fyrir að verktaki eigi ekki að vinna önnur verk en samning- ur kveður á um. Ef í ljós kemur þegar verk er unnið að eðlilegt sé að vinna önnur verk til viðbótar þeim sem samið var um ber verktaka að tilkynna fast- eignareiganda þar um og óska eftir fyrirmælum hans. Geri hann það ekki getur hann ekki áskilið sér rétt til aukagreiðslna vegna þeirra verkþátta. Hafi verið samið um fast verð í verksamningi getur verktaki almennt ekki við uppgjör krafist hærri fjár- hæða en upphaflega var samið, nema hann hafi unnið fleiri verkliði en verk- samningur hljóðaði um með samþykki viðsemj- anda síns, enda verða verktakar eins og aðrir að standa og falla með því verði sem þeir bjóða í samningum. Svartir sauðir Í þessum geira eða bransa eru því miður margir svartir sauðir sem oft hafa enga eða takmarkaða fagþekkingu á viðgerðum. Þessir aðilar bjóða gjarnan töfralausnir, bæði í efnum og aðferðum. Húseigendur þurfa að varast þessa aðila. Yfir- leitt stenst fátt og enginn verksamningur gerður og jafnvel um vinnu að ræða án reiknings, sem er ekki eingöngu ólöglegt heldur stórvarasamt. Án fullgilds reiknings hefur húseigandi ekkert í höndunum sem sannar hvað var gert eða að við- eigandi verktaki hafi yfirleitt komið nálægt verki og húsinu. Reikningslaus viðskipti eru lögbrot og stórvarasöm Því miður eru töluverð brögð að reikningslausum viðskiptum og virðast sumir húseigendur telja sig spara á því. Rétt er að ítreka að yfirleitt ofmetur verkkaupi hag sinn í þeim viðskiptum. Verkkaupi stendur eftir án nokkurs eða veikburða réttar gagnvart verktaka og ábyrgð á verki er engin. Einnig er mikilvægt að benda á að virðisaukaskatt- ur fæst aðeins endurgreiddur af vinnu við nýsmíði, endurbætur og viðgerðir á húsnæði, ef reikningar frá verktaka eru fullgildir. Forðist fúskara – vandið val verktaka Húseigendum er rétt að forðast eins og heitan eld- inn að eiga viðskipti við aðila sem ekki hafa full- nægjandi fagréttindi og réttindi til að starfrækja fyrirtæki. Að velja verktaka er ekki auðvelt verk. Alls ekki er víst að sá sem býður lægst sé með hag- stæðasta tilboðið. Notar hann rétt efni? Er hann vandaður og traustur? Má treysta því að hann hafi fjárhagslegt bolmagn til að ljúka verkinu? Er hann með langan skuldahala á eftir sér? Afla þarf upp- lýsinga um þessi atriði þegar verktaki er valinn. Skoða ber alla þætti sem þýðingu geta haft en ekki bara einblína á tilboðsfjárhæðina. Það er hægur- inn fyrir ábyrgðarlausa fúskara að bjóða lágt og lofa miklu. Um það vitna sorglega mörg dæmi. Aðkoma byggingarfulltrúa Vegna steypuviðgerða, sem hafa í för með sér niðurbrot og endurgerð hluta burðarvirkja, klæðn- inga og gluggaskipta verður að afla bygginga- leyfis. Ef fyrirhugaðar eru viðgerðir á sprungum og múr nægir að tilkynna það til byggingafulltrúa með skriflegri greinagerð um eðli verksins, hver Heilræði fyrir undirbúning framkvæmda Gátlistinn 1. Fá hlutlausan sér- fræðing til að meta ástand eignarinnar og viðgerðaþörf 2. Við minni verk er hægt að óska eftir tilboðum frá verktökum byggðum á magntölum og verklýs- ingu – við stærri verk fer yfirleitt fram útboð 3. Meta þarf tilboðin í sam- hengi við útboðsgögnin, heildarverð, einingaverð, uppsetningu tilboðsins og verktíma 4. Þegar ákveðið hefur verið hvaða tilboði skal taka, er gengið til samn- inga við viðkomandi verktaka. Seint verður nægjanlega brýnt fyrir fólki mikilvægi þess að gera skriflegan samning við verktaka hvort sem er um lítil eða stór verk að ræða 5. Eftirlit með framkvæmd þarf að vera í vel skil- greint og föstum farvegi og oft er ráðinn til þess óháður aðili 6. Lokauppgjör fer fram eftir að verki telst lokið – mikilvægt er að taka út framkvæmdina og frágang á verkinu áður en lokagreiðsla fer fram Góður undirbúningur í hvívetna er mjög mikilvægur og einnig það að velja góðan og ábyrgan verktaka. Of mörg dæmi eru um viðhaldsframkvæmdir sem farið hafa illa af stað og endað illa og í flestum tilfellum er um að kenna slælegum undirbúningi og einnig röngu vali á verktökum. Það skammgóður vermir að spara á undirbúningsstiginu. Þar er grunnurinn lagður og ef hann er veikur þá er ekki við góðu að búast. hafi með því eftirlit og sjái um framkvæmd þess. Þess er krafist að iðnmeistarar standi fyrir framkvæmdum slíkra viðhaldsverkum. Þeir skulu hafa sérþekkingu á viðhalds- vinnu og árita yfirlýsingu hjá byggingafull- trúa um ábyrgð sína. Uppgjör – úttekt – eftirmál Í minni verkum er oft svo um samið að fasteignareigandi inni verkkaup af hendi í einni greiðslu þegar verki er lokið. Í stærri verkum tíðkast það hins vegar að greitt er eftir framvindu verksins. Þá er nauðsynlegt að fasteignareigandi fylgist sem best með framvindu verksins og að reikningar verk- taka séu sundurliðaðir og skýrir. Í þessu sambandi er rétt að benda á að virðisauka- skattur af vinnulið verktaka við viðhald fæst endurgreiddur hjá skattyfirvöldum ef fram- vísað er fullgildum reikningum. Lokaupp- gjör á síðan að fara fram eftir að verki telst lokið. Mikilvægt er að taka út framkvæmd- ina og frágang á verkinu áður en loka- greiðsla fer fram. Komi þá fram við skoðun að verk er að einhverju leyti gallað getur fasteignareigandi skorað á verktaka að bæta úr og ljúka verkinu á fullnægjandi hátt. Gallar Jafnvel þótt fasteignareigandi eða eftirlits- aðili á hans vegum hafi tekið verkið út ná- kvæmlega við verklok geta síðar komið í ljós gallar á verkinu. Lög mæla svo fyrir um að fasteignareigandi skuli í síðasta lagi tveim- ur árum eftir að verki lauk að hafa uppi athugasemdir um galla því eftir þann tíma er réttur hans til að bera þá fyrir sig fallinn niður. Réttur til að bera fyrir sig galla á verki getur þó fallið niður fyrr þar sem lög áskilja að verktaka sé tilkynnt án verulegs dráttar um gallanna eftir að fasteignareig- andi varð þeirra var. Tryggilegast er að hafa uppi slíkar athugasemdir skriflega. -shg Mikilvægt er að benda á að virðisaukaskattur fæst aðeins endurgreiddur af vinnu við nýsmíði, endurbætur og við- gerðir á húsnæði, ef reikning- ar frá verktaka eru fullgildir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.