Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.03.2012, Blaðsíða 82

Fréttatíminn - 16.03.2012, Blaðsíða 82
62 bíó Helgin 16.-18. mars 2012  Bíó Paradís Þýskir dagar Bíó Paradísin í gamla Regn- boganum við Hverfisgötu er sannkölluð vin í ameríkanseraðri eyðimörk íslensks kvikmyndalands- lags og þar má jafnan ganga að einhverju fersku sem er úr takti við meginstraum- inn. Dagarnir 16. til 25. mars verða þýskir í bíóinu en þá verður boðið upp á sjö nýjar þýskar bíómyndir sem fjalla á ein- hvern hátt um fjölskylduna. Myndirnar eru sýndar með enskum texta. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is bíó Svefnleysi, framhjáhald og önnur fjölskylduvandræði Þ ýsku kvikmyndadagarnir hefjast á myndinni Almanya – Willkommen in Deutschland (Almanya – Velkom­ in til Þýskalands). Myndin er eftir Yasemin Samdereli og er hressileg gamanmynd um tyrkneska fjölskyldu í Þýskalandi. Hinir myndirnar sex koma meðal annars inn á sjúkdóma, hjónalíf, framhjáhöld, uppreisn­ arþörf og tvikynhneigð. Í Almanya – Willkommen in Deutsch­ land segir frá Hüseyin Yilmaz, tyrknesk­ um „gestaverkamanni“ sem búið hefur í Þýskalandi í 45 ár. Áform hans um að flytja aftur til Tyrklands falla í grýttan jarðveg hjá fjölskyldunni, deilur spretta upp og ýmis vandamál og leyndarmál koma upp á yfirborðið. Barnabarn Yilmaz, Canan, reynir að útskýra fyrir litlum frænda sínum hvers vegna þau séu í Þýskalandi og þau halda í huganum í ferðalag aftur í tíma til undursamlegs lands þar sem ljóshærðir risar búa, þar sem farið er með stórar rottur í göngutúra, þar sem vatnið kallast Coca­Cola og fólkið tilbiður litla tréstyttu á krossi og allir tala hrognamál – lands sem kallað er Almanya. Halt auf freier Strecke (Milli vita) fjallar um dauðvona mann sem yfirgefur eigin­ konu sína, börn, foreldra, vini og nágranna og stendur frammi fyrir því að þurfa að kveðja lífið. Hann áttar sig á því að kannski er ekki gott að standa einn þegar maður mætir dauðanum. Myndin hlaut aðalverð­ launin í Un Certain Regard flokknum á Cannes í fyrra og verðlaun þýskra gagn­ rýnenda á Berlínarhátíðinni í febrúar. Í Mahler auf der Couch (Mahler á legubekknum) hefur tónskáldið Gustav Mahler hefur verið giftur Ölmu sinni í tíu ár en dauði eins barns þeirra og bann Mahlers við tónsköpun konu sinnar hefur tekið sinn toll. Alma kynnist hinum unga og efnilega arkitekt Walter Gropius og verður ástfangin af honum. Í örvæntingu sinni leitar Mahler til Sigmund Freud um hollráð. Roland og Svenja hittast á listasýningu og hrífast af hvort öðru í Unter dir die Stadt (Borgin neðra). Aðstæður leyfa þó ekki nánari kynni þar sem bæði eru gift. Nokkrum dögum síðar rekast þau á hvort annað fyrir tilviljun. Þau daðra yfir kaffibolla og enda á hótelher­ bergi þar sem Svenja fær sig ekki til að fara alla leið. Schlafkrankheit (Andvaka) fjallar um Ebbo og Veru sem hafa búið í Kamerún í mörg ár. Ebbo fæst við rannsóknir á svefn­ leysi og er ánægður með hlutskipti sitt, ólíkt Veru sem hefur ekki náð að tengjast samfélaginu og saknar dóttur sinnar Helen sem er í heimavistarskóla í Þýskalandi. Ebbo verður að gefa frá sér starf sitt í Afr­ íku eða missa konurnar í lífi sínu. Þrenning (Drei) er gamandrama um par á fimmtugsaldri sem verður ástfangið, sitt í hvoru lagi, af sama manninum þannig að mikil leynimakk fer af stað sem flækist til muna þegar konan verður ólétt. Wer wenn nicht wir? (Hverjir ef ekki við?) byggir á áhrifamiklum sönnum atburðum á átakatíma. Í upphjafi sjöunda áratugsins hefja háskólanemarnir Gudrun Ensslin og Bernward Vesper ástríðufullt samband í hinu þrúgandi andrúmslofti Vestur­Þýskalands eftirstríðsáranna. Þau skynja að veröldin er í hröðu breytingar­ ferli og hefja baráttu gegn meðvirkninni og afneituninni allt í kringum þau. Fjölskylda Yasemin Samdereli kærir sig ekki um að hverfa frá Þýskalandi aftur til Tyrklands og áform ættföðurins um land- flutninga valda ýmsum vandræðum og illdeilum. W.E. Poppdrottningin Madonna tekur hér á einu umtalaðasta ástarsambandi síðustu aldar sem varð til þess að breski ríkis- arfinn Játvarður afsalaði sér konungs- tign til þess að geta verið með og kvænst hinni fráskildu, bandarísku Wallis Simpson – sem var vitaskuld óásættanlegt drottningarefni. Þessi ákvörðun prinsins varð til þess að yngri bróðir hans mátti standa sveittur og stamandi fyrir framan hljóðnema BBC í aðdragana heimsstyrjald- arinnar síðari eins og frægt er orðið eftir The Kinǵ s Speech. Hér tekur sjálf Madonna söguna sínum tökum, leikstýrir og tekur þátt í handritsskrifum. Aðrir miðlar: Imdb: 4.6, Metacritic: 36% Act of Valor Myndin fjallar um sérsveitarmenn sem fá það verkefni að frelsa CIA- starfsmann úr klóm mannræningja. Í framhaldinu komast þeir á snoðir um hryðjuverkahóp sem ætlar sér að gera mannskæða hryðjuverkaárás í Bandaríkjunum. Rannsókn málsins fer á fullan skrið og áhorfendur þvælast með sérsveitinni um víða veröld í þeim tilgangi að uppræta hreiður hryðjuverkamanna. Aðrir miðlar: Imdb: 6.6, Rotten Tomatoes: 29%, Metacritic: 42%  Frumsýndar Leikstjóranum Todd Philips hefur gengið vel að gera sér ofdrykkju og fyll- erísrugl að féþúfu. Hann leikstýrði hinni kostulegu gamanmynd The Hangover, reyndi síðan, með slæmum árangri, að kreista aðeins meira út úr sama brandaranum með The Hangover II en það tiltæki var ekki eins vel heppnað. Philips hefur þó ekki gefist upp á sukki og svínaríi því hann framleiðir Project X sem fjallar að vísu ekki um eftirköst brjálaðs fyllerís heldur djöfulganginn sem er undanfari timburmanna. Thomas Mann ákveður ásamt félögum sínum, J.B. og Costa, að fagna afmæli sínu með rosalegu partíi sem er ekki síst ætlað að rétta félagslega stöðu vinanna í skólanum. Þeir leggja heimili auðugra foreldra Thomasar undir her- legheitin og fyrr en varir fer allt úr böndunum. Miklu fleiri mæta en var boðið, þar á meðal dópsali sem telur sig eiga óuppgerðar sakir við félagana. Hverfið allt verður skyndilega að vígvelli og ekkert minna en víkingasveit lögreglunnar dugir til þess að reyna að koma böndum á partítrylltan lýðinn. Aðrir miðlar: Imdb: 6.2, Rotten Tomatoes: 25%, Metacritic: 48% Sturlað partí Rithöfundurinn Edgar Rice Burroughs er langþekktastur fyrir sögur sínar um Tarzan apabróður en hann var þó ekki jafn jarðbundinn rithöfundur og Tarzan gefur til kynna; þegar Burroughs skrifaði vísinda­ skáldskap sinn um kappann John Carter var hann víðsfjarri frumskógum Afríku þar sem Carter rataði í ævintýri á rauðu reiki­ stjörnunni Mars. John Carter flyst með undarlegum hætti úr helli í Arizona árið 1868 til Mars þar sem hann lendir milli steins og sleggju í átökum stríðandi fylkinga á reikisstjörnunni. Carter er svosem ekkert átakanlega illa undir slíkt brölt búinn þar sem hann barðist í Þrælastríðinu heima á Jörð og þannig klappaður í hetjuhlutverkið sem honum virðist ætlað á Mars. Burroughs kynnti Carter til leiks fyrir einni öld þannig að hann hefur heldur betur tekið sér tíma í að koma sér á hvíta tjaldið. Í millitíðinni hafa frumlegustu og nýstárlegustu hugmyndir Burroughs verið notaðar í fjöldanum öllum að geim­ og ævin­ týramyndum og má í því sambandi nefna Hvell­Geira, Stjörnustríð, Dune og sjálfan Súpermann. Sagan og allt húllumhæið á Mars er því býsna kunnuglegt en allt er þetta samt nógu smart og töff og tæknilega vel unnið til þess að það er engin sérstök eyðimerkur­ ganga að fylgjast með Carter í um það bil tvo tíma. Sagan er samt dálítið beygluð og nær ein­ hvern veginn ekki að tæla áhorfandann til þess að tapa stund og stað yfir ævintýrinu. Tæknibrellunum og hasarnum var ef til vill ætlað að breiða yfir hnökra sögunnar og sú tilraun gengur ágætlega en maður tekur ekkert með sér heim frá þessari mynd þótt hún standist kröfur til tyggjókúlusumar­ smella vel. Þórarinn Þórarinsson  Bíódómur John Carter  Gamalt stef við kunnugleg tilbrigði TILBOÐ á 1 lítra Kókómjólk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.