Læknablaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 8
164
LÆKNABLAÐIÐ
4. Kosning stjórnar og meðstjórnenda. For-
mann, ritara og gjaldkera skal kjósa sér-
staklega, en 2 meðstjórnendur má kjósa
í einu lagi. Kosning skal vera skrifleg, ef
koma fram fleiri tillögur um menn en
kjósa skal, eða ef einhver fundarmanna
óskar þess.
5. Kosnir 2 endurskoðendur reikninga félags-
ins.
6. Stefnuskrá næsta starfsárs.
7. Lagabreytingar.
8. Önnur mál.
6. gr.
Stjórn
Stjórn félagsins skipa 5 menn, formaður,
ritari, gjaldkeri og 2 meðstjórnendur, skulu
þeir kosnir á aðalfundi til eins árs í senn.
Stjórnarfundir eru ályktunarfærir, ef 3 eða
fleiri úr stjórn mæta.
7. gr.
VerksviS stjórnar
Stjórn félagsins fer með málefni milli aðal-
funda og skal hún fylgjast náið með öllu er
varðar starfsaðstöðu félagsmanna, menntunar-
og kjaramál. Ritari skal skrá fundargerð allra
stjórnarfunda. Stjórnin getur skipað nefndir
til að vinna að sérstökum verkefnum milli
aðalfunda.
8. gr.
Félagsfundir
Félagið heldur 2 almenna fundi hið minnsta
á tímabilinu október—apríl, og auk þess fundi
þegar að stjórnin telur þess þörf eða ef 10
félagsmenn hið minnsta krefjast fundar. Fundi
skal boða með dagskrá með viku fyrirvara.
Fundur er ályktunarfær ef 1/5 gjaldskyldra
félaga er viðstaddur. Nú reynist fundur ekki
ályktunarfær og má þá boða til aukafundar
um sömu mál, þann fund má eigi halda fyrr
en að viku liðinni, nema sérstaklega standi á,
og er sá fundur ætíð ályktunarbær sé löglega
til hans boðað. Afl atkvæða ræður úrslitum
mála á fundum félagsins, séu atkvæði jöfn sker
atkvæði formanns úr. Þegar greidd eru at-
kvæði um tillögu eða ábendingar varðandi
kjarasamninga hafa þeir einir atkvæðisrétt,
sem aðilar eru að samningagerð. Halda skal
fundargerðarbók um alla félagsfundi.
9. gr.
Vantraust
Óski félagsmaður að bera fram vantraust á
stjórnina skal það gert skriflega og undirritað
af fjórðungi gjaldskyldra félaga hið minnsta.
Stjórninni er skylt að taka vantraustið fyrir á
félagsfundi innan þriggja vikna og sé til hans
boðað skriflega með dagskrá.
10. gr.
Lagabreyt ingar
Lögum þessum má aðeins breyta á aðal-
fundi, enda hafi breytingatillögur fylgt fundar-
boði. Tillögur um lagabreytingar frá félags-
mönnum skulu hafa borist félagsstjórn a.m.k. 2
vikum fyrir aðalfund. Lagabreytingar verða
lögmætar ef aðalfundur er lögmætur og a.m.k.
2/3 fundarmanna greiða þeim atkvæði.
StefnuskYá skv. 3. gr. félagslaga
Félagið vinnur að eflingu sérfræðiþjónustu
meðal annars á eftirfarandi hátt:
a) Með því að vinna að bættri starfsaðstöðu
sérfræðinga varðandi húsnæði, tæki og að-
stoðarfólk. Það hefur og gát á öðrum kjara-
atriðum, svo sem vinnutima, greiðslum fyrir
störf o.fl.
b) Með því að efla samvinnu sérfræðinga og
stuðla að sem bestri viðhaldsmenntun
þeirra.
c) Með þvi að efla skipulag sérfræðiþjónustu
þannig að hún komi að sem bestum notum
fyrir sjúklinga og samrýnist vel þörfum
þeirra hvar sem er á landinu.
d) Með því að greiða fyrir framgangi nýjunga
á sem flestum sviðum sérfræðiþjónustu.
e) Með þ\i að gera tillögur um kannanir á
starfsaðstöðu og kjörum sérfræðinga, skipu-
lagi og rekstri sjúkrahúsa og leggja fram
tillögur um breytingar á samningum við
samninganefndir L.l. og L.R.
f) Með því að vera ráðgefandi aðili á sem
flestum sviðum varðandi sérfræðiþjónustu
fyrir stjórn Læknafélags Islands og stjórnir
annarra læknasamtaka eftir því sem við á
og henta þykir.