Læknablaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 65
LÆKNABLAÐIÐ
201
Þvínæst voru kosnir embættismenn félags-
ins:
MeÖstjórn: Varamenn:
Geir Gunnlaugsson Guðmundur I. Eyjólfss.
Jón Högnason Ingóifur S. Sveinsson
Jón Þ. Hallgrímsson Tryggvi Þorsteinsson
Lára Halla Maack
Leifur Dungal
Tryggvi Ásmundsson
Fulltrúar á aðalfund L.í.
Fastir fulltrúar: Varamenn:
Guðm. H. Þórðarson Ásgeir B. Ellertsson
Haukur S. Magnúss. Haraldur Dungal
Tómas Jónsson Jón Þ. Hallgrímsson
Víkingur H. Arnórss. Leifur Dungal
Örn Smári Arnaldss. Magnús Karl Pétursson
Kosnir: Varamenn:
Árni Kristinsson Eyjólfur Haraldsson
Geir Gunnlaugsson Halldór Jóhannsson
Sigurður B. Þorsteinss. Ingólfur S. Sveinsson
Tryggvi Ásmundsson Jón Högnason
Viðar Hjartarson Ólafur Örn Arnarson
Endurskoöendur:
Magnús Ólafsson
Þorgeir Gestsson
Lagðir voru fram reikningar Lœknablaösins
1977, reikningar Styrktarsjóðs lœkna 1977,
NámssjóÖs lækna 1976 og Lífeyrissjóðs Jœkna
1976. Engar athugasemdir komu fram við þessa
reikninga.
Formaður lagði fram breytingartillögu
stjórnar L.R. viö lög félagsins. Þann 14. febrúar
1979 hafði eftirfarandi breytingartillaga verið
kynnt:
„10. grein. Upphaf greinarinnar orðist svo:
Félagið heldur fundi um félagsleg málefni að
jafnaði tvisvar á ári, en auk þess, þegar stjórn-
in telur þess þörf eða ef 10 félagsmenn óska
þess.“
Formaður lagði til, að tillögunni væri breytt,
og hún hljóðaði svo:
„Félagið heldur fundi um félagsleg málefni
að jafnaði tvisvar á ári, og skal annar þeirra
œtíð lialdinn í febrúar, en auk þess, þegar
stjórnin telur þess þörf eða ef 10 félagsmenn
óska þess.“
Rökin fyrir innskotinu sagði formaður vera
þau, að næsti fundur á undan aðalfundi, yrði
að vera skömmu fyrir aðalfund, vegna þess að
þar ætti að kynna tillögur til lagabreytinga og
tillögur um menn i stjórn og fulltrúa á aðal-
fund L.I., svo og endurskoðendur. Væri óeðli-
legt, að slíkur fundur færi fram löngu fyrir
aðalfund. Fundarmenn féllust á rök formanns.
I umræðum um þessa tillögu kom fram, að
eðlilegast var talið, að Fræðslunefnd annaðist
alla fræðslufundi félagsins, en ekki stjórnin.
Það sjónarmið kom fram, að semja þyrfti
starfsreglur fyrir Fræðslunefnd, til þess að
reyna að tryggja það, að starf hennar yrði
áfram jafn þróttmikið og það hefði verið að
undanförnu.
Ekki var hægt að afgreiða ofangreinda til-
lögu, þar sem fundurinn var ekki lögmætur.
Þá kynnti formaður störf nefndar þeirrar,
sem skipuð var til að gera úttekt á rekstri
skrifstofu lœknasamtakanna og kanna banka-
viðskiptakjör lækna og Tœknasamtakanna. 1
nefndinni eru:
Örn Smári, Guðmundur Sigurðsson, Páll
Þórðarson og Guðjón Eyjólfsson. Sagði ræðu-
maður, að lokið væri útreikningi á hinum ýmsu
starfsliðum á skrifstofunni. Yrði væntanlega
samin skýrsla um störf nefndarinnar og send
stjórnum læknasamtakanna bráðlega.
Þá upplýsti hann, að nefndin hefði átt við-
ræður við bankastjóra þriggja banka, Búnaðar-
bankans, Landsbankans og Sparisjóðs Reykja-
vikur og nágrennis, og spurst fyrir um, hvaða
viðskiptakjör þeir byðu læknum, sem við þá
skiptu. Væri von á skriflegum fundargerðum
frá þessum viðræðum, sem mundu jafngilda
samkomulagi. Var í þvi sambandi rætt um
vexti af ávísanareikningum, lánafyrirgreiðslur
út á fasteignir o.s.frv.
Formaður tók sérstaklega til umræðu bygg-
ingarmál Domus Medica. kynnti hann undir-
búningsaðgerðir viðbyggingar við austurálmu
Domus Medica, þar sem læknasamtökin fá auk-
ið húsrými fyrir skrifstofu sina. Formaður
ræddi um fjármögnun þessara framkvæmda og
benti á, að læknasamtökin, sem slík, ættu enga
sjóði, en hins vegar væri sá möguleiki fyrir
hendi. að leita til Lífeyrissjóðs og Námssjóðs
lækna um fyrirgreiðslu í einni eða annarri
mynd. Urðu um þetta nokkrar umræður. Var
m.a. bent á, að Námssjóður ætti orðið tugi
milljóna, sem engin fyrirmæli voru um, hvern-
ig skyldi ráðstafa.
Formaður bar fram eftirfarandi ályktunar-
tillögu:
„Aðalfundur L.R. haldinn I Domus Medica 14.
marz 1979 ályktar að fela stjórn L.R. að hefja
sem fyrst framkvæmdir við fyrirhugaða við-
bótarbyggingu við Domus Medica."
Tillagan var samþykkt samhljóða.
Formaður ræddi um Styrktarsjóö lækna.
Taldi hann, að sjóð þennan bæri að leggja
niður, þar sem augljóst væri, að hann þjónaði
ekki sínum upphaflega tilgangi, þ.e.a.s. að vera
verkfallssjóður lækna, til þess væri hann of
veikur fjárhagslega. Auk þess væru ekki mikl-
ar iíkur til, að læknar þyrftu á slikum sjóði
að halda, þar sem þeir myndu seint gripa til
verkfalla. Lagði hann fram eftirfarandi tillögu
frá Erni Smára Arnaldssyni og Magnúsi Karli
Péturssyni:
„Aðalfundur L.R. 1979 leggur til, að Styrkt-
arsjóður lækna verði lagður niður.“
Var hún samþykkt samhljóða.
Þar sem fundurinn var ekki lögmœtur, var
ekki um endanlega afgreiðslu ályktunartillagn-
anna að ræða, þó að kannaður hafi verið vilji
fundarmanna til þeirra.
Að þvi búnu sleit formaður fundi.
Fundarmenn voru alls 22.
Guðmundur H. Þórðarson
ritari.