Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 75

Læknablaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 75
LÆKNABLAÐIÐ 209 Lagt er til, að skipað verði fræðsluráð L.í. til ráðuneytis fjölmiðlum, félagasamtökum og öðrum. Ráðið skal fylgjast með heil- brigðisfræðslu í fjölmiðlum og hafa frum- kvæði að sérstökum verkefnum í samvinnu við sérgreina- og áhugamannafélög. Stjórn L.í. sendi tillögu þessa til Námskeiðs- og fræðslunefndar L.í. og allra svæðaféaga. Jákvæð svör hafa borizt frá Fræðslunefnd og einu svæðafélagi, en F.Í.L.B. er að nokkru ósammála niðurstöðum starfshóps- ins. Auk þess hefur komið frá 2 læknum tillaga um tekjustofn til að standa undir almenningsfræðslu. Stjórn L.f. telur, að þess sé full þörf, að læknar komi til móts við vaxandi áhuga almennings og taki virkan þátt í fræðslu um heilbrigðismál, og mun taka þetta mál inn á dagskrá aðal- fundar til umræðu. LÆKNABLAÐIÐ í nýlegri ritstjórnargrein (Lbl. 2. tbl. 1979) er gerð allítarleg grein fyrir málefn- um Læknablaðsins. Stjórn L.í. vill enn ítreka tilmæli, sem hún setti fram í síð- ustu ársskýrslu og fram komu í ritstjórn- argreininni um, að læknar notfæri sér styttri biðtíma greina og sendi blaðinu bréf, athugasemdir og uppástungur um félagsleg málefni. Nefndir og stjórnir svæðafélaga eru hvattar til að senda blað- inu skýrslur sínar og fregnir af störfum. Til viðbótar þeim upplýsingum, sem felast í nefndri ritstjórnargrein, hefur Örn Bjarnason ritað eftirfarandi skýrslu: „A sl. sumri var haldinn á Akureyri fundur ritstjóra og framkvæmdastjóra nor- rænna læknatímarita. Var þar gerð grein fyrir ýmsum vandamálum Læknablaðsins, og voru þau rædd með hliðsjón af þróun mála á hinum Norðurlöndunum. í þeim umræðum kom fram, að Danir hafa að undanförnu verið að endurskipuleggja út- gáfustarfsemi sína, og buðust þeir til þess að kanna, hvort mögulegt væri að þeir gætu veitt okkur tæknilega aðstoð. Á fund- inum var m.a. Povl Riis, en hann hefur fylgst náið með rekstri Læknablaðsins und- anfarin ár og verið ritstjórum hollur ráð- gjafi, en hann hefur verið einn af aðal- ritstjórum Ugeskrift for læger síðan 1967. I samráði við útgáfustjóra danska lækna- félagsins fór síðan undirritaður til Hafnar sl. haust og athugaði möguleika á að nýta þá tækniþjónustu, sem fyrir hendi er hjá fyrirtækinu. Dagana 15.—18. júní sl. voru þrír full- trúar danska læknafélagsins hérlendis til viðræðna við ritstjórn Læknablaðsins og stjórnir læknafélaganna. Á fundum með Dönunum kom fram, að danska læknafélagið hefur tekið í notkun tölvu, sem annars vegar er notuð til þess að halda meðlimaskrá og færa alla reikn- inga félagsins og sjóði þess, þ.m.t. lífeyris- sjóði, og hins vegar er tölvan notuð til þess að setja allt efni í tímarit og bækur, sem gefin eru út á vegum félagsins (Læge- foreningens forlag). Rætt var um það, á hvern hátt og að hve miklu leyti væri hægt að undirbúa Læknablaðið til prent- unar í Höfn og hvort mögulegt væri, að „Lægeforeningens forlag“ annaðist auglýs- ingasöfnun frá erlendum lyfjafyrirtækjum. Að vel athuguðu máli var í samráði við fulltrúa stjórna L.R. og L.í. ákveðið að vinna eitt tölublað eða fylgirit í Höfn, og mun ritstj órnarfulltrúi fara á næstunni og kynna sér aðstæður og undirbúa málið. Að lokinni þessari tilraun verður málið tekið til rækilegrar endurskoðunar, og á aðalfundi í september verður nánari grein gerð fyrir þróun mála. í umræðum um þetta mál hafa ýmsir spurt, hvort líklegt sé, að hægt verði að lækka kostnað, sé þeirri tækni beitt, sem okkur stendur til boða. Því er til að svara, að Lægeforeningens forlag hefur tekizt þetta. Á sl. 2 árum hefur útgáfukostnaður lækkað um 2 milljónir danskra króna, sem er umtalsvert hlutfall miðað við 10 millj- óna árlega veltu, sem svarar til 700 millj- óna íslenzkra. Könnun sú, sem fyrir dyrum stendur, miðar að því að athuga, hvort hægt sé að ná því langþráða marki að gefa út 8—10 eintök á ári með auknu félagslegu efni án þess að hækka áskriftargjöld, en ástæða er til að ætla, að tekjur aukist, verði auglýs- ingum safnað ytra, og er þá ótalið það vinnuálag, sem létt væri af skrifstofunni. Af hálfu Lægeforeningens forlag og danska læknafélagsins hefur frá byrjun verið lögð á það áherzla, að hér væri um tímabundna tækniaðstoð að ræða. Mestu varði að stefna að því að koma upp sam-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.