Læknablaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 71
LÆKNABLAÐIÐ
207
hefði annars unnið. Var talið, að þessi að-
ferð mundi flýta afgreiðslu málsins. Því
miður hefur þó orðið dráttur á því, að
Árni fengi leyfi frá störfum til að vinna
þetta verk. Þó er von til þess, að hann geti
hafið það í ágúst og jafnvel lagt einhver
drög að tillögum fyrir aðalfund.
Að tillögu aðalfundar L.í. 1975 voru
skipaðar 3 nefndir, er gera skyldu tillögur
um fyrirkomulag sérnáms í 3 greinum.
Nefndir heimilislækna og lyflækna skiluðu
áliti á árinu 1977 og hefur hið fyrrnefnda
birzt í Læknablaðinu. Álit skurðlækna-
nefndar barst á sl. vori og hefur verið sent
Skurðlæknafélaginu til umsagnar. Álit lyf-
lækna og skurðlækna mun birtast í Lækna-
baðinu.
Stjórn L.í. skrifaði á sl. hausti bréf til
þá nýskipaðs ráðherra heilbrigðismála
vegna læknaskorts í dreifbýli. í bréfinu var
lögð áherzla á nauðsyn þess að hraða
skipulagningu á framhaldsnámi í heimilis-
lækningum hér á landi. Stjórnin hélt því
fram, að skortur lækna til þessara starfa
væri minni nú, ef tillögur L.í. frá 1975
hefðu verið framkvæmdar.
Framhaldsnám íslenzkra lækna erlendis
fer nú að langmestu leyti fram í Svíþjóð,
og virðist enn opin leið fyrir íslenzka
lækna í námsstöður þar, enda þótt spáð
hafi verið vandkvæðum fyrir nokkrum ár-
um síðan. Á sl. ári munu 36 læknar hafa
farið til starfa og framhaldsnáms í Svíþjóð,
en á sama tíma aðeins 8 til Bandaríkja
Norður-Ameríku, en fyrir nokkrum árum
síðan leitaði svipaður fjöldi til hvors þess-
ara landa.
Íslenzkir læknar, sem fara til framhalds-
náms í Bandaríkjunum, fá nú aðeins 2ja
ára dvalarleyfi vegna breytinga á innflytj-
endalögum. Mál þetta er rakið í ársskýrslu
1977—1978 og Lbl. (1. tbl. 1978). Síðustu
fréttir herma, að nú sé von til þess, að lög-
unum verði breytt þannig, að dvalarleyfi
fáist í samræmi við námstíma.
FRÆÐSLUNEFND
Starfsemi nefndarinnar hefur verið með
svipuðum hætti og undanfarin ár. Hún
hefur haldið fundi a.m.k. mánaðarlega
nema yfir hásumarið. Hér fer á eftir
skýrsla Árna Björnssonar formanns
f r æðslunef ndar:
1. Haldið var námskeið fyrir lækna í
Domus Medica dagana 13.—16. sept.
1978, og fjallaði það um barnasjúkdóma.
Björn Árdal hafði forgöngu um undir-
búning námskeiðsins, og var norska of-
næmissérfræðingnum dr. Kjell Aas boð-
ið til fyrirlestrarhalds. Einnig kostaði
fyrirtækið Hoechst 2 danska fyrirlesara,
dr. Jacob E. Paulsen og dr. Jörn Dietzel,
til að tala irm sykursýki í sambandi við
námskeiðið. Verða úrdrættir úr erindum
á námskeiðinu gefnir út sem fylgirit
Læknablaðsins á næstunni eins og í
fyrra, og styrkir Fræðslunefnd þá út-
gáfu fjárhagslega. Námskeiðið var vel
sótt og þótti takast vel. Undirbúningur
næsta námskeiðs er þegar hafinn, og
mun það fjalla um atvinnusjúkdóma og
verður haldið dagana 26. og 27. septem-
ber 1979.
2. Svo sem læknum er kunnugt var
Fræðslunefnd falið að hafa forgöngu um
læknaþing dagana 24. og 25. sept. Und-
irbúningur undir þingið er í fullum
gangi og takist það vel, er áætlað að
halda slík þing annað hvert ár framveg-
is. Fræðslunefnd sér um allan undir-
búning með aðstoð frú Sofie Markan á
skrifstofu læknafélaganna, en fram að
þinginu verður aðalverkefni hennar að
aðstoða nefndina.
3. L.í. fól Fræðslunefnd að gangast fyrir
ráðstefnu um atvinnuheilbrigðismál og
bjóða þátttöku aðilum vinnumarkaðar-
ins og öðrum, sem áhuga kunna að hafa
á þessu efni. Verður ráðstefnan haldin
28. sept. n.k. í beinu framhaldi af nám-
skeiðinu. Hafði seinasti aðalfundur L.í.
skorað á stjórn L.í. að halda slíka ráð-
stefnu.
4. Fræðslufundir einkum ætlaðir heimilis-
læknum hafa verið haldnir mánaðar-
lega yfir veturinn á laugardögum.
Sjúkrahús Reykjavíkursvæðisins og
Sjúkrahús Akraness hafa séð um þessa
fundi. Hafa heimilislæknar haft hönd í
bagga um efnisval og undirbúning þess-
ara funda. Þrátt fyrir gott efnisval og
valinkunna fyrirlesara hefur aðsókn að
þessum fundum farið stöðugt minnk-
andi, og er nú svo komið, að sýnt þykir,