Læknablaðið - 01.09.1979, Síða 17
LÆKNABLAÐIÐ
169
séu að aukast eða skráning sé nákvæmari
nú en áður.
Miðað við framanskráðar tölur, virðist
blinda meðal barna hér á landi vera sjald-
gæfari en í Bandaríkjunum. Helstu ástæð-
ur gætu verið þær, að RLF hefur ekki
blindað barn hér á landi svo vitað sé, en í
fyrrnefndum uppgjörum frá Bandaríkjun-
um er RLF ennþá völd að blindu. Við
blindukönnun þar í landi frá 1966 var RLF
8,4% af blindu meðal skólabarna á aldrin-
um 5—9 ára, 16,8% 10—14 ára og 40,7%
af blindum 15—19 ára.G
Hér á landi er ekkert barn svo vitað sé
sjónskert af völdum rauðra hunda, þ.e. með
drermyndun í báðum augnsteinum eða aðra
meiri háttar galla á báðum augum. Meðal
5—9 ára barna í Bandaríkjunum árið 1966
var 4,1% af barnablindu af völdum með-
fæddra rauðra hunda.
Vitað er um meðfædda blindu hérlendis
meðal 22 barna er fæddust á tímabilinu
1941—1960, en íbúatalan 1940 var 121.500
og 1960 178.000.
Blinduorsakir voru atrophia cerebralis
meðal tveggja, eitt barn var með retino-
blastoma og 19 með meðfætt drer. Mæður
10 drersjúklinganna höfðu fengið rauða
hunda snemma á meðgöngutíma. Flest voru
tilfellin eftir faraldurinn 1954—1955 eða 4
talsins.10 Eftir rubella faraldurinn 1963
fæddust 37 börn með congenit rubella
syndrome. Höfundar skoðuðu öll þessi börn
og hafði ekkert þeirra drer í augasteinum.2
Rúmur helmingur (57%) þessara barna
eru með litarefnisdreifingu í sjónu,
einkum í miðsvæði (regio macularis), sem
hefur ekki áhrif á sjónskerpu (rubella
retinopathy). Er þetta þekkt einkenni í
congenit rubella synodrome.5 Vitað er um
eitt barn, sem fæddist 1973 með congenit
rubella syndrome, sem var blint vegna
drers. Var það með alvarlegan hjartagalla
og dó á öðru ári. Annað barn fætt 1974 með
congenit rubella syndrome er með uni-
lateral cataract og algjörlega heyrnarlaust.
Athyglisvert er að sjónskerðing meðal
barna hér á landi er í öllum tilfellum með-
fædd eða vegna arfgengra sjúkdóma.
í Bandaríkjunum skiptust blinduorsakir
meðal 5—19 ára þannig árið 1968: Sýking-
ar í fósturlífi (rubella og toxoplasmosis)
2,8%, slys og eitranir (þ.á.m. RFL) 7,9%,
æxli 3,7%, sjúkdómar (general diseases)
1,4%, af meðfæddum orsökum (prenatal
influence) 49,9% (arfgengir 41,5%, aðrir
meðfæddir sjúkdómar 8,3%), óviss orsök
33,6%.°
í Líbanon voru blinduorsakir kannaðar
árið 1970—-1973 meðal 203 nemenda í 3
blindraskólum þar í landi (6—20 ára að
aldri). Arfgengir sjúkdómar voru taldir
orsök blindu meðal 77% barnanna. Tekið
er fram að rubella syndrome og RLF séu
ekki eins algeng þar og í þróaðri löndum.
Aftur á móti er blinda af völdum slysa
meiri þar en víðast annars staðar eða 10%
af allri blindu meðal barna.1
Algengasta arfgenga sjónskerðingin hér
á landi er af meðfæddum skorti á litarefni
í augum (albinismus). Enda þótt þessir
einstaklingar hafi lélega sjón, geta þeir
oftast fylgst með í almennum skólum og
komast upp á lag með að lesa venjulegt
letur. Aðrir arfgengir sjúkdómar sem lýst
er hjá börnum í þessari grein eru flestir
mjög sjaldgæfir. Sennilegt er að eitthvað af
meðfæddum sjúkdómum, (í lið B, 5. töflu),
sé af arfgengum orsökum, því að oft er
erfitt að leiða óyggjandi rök að víkjandi
arfengi.
Fyrri rannsóknir á blindu meðal barna
hér á landi eru af mjög skornum skammti
og engin könnun hefur verið gerð á orsök-
um sjónskerðingar. í könnun, er Kristján
Sveinsson augnlæknir gerði hér á landi
árið 1940 voru 7 blindir innan við tvítugt
(2, 0—9 ára og 5, 10—19 ára).11 Við sér-
könnun sem gerð var á blindu hér á landi
árið 1950 voru 11 blindir innan 20 ára
aldurs samkvæmt manntalsskráningu.3
Skipting í aldursflokka og algengi miðuð
við fólksfjölda er sýnd í sjöundu töflu.3
Table 7.
Prevalence rates for cliildhood blindness in Iceland,
1950, and/distribution by sex.
Figures derived frovn natonal census statistics, 1950.
Age M F Per 100.000 population Total
0—4 1 5.5 1
5—14 4 1 19.1 5
15—19 1 2 24.7 3
Total 6 3 15.9 9