Læknablaðið - 01.09.1979, Side 18
170
LÆKNABLAÐIÐ
Við allsherjarmanntal 1950 voru blindir
skráðir og eru tölurnar í 7. töflu fengnar
þaðan. Mun því tala blindra vart tæmandi,
en gefur þó hugmynd um tíðni barnablindu
á þessu tímabili.
Orsakir blindu eða sjónskerðingar á öðru
auga meðal barna hér á landi eru mun
fleiri en þær, sem greindar eru í 4. og 5.
töflu, t.d. eru hér á landi börn blind á öðru
auga af völdum congenit rubella, congenit
toxoplasmosis, slysa, glærubólgu, sjúk-
dóma í sjónu, æxli í auga, Sturge Weber
syndrome, Goldenhar syndrome o.fl.
Erfðaráðgjöf og fyrirbyggjandi aðgerðir:
Þar sem sjónskerðing meðal barna hér á
landi er nær öll af meðfæddum orsökum,
hefði lítið verið unnt að gera til varnaðar.
Þegar um er að ræða arfgenga sjúkdóma,
er hægt að beita erfðaráðgjöf. Flestir af
þeim arfgengu sjúkdómum, sem minnst er
á í þessari grein erfast sem víkjandi eigin-
leiki (t.d. albinismus), en einnig sem ríkj-
andi (t.d. neurofibromatosis). Blóðskyld-
leiki foreldra eykur möguleikana á arfgeng-
um sjúkdómum meðal afkomenda því talið
er að sérhver einstaklingur sé með allmörg
gölluð erfi (gen), sem erfast víkjandi.12
Þegar rauðir hundar ganga í faröldrum,
er nauðsynlegt að fylgjast vel með ófrísk-
um mæðrum til þess að finna þær sem
smitast hafa snemma á meðgöngutíma. Erf-
itt er að beita fyrirbyggjandi aðgerðum við
aðrar fóstursýkingar eins og t.d. af völdum
toxoplasmosis og cytomegalovirus. Við báð-
ar þessar sýkingar eru sjúkdómseinkennin
hjá mæðrum óljós og vaknar því enginn
grunur um smitun. Ef móðir er með eða
smitast af syphilis á meðgöngutíma má oft
koma í veg fyrir fósturskemmdir ef sjúk-
dómurinn er greindur í tíma.
Hægt er að greina marga sjúkdóma í
fósturlífi með því að rannsaka sýni af leg-
vatni á 14'—16 viku meðgöngutíma. Má þá
nefna ýmsa metaboliska sjúkdóma, litn-
ingagalla, klofinn hrygg og fleira. Listi yfir
sjúkdóma, sem hægt er að greina með þess-
um hætti er sífellt að lengjast.9
Hér á landi er mæðrum 35 ára og eldri
gefinn kostur á þessari rannsókn til að fyr-
irbyggja litningagalla og mæðrum á öllum
aldri ef sérstök hætta er á litningagöllum.
Þetta á t.d. við þegar annað foreldri er
arfberi fyrir litningagalla, þegar ungar
mæður hafa eignast barn með litningagalla
o.s.frv. Flestir litningagallar sem lýst hefur
verið, geta haft í för með sér alvarlega
galla eða vanskapanir á augum.
Þar sem þessi köxrnun er ekki tæmandi
og þá sérstaklega hvað snertir sjónskert
börn, sýnir hún nauðsynina á því, að skipu-
legar verði unnið að söfnun gagna um
blinda en verið hefur. Er enn einu sinni
lagt til, að skylduskráning blindra verði
tekin upp, sem allra fyrst og einnig skrán-
ing á þeim sjúkdómum sem orsaka blindu,
svo sem hægfara gláku. Ekki er hægt að
svara að þessari könnun lokinni, hversu
mikið er gert til að létta undir með sjón-
skertum börnum og unglingum. Það er þó
staðreynd að blindraskóli er starfræktur og
félagsráðgjafi hefur liðsinnt hluta af þess-
um barnahópi. Skipuleggja þarf betur að-
gerðir til þess að sinna þessum þætti heil-
brigðisþjónustu.
SAMANTEKT
Á árinu 1978 var gerð könnun á blindum
og sjónskertum börnum á íslandi undir 17
ára aldri. í þessari könnun fundust alls 46
börn og voru 19 þeirra blind og 27 alvar-
lega sjónskert. Af 43 börnum undir 15 ára
aldri voru 16 blind og 27 alvarlega sjón-
skert. Hrá hlutfallstala blindra innan 15 ára
aldurs var 25,3 per 100 þús. íbúa í þessum
aldursflokki og 42,7 fyrir alvarlega sjón-
skerta.
Orsakir blindu og sjónskerðingar meðal
allra barnanna má rekja til meðfæddra og/
eða arfgengra sjúkdóma eða þróunargalla.
Rýrnun á sjóntaug reyndist algengasta or-
sökin fyrir skertri sjón eða um það bil
þriðjungi tilfellanna. Aðrar orsakir eru
raktar og þeim lýst. í engu tilfelli var um
að ræða áunna sjónskerðingu og kann það
að vera skýringin á því, að algengi (preva-
lence rates) hér á landi er lægri en í
Bandaríkjunum. Til viðbótar við sjónskerð-
ingu voru 24 barnanna með aðrar meiri
háttar fatlanir. Einkenni frá miðtaugakerfi
voru hjá 20 barnanna og af þeim voru 15
vangefin.
I Blindraskólanum eru 8 nemendur á
aldrinum 6—18 ára og af þeim eru 6 blind.
Önnur börn á skólaaldri eru annað hvort í
sérskóla eða hinum almenna grunnskóla.