Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.09.1979, Page 20

Læknablaðið - 01.09.1979, Page 20
172 LÆKNABLAÐIÐ Ráðgjöf við kaup tækja. Truflanir í rekstri tækja má oft rekja til óvandaðra vinnubragða við innkaup. Til þess að komast hjá slíkum truflunum cg kostnaðarauka, sem þeim fylgja, er rétt að leggja töluverða vinnu í undirbúning ákvörðunar um kaupin. Gott samstarf lækna, tækniaðila og stjórnenda er lík- legt til þess að bera ávöxt í þessu sam- bandi. Umtalsverður ávinningur getur náðst, sé stofnað til slíks samstarfs þegar á fyrsta umræðustigi væntanlegra kaupa. Þessi ávinningur felst í auknum líkum fyr- ir hagkvæmum kaupum og vali tækja, sem uppfylla tæknilegar kröfur og óskir lækn- is samtímis. Hlutverk tækniaðila er að framkvæma markaðskönnun, afla tilbcða og meta hag- stæðustu tilboð á grundvelli eigin þekk- ingar og reynslu eða notast við revnslu annarra. Það ætti að vera ófrávíkjanleg regla, að sami aðili prófrevni öll ný tæki og gangi úr skugga um að þau unpfylli þær tæknilegu kröfur, sem seljandi hefur lvst í tilboði. Fullnaðargreiðsla fyrir tæki ætti fyrst að eiga sér stað, begar trvggt er, að seljandi standi við sínar skvldur. Til dæmis verða fullkomnar rásateikning- ar og leiðbeiningar um notkun að fylgja öllum nýjum tækjum. Aður en tæki eru afhent notendum skulu þau skráð og merkt. Soialdskrá yfir tæki þjónar hhðstæðu hlutverki fvrir tæknimann sem sjúkraskýrslur fyrir lækni. Núverandi ástand í skráningarmálum smæni heilbrigðisstofnana verður getið um síðar. Viðp-erðar]íjónusta og kerfisbundið eftirlit. Viðgerðir á tækjum verður stór hluti í starfi samræmdrar tækniþjónustu fyrir heilbTÍgðisstofnanir. Skjót og vönduð við- gerðarbjónusta krefst skioulags og hæfra starfsmanna. Gott skipulag felst m. a. í nánu samspili milli kauoa nvrra tækja og uopbyggingu viðgerðaraðstöðu. Kaup nýs tækis getur t. d. haft í för með sér þörf fyrir nýtt mælitæki á viðgerðarverkstæði. Þessa þörf er oft unnt að siá fyrir. í stað eins tækis verður að kaupa tvö, annað til nota í heilbrigðisþiónustu, hitt til nota á verkstæði við viðgerðir og viðhald á því fyrrnefnda. Þörf fyrir kaup varahluta verð- ur að meta í hverju einstöku tilviki. Vara- hlutahald miðar að lækkun lífskostnaðar tækja og skjótari viðgerðarþjónustu. Tilgangur kerfisbundins eftirlits er tví- þættur. Annars vegar að sjá um að tæki starfi rétt, hins vegar að minnka líkur fyrir óvæntum bilunum með því að yfir- fara tækið nákvæmlega. Áður var getið um prófun nýrra tækja. Auk viðgerða og kerfisbundins eftirlits með tækjum má gera ráð fyrir að á við- gerðarverkstæði fari fram nýsmíði tækja í takmörkuðum mæli. Kennsla í meðferð tækja. Það ætti að vera sjálfsögð regla, að ís- len.skar leiðbeiningar um notkun fylgi hverju tæki. Kemur það í hlut starfsmanna tækniþjónustu að skrifa þessar leiðbein- ingar, annast kennslu í meðferð nýrra tækja og viðhalda kunnáttu starfsliðs í þessum efnum. Þýðing slíkrar kennslu er augljós, því varla getur notkun tækja tal- ist réttlætanleg fyrr en notendur hafi feng- ið tilsögn í réttri meðferð þeirra. Bilunum af völdum rangrar meðferðar er einnig haldið í lágmarki með þessum hætti. Nauðsyn eignakönnunar. Á beim stöðum, sem könnun náði til, var hvergi til spjaldskrá yfir eigin tæki.1 Líkur eru fyrir því að svo hátti til yfir allt landið. Upplýsingar um tækjaeign liggja þannig ekki fyrir á aðgengilegu formi. Þessar uoplýsingar eru nauðsvnleg- ar við gerð áætlunar um samræmda raf- tækniþjónustu fyrir heilbrigðisstofnanir landsins. Lagt er til að þegar verði ráðist í öflun þessara upplýsinga. Spjaldskrá yfir tækjabúnað einstakra staða má einnig vinna úr slíkri eignakönnun. Að lokum skal bess getið, að tækniþjón- usta við heilbrigðisstofnanir er orðin hluti af heilbrigðiskerfi nágrannaþióða okkar, og þangað getum við sótt reynslu og stuðn- ing við samsvarandi uppbyggingu hérlend- is. 1. Rúnar Sigfússon: Könnun á innkaup- um og rekstri rafeindatækja á nokkr- um heilsugæslustöðvum og sjúkrahús- um. Skýrsla til landlæknis, júli 1978.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.