Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.09.1979, Page 70

Læknablaðið - 01.09.1979, Page 70
206 LÆKNABLAÐIÐ skipa nefnd til að endurskoða þessi' lög og óskaði eftir því, að L.í. tilnefndi mann í nefndina. Tilnefndur var Guðmundur Oddsson, varaformaður L.Í., og var ákveðið að fresta sérstakri nefndarskipan af hálfu félagsins. Ályktun aðalfundar um námskeið og ráðstefnu um atvinnuheilbrigðismál var rædd við Fræðslunefnd, Hrafn V. Friðriks- son og Ólaf H. Oddsson. Ákveðið var, að Fræðslunefnd tæki að sér undirbúning þessa námskeiðs og ráðstefnu í samráði við nefnda lækna, og hefur verið unnið mikið starf til undirbúnings, eins og sjá má af dagskrá þeirri, sem send hefur verfð til allra félagsmanna. Framkvæmd þeirrar upplýsingaöflunar um sérgreinaval, sem stjórninni var falið að beita sér fyrir, hefur enn ekki hafizt. Haft var samband við unga lækna í Banda- ríkjunum til að kanna, hvort þeir gætu gert svipaða könnun og gerð hefur verið i Svíþjóð að tilstuðlan F.Í.L.Í.S. Stjórn L.í. vinnur nú að því að undirbúa tölvuunna spjaldskrá yfir alla félagsmenn erlendis sem innanlands og gerir ráð fyrir allmikl- um upplýsingum í þeirri spjaidskrá, sem hægt yrði að nota til að vinna árlega skrár, þar sem læknar yrðu flokkaðir eftir að- setri, starfsgrein og sérnámi eða fyrir- ætlun um sérnám, sem hægt verði að byggja á einhverjar forspár. Viðvíkjandi auglýsingum um læknastöð- ur hefur þegar verið rætt við alla stærstu aðila, sem auglýsa læknastöður, um að skrifstofa L.í. hafi milligöngu um auglýs- ingar. Vegna þess að endurskipulagning á starfsemi skrifstofunnar er enn ekki lokið, leyfir starfsmannafjöldi ekki að á hana sé bætt svo vandasömu starfi. Hefur því ekki þótt fært að reka á eftir þessu máli. Ályktun aðalfundar um, að umsagnar stjórnar L.í. sé leitað, áður en læknisstöðu er breytt, hefur verið send spítalastjórn- um. Borizt hefur jákvætt svar frá stjórn- arnefnd ríkisspítalanna. Ályktun, þar sem læknum er bent á nauðsyn þess að taka þátt í fræðslu um skaðsemi áfengis, hefur verið kynnt bæði læknum og öðrum. Væntanleg er ritstjórn- argrein í Læknablaðinu um þessi efni. Form fyrir ráðningarsamnihga fyrir sjúkrahúslækna er enn ekki fullfrágengið, en formenn launanefnda og framkvæmda- stjóri hafa rætt þessi mál við fulltrúa spítalastjórna. Ályktun um, að sérfræðiþjónusta á heilsugæzlustöðvum sé skipulögð af stjórn viðkomandi heilsugæzlustöðva, var kynnt heilbrigðisyfirvöldum. Nefnd sú, sem átti að gera tillögur um sérfræðiþjónustu á heilsugæzlustöðvum, hefur enn ekki skilað áliti, en ef eitthvað verður tilbúið frá nefndinni fyrir aðalfund, mun það verða kynnt í þeim umræðum, sem þá fara fram um rekstur og stjórnun heilsugæzlustöðva. Ályktun um aukna þátttöku íslenzkra lækna í námskeiðum í nágrannalöndunum var rædd á sameiginlegum fundi stjórnar L.í. og Fræðslunefndar. Fræðslunefnd var falið að hafa samband við sem flesta aðila í þessum löndum. Ritari Fræðslunefndar hefur þegar skrifað allmörg bréf, og ber- ast nú fleiri tilkynningar um námskeið en áður. FRAMHALDSMENNTUN Á aðalfundi 1975 voru samþykktar til- lögur um skipulagnihgu á framhaldsnámi innanlands og jafnframt um breytt fyrir- komulag á sérfræðiviðurkenningu. í þess- ari samþykkt fólst m.a. sú stefnuyfirlýsing L.Í., að læknum yrði sem fyrst gert kleift að Ijúka sérnámi í heimilislækningum hér á landi og möguleikar til framhaldsnáms í öðrum greinum yrðu auknir. Tillögur þess- ar voru á árinu 1976 ræddar af nefnd, er skipuð var að frumkvæði L.í. með full- trúum frá heilbrigðis- og menntamálaráðu- neytum ásamt læknadeild. Nefnd þessi féllst á tillögurnar í aðalatriðum. Sam- komulag varð um að óska eftir því við heil- brigðismálaráðherra og menntamálaráð- herra, að þeir skipuðu nefnd til að undir- búa framkvæmd námsins og breytingar á lögum og reglugerðum, sem nauðsynlegar væru til að nám gæti hafizt. Þrátt fyrir jákvæðar undirtektir og end- urtekin tilmæli L.í. hafa ráðuneytin ekki treyst sér til að ganga frá nefndarskipan. Á sl. vetri varð það að samkomulagi milli L.Í., heilbrigðismálaráðuneytis og lækna- deildar, að dr. Árni Kristinsson (sem starf- aði fyrir L.í. að gerð þeirra tillagna, sem samþykktar voru 1975) yrði fenginn til þess að vinna einn það starf, sem nefndin

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.