Læknablaðið - 01.09.1979, Síða 72
208
LÆKNABLAÐIÐ
að þeir leggist niður, ef áhugi fer ekki
vaxandi.
5. Symposium um cancer mammae var
haldið á Hótel Loftleiðum 21. janúar
1979. Var það haldið kl. 17.00 á fimmtu-
degi og gefið matarhlé kl. 19.00 og síðan
haldið áfram umræðum. Var þetta
symposium vel sótt og bendir til, að
slíkt fundarform sé heppilegt.
6. Dagana 15. og 17. marz var haldið nám-
skeið um fjármál lækna á vegum
Fræðslunefndar. Var námskeið þetta
haldið í samvinnu við Stjórnunarfélag
Islands, og lagði Stjórnunarfélagið til
fyrirlesara. Námskeiðið var haldið á
Hótel Esju. Þátttaka var góð, og eru lík-
ur til, að fleiri slík námskeið verði hald-
in.
7. Nefndin heldur áfram að bjóða svæða-
félögum að greiða fargjöld allt að 5 fyr-
Lrlesara á ári til fræðslustarfsemi úti á
landsbyggðinni. Læknafélög Akureyrar
og Norðausturlands hafa notfært sér
þessa þjónustu, en önnur svæðafélög
ekki. Auk þessa hafa nokkur sérgreina-
félög verið styrkt af nefndinni til að
greiða kostnað af heimsóknum erlendra
fyrirlesara.
8. Nefndin hefur sent út lista yfir væntan-
leg innlend og erlend læknaþing. Einnig
liggja frammi á vegum nefndarinnar
upplýsingar um námskeið til viðhalds-
menntunar lækna í nágrannalöndunum.
9. Námssjóði lækna er heimilt að veita
fræðslunefnd styrk, er nemi 10% af eig-
in höfuðstól hans næsta ár á undan. Auk
þess hefur nefndin fengið styrk frá
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti
og Tryggingastofnun ríkisins. Unnið er
að því að nefndin fái sjálstæðan fjár-
hag, svo að vitað sé í ársbyrjun, hve
mikið fé verður til fræðslustarfseminn-
ar á árinu. Slíkt er nauðsynlegt, svo
hægt sé að nýta þetta fé sem bezt og
gera áætlun um fræðslustarfsemi fram í
tímann.
LÆKNASKORTUR í DREIFBÝLI —
LENGING HÉRAÐSSKYLDU
Með skýrskotun til þeirra örðugleika,
sem verið hafa á mönnun tiltekinna lækn-
ishéraða að undanförnu, tilkynnti Heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytið 26.
maí 1978, að héraðsskylda læknakandidata
væri lengd úr 3 mánuðum í 6. Þessi til-
kynning kom fram á sama tíma og heil-
brigðisyfirvöld höfðu boðað viðræður við
læknasamtökin um þetta vandamál. Við-
brögð ungra lækna voru þau, að stjórn
og ráðninganefnd F.U.L. ritaði landlækni
bréf og mótmælti þessari ákvörðun og hef-
ur síðan ekki haft milligöngu um ráðning-
ar í störf heilsugæzlulækna.
Stjórn L.í. ritaði heilbrigðismálaráð-
herra bréf í september 1978 og lýsti á-
hyggjum yfir því ástandi, er skapast hafði.
í bréfinu var höfuðáherzla lögð á, að til
viðbótar þeirri uppbyggingu á heilsugæzlu-
stöðvum og bættri starfsaðstöðu fyrir
lækna, sem unnið hefði verið að á undan-
förnum árum, væri brýn þörf skjótra við-
bragða til að skipuleggja framhaldsnám í
heimilislækningum innanlands. Bent var
á, að L.í. hefði þegar á árinu 1975 lagt
fram ákveðnar tillögur, sem ráðuneytið
hefði enn ekki afgreitt af sinni hálfu. í
bréfinu og á 2 fundum, er stjórn L.í. ásamt
formanni L.R. og fulltrúumF.U.L. átti með
ráðherra, var einnig bent á nokkur atriði,
sem stjórn L.í. taldi, að gætu hjálpað til
bráðabirgðalausnar. Jafnframt var mót-
mælt lengingu héraðsskyldunnar. Á fundi
í L.R., þar sem landlæknir óskaði eftir um-
ræðu um þetta mál, komu fram mjög ein-
dregin mótmæli gegn þessari ákvörðun.
Ábendingar frá L.í. og F.U.L. hafa ekki
hlotið neina afgreiðslu og enn eru erfið-
leikar með mönnun einstakra héraða. ís-
lenzkir læknar í Svíþjóð hafa boðist til að
koma hingað til afleysinga með vissum
skilyrðum, en tilboði þeirra hefur ekki
verið tekið. Stjórn L.í. hefur með bréfi til
heilbrigðismálaráðherra, dags. 25. júli
1979, ítrekað áhyggjur sínar vegna þessa
ástands, sem búast má við að vari enn um
skeið. Hefur stjórn L.í. óskað eftir því við
ráðherra, að hann beiti sér fyrir því, að
tilboði íslenzkra lækna í Svíþjóð verði tek-
ið og er enn til viðræðu við heilbrigðis-
yfirvöld um önnur atriði til lausnar.
HEILBRIGÐISFRÆÐSLA FYRIR
ALMENNING
Starfshópur um heilbrigðisfræðslu fyrir
almenning, sem var skipaður skv. ályktun
aðalfundar 1977, skilaði áliti 28. des. 1978.