Læknablaðið - 01.09.1979, Page 76
210
LÆKNABLAÐIÐ
bærilegri þjónustu hér innanlands. Er það
von okkar og trú, að það muni takast.“
NORDISK MEDICIN
Ritstjórnarfundir Nordisk Medicin eru
haldnir til skiptis á Norðurlöndum. Þótt
íslendingar hafi átt fulltrúa í ritstjórn í
mörg ár, var það fyrst á sl. ári, að L.I. tók
að sér að sjá um fundinn, og var hann
haldinn á Akureyri í júnílok. Sömu daga
var haldinn sameiginlegur fundur ritstjóra
norrænu læknatímaritanna. Fundarstjóri
þessara funda var fulltrúi L.í. í ritstjórn
N.M., Baldur Sigfússon, en á fundinum
mættu ritstjórar Læknablaðsins, þeir Örn
Bjarnason, Þórður Harðarson og Bjarni
Þjóðleifsson, og af hálfu L.í. Tóinas Á. Jón-
asson, Guðmundur Sigurðsson, Magnús L.
Stefánsson og Þóroddur Jónasson, en
Læknafélag Akureyrar aðstoðaði við und-
irbúning fundarins.
Ritstjórn N.M. óskaði eftir því, að kynnt
yrðu nokkur mál, sem á döfinni væru hjá
L.Í., og gerðu T.Á.J. og G.S. nokkra grein
fyrir málum þeim, sem rædd voru á aðal-
fundi 1978. í umræðum var mest dvalizt
við þá sérstöðu íslenzkra lækna að eiga
takmarkaða möguleika til framhaldsnáms í
eigin landi. Einnig var rætt um möguleika
til aukinnar þátttöku íslenzkra lækna í
norrænum námskeiðum eða aðstoð nor-
rænna kollega við námskeiðshald hér á
landi.
Þá voru málefni Læknablaðsins rædd
rækilega, og var það einnig að ósk erlendu
ritstjóranna. Fram komu í þeim umræðum
ýmsar ábendingar um útgáfuna, sem ís-
lenzku fulltrúunum þótti ástæða til að at-
huga nánar, sbr. kaflann um Læknablaðið
(í skýrslu þessari).
Það er stefna útgefenda N.M., að blaðið
berist til allra lækna á Norðurlöndunum.
Þótt íslendingar hafi verið meðal útgef-
enda í mörg ár og eigi fulltrúa í ritstjórn,
var þess ekki krafizt í upphafi, að þeir
tækju þátt í útgáfukostnaði, og hafa íslend-
ingar notið góðs af Dönum og fengið send
200 eintök af blaðinu, sem dreift hefur
verið nokkuð óreglulega. L.í. á þess nú kost
að fá N.M. sent heim til allra íslenzkra
lækna beint úr prentsmiðju í Danmörku
fyrir verð, sem stjórn L.í. telur hagstætt.
Jafnframt yrði L.í. gert kleift að fá tölvu-
unna spjaldskrá yfir alla félagsmenn inn-
anlands og utan. Ef af samningum verð-
ur, skapast möguleiki til úrvinnslu á upp-
lýsingum um aðsetur, starfsgrein, sérgrein
eða stöðu í sérnámi allra íslenzkra lækna.
LÆKNATAL, NÝ ÚTGÁFA
Unnið er að undirbúningi handrits fyrir
útgáfu nýs læknatals, og hefur ritstjóri
þegar tekið saman allmörg æviágrip, en
ritnefnd yfirfarið. Bréf stjórnar L.í. til
þeirra félagsmanna, sem höfðu enn ekki
svarað ritnefndinni, báru meiri árangur en
fyrri tilmæli. Enn vantar þó nokkuð á skil
frá læknum. Undantekningarlítið virðist
dráttur á svörum vera að kenna framtaks-
leysi. Þó hefur nýlega komið fram bréfleg
gagnrýni, sem birtast mun í Læknablaðinu
og verður svarað þar og vísast til þess.
Það var sameiginleg ákvörðun stjórnar
L.Í. og ritnefndar og ósk útgefanda (ísa-
foldarprentsmiðj u), að gefið yrði út Lækna-
tal í einu bindi. Til þess að svo megi verða,
er óhj ákvæmilegt að draga saman og stytta
kafla um hvern einstakan lækni. Reynt
er að fella niður eins lítið af gagnlegum
upplýsingum og mögulegt er, en þar sem
það sýnist ókleift að birta tæmandi ritskrá,
leitaði stjórn L.í. með samþykki stjórnar
L.R. (sem gefa sameigiblega út Lækna-
blaðið) eftir því við ritstjóra Læknablaðs-
ins að þeir tækju að sér að undirbúa útgáfu
á fylgiriti Læknablaðsins, sem innihéldi
skrá um öll læknisfræðileg ritverk ís-
lenzkra lækna með tilheyrandi uppfletti-
skrám. Hafa ritstjórar Læknablaðsins tekið
vel í þessa hugmynd og er þess að vænta,
að undirbúningur þessa rits hefjist fljót-
lega.
Enn verður ekki séð, hvenær handrit
Læknatalsins verður tilbúið.
ENDURSKOÐUN Á SKRIFSTOFU-
REKSTRI LÆKNAFÉLAGANNA
í desember sl. skipuðu stjórnir L.í. og
L.R. sameiginlega nefnd til að athuga
starfsmannaþörf og skipulag skrifstofu
læknasamtakanna, svo og bankaviðskipta-
kjör samtakanna og meðlima þeirra. í
nefndina voru kjörnir Örn Smári Arnalds-
son, formaður L.R., Guðmundur Sigurðs-
son, gjaldkeri L.Í., Guðjón Eyjólfsson, lög-