Læknablaðið - 01.09.1979, Blaðsíða 77
LÆKNABLAÐIÐ
211
giltur endurskoðandi, og Páll Þórðarson,
f r amkvæmdast j óri.
Nefndin hélt nokkra fundi og hefur að
mestu lokið störfum. Stjórnir félaganna
fylgdust með starfi nefndarinnar. Sá þáttur
nefndarstarfsins sem sneri að starfsmanna-
haldi, var unninn þannig, að farið var yfir
starfsþætti skrifstofunnar og hafðir til við-
miðunar verkefnalistar, sem starfsfólkið
hafði samið.
Á grundvelli þessara lista var síðan hver
verkþáttur metinn í vinnuvikum og bor-
inn saman við tekjur skrifstofunnar af
hverjum þætti.
Bankamálakönnunin var fólgin í því, að
2 nefndarmenn fóru á fundi hjá forráða-
mönnum 3ja bankastofnana í Reykjavík.
Fengu þeir upplýsingar um lánamöguleika
og vaxtakjör, sem læknum stæðu til boða.
Skömmu síðar urðu nokkur blaðaskrif um
sérsamninga einstakra hópa og hagsmuna-
samtaka við bankastofnanir. Breyttust þá
nokkuð þær forsendur, sem nefndin hafði
gengið út frá í skýrslu til stjórnanna um
þennan þátt könnunarinnar.
Lokaskýrsla nefndarinnar er væntanleg
í septemberbyrjun.
VIÐBYGGING VTÐ DOMUS MEDICA
Þann 9. júní 1979 var bvrjað á viðbygg-
inau við Domus Medica. Byggt verður á 2
hæðum í horn það, sem upphaflega var
sneitt af suðausturhluta hússins, en einnig
í norðurátt frá núverandi húsnæði skrif-
stofu og félaasheimilis. Gert er ráð fyrir,
að hluti þessa húsnæðis verði viðbót við
salarkvnni (norðausturhornið) og eldhús-
aðstöðu Domus Medica, en nálægt 2/3
verði viðbót við skrifstofuhúsnæði og jafn-
framt bætt aðstaða til funda fyrir nefndir,
stiórnir og minni eininaar innan lækna-
samtakanna, og ve^ður sá hluti að mestu
sameicrin1ea' eian L.I. og L.R., hluti þó eign
Lífevríssióðs lækna.
Aualjóslega er hér ráðist í alldýrar fram-
kvæmdir, sem verða munu félaginu tölu-
verður bagai á næstu árum. Eftir allræki-
legar viðræður stjórna L.í. og L.R. við
stjórn Domus Medica og stjórnir Lífeyris-
sjóðs lækna og Námssjóðs lækna var þó
ákveðið að hefjast handa með lánsfyrir-
greiðslu frá a.m.k. fyrrgreinda sjóðnum og
sennilega báðum, í þeim umræðum komu
ýmis sjónarmið fram, m.a. að tímabært
væri að breyta rekstri félagsheimilisins,
svo að minna yrði um útleigu og not lækna
af húsakynnunum aukin að sama skapi.
Sú skoðun varð þó ofan á, að nauðsyn-
legt væri að hugsa fram í tímann og að
húsnæðið mundi koma hratt vaxandi fé-
lagsstarfi lækna að betri notum eftir breyt-
inguna, en síðar mætti smám saman hætta
útleigu, eftir því sem þörf félaganna krefði.
í þessum umræðum kom einnig fram það
álit, að til þess að þeim tilgangi Domus
Medica: ,,Að reisa og reka félagsheimili
íslenzkra lækna og stuðla þannig að bættri
fræðslu og félagsstarfsemi þeirra. ..“ verði
sem bezt náð, sé nauðsynlegt, að sem nán-
ust tengsl séu milli stjórnar Domus Medica
og stjórna læknasamtakanna. Kemur þá til
álita, hvort þörf sé breytinga á núverandi
skipulagsskrá fyrir D.M.
OLOFSHÚS LÆKNA
Orlofshús lækna á svæði B.H.M. í landi
Brekku í Biskupstungum var tekið í notk-
un í júlí 1978. Líkað hefur mjög vel við
húsið og það verið eftirsótt. Var því ákveð-
ið að ganga frá samningi um kaup á öðru
húsi, sem verða mun tilbúið fyrir næsta
sumar.
Samin hafa verið drög að reglugerð um
orlofssjóð lækna, sem verða lögð fyrir aðal-
fund. Skýrsla orlofsnefndar hefur nýlega
birzt í Læknablaðinu (Lbl. 3. tbl. 1979.).
NÝ FÉLÖG LÆKNA
Þann 14. sept. 1978 var haldinn stofn-
fundur félags, er hlaut nafnið Fræðafélag
íslenzkra heimilislækna og sátu fundinn
21 læknir. Aðalmarkmið þessa félags er
að vinna að því, að heimilislækningar á Is-
landi séu stundaðar samkvæmt ýtrustu
kröfum, sem gerðar eru til heimilislækna
á hverjum tíma. Félagið gekkst fyrir fund-
um á sl. vetri og mun halda aðalfund í sam-
bandi við læknaþing L.í. í september. Nán-
ari fregnir af félagsstofnun þessari má sjá
í Læknablaði (Lbl. 3. tbl. 1979).
Stjórn félagsins skipa Eyjólfur Þ. Har-
aldsson, Guðmundur Sigurðsson, Leifur N.
Dungal, Ólafur F. Mixa og Haukur S.
Magnússon.
Þann 17. marz 1979 var stofnað Sér-
fræðifélag lækna á fundi, sem sóttu 56 séf-