Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.09.1979, Side 79

Læknablaðið - 01.09.1979, Side 79
LÆKNABLAÐIÐ 213 læknafélaganna í júní 1978 var samþykkt og undirrituð úrsögn úr W.M.A., sem taka átti gildi frá áramótum 1978—1979, ef þessar tillögur dr. Wynan yrðu samþykkt- ar. Þrátt fyrir tilraunir hans til að fá Norð- urlöndin og aðrar þjóðir til að breyta fyrir- ætlan sinni, tók úrsögn Norðurlandanna, þ.á.m. íslands, gildi um sl. áramót. Dr. Wynan og stjórn hans hafa sýnt mikinn áhuga á að fá Norðurlandaþjóðir ásamt Hollandi og fleiri þjóðum aftur inn í félag- ið og hefur lofað endurskoðun á lögunum, en þjóðir þessar, sem nú standa utan, vilja bíða átekta og sjá, hverju fram vindur. Stjórn L.f. hefur í mörg ár fengið boð um að senda fulltrúa á fundi lækna- félaga í nágrannalöndum og Ameríku, en örsjaldan getað þegið slík boð. Stjórn L.í. telur, að það geti verið lærdómsríkt fyrir þá, sem taka virkan þátt í félagsstörf- um, að sitja slíka fundi, því að oft eru þar til umræðu mál, sem einnig eru á döfinni hér heima. Það, sem fyrst og fremst torveldar þátttöku okkar, er ferða- kostnaður, en að auki má gera ráð fyrir því, að okkur þyki nauðsyn að endurgjalda eitthvað af boðunum, ef Stjórn L.f. sendir fulltrúa á slíka fundi. í júní 1979 sat Arinbjörn Kolbeinsson aðalfund norska læknafélagsins, sem hald- inn var í Stavanger. Lét Arinbjörn vel af fundinum. Voru þar miklar umræður bæði um kjaramál og um læknaskipan í dreif- býli, en einnig um menntunarmál og hina merkilegu fyrirætlan norska læknafélags- ins um ráðstefnu- og námskeiðsbyggingu, sem nú er að komast á framkvæmdastig. Skýrsla Arinbjarnar liggur frammi á skrif- stofu læknafélaganna. f marz 1979 dvöldust formaður og fram- kvæmdastjóri L.í. í nokkra daga í Oslo og kynntu sér starfsemi skrifstofu norska læknafélagsins. Móttökur allar voru mjög vinsamlegar og gáfu framkvæmdastjóri norska læknafélagsins, dr. Harry M. Svabö og starfsfólk hans sér góðan tíma til að ræða hin ýmsu viðfangsefni skrifstofunnar. Var lögð aðaláherzla á upplýsingar um fræðslustarfsemi samtakanna, undirbúning kjarasamninga, samskipti við sjúkratrygg- ingar og starfsháttu skrifstofunnar við undirbúning mála fyrir stjórnarfundi. Sérstaka athygli vakti sá háttur, sem þeir hafa á undirbúningi stjórnarfunda. Fundir eru undirbúnir þannig, að öll mál, sem stjórnin fjallaði um, eru áður rædd af framkvæmdastjóra og viðkomandi deildar- stjóra skrifstofunnar, sem safna gögnum og gera skriflega tillögu til stjórnar um af- greiðslu. Tillögur þeirra ásamt dagskrá stjórnarfunda eru sendar stjórnarmönnum fyrir fundi. Stjónarmenn hafa þannig, áður en á fund kemur, kynnt sér öll þau mál, sem á dagskrá eru. Annað atriði, sem var sérlega áhugavert, er það, að norska læknafélagið hefur sett á stofn trúnaðarmannakerfi á öllum spítöl- um landsins. Trúnaðarmennirnir eru tengi- liðir læknasamtakanna og viðkomandi vinnuveitenda og er ætlað það hlutverk að leysa öll ágreiningsmál, sem upp koma á hverjum vinnustað milli lækna og vinnu- veitenda. Félagið heldur sérstök námskeið fyrir trúnaðarmennina um túlkun samn- inga. Norðmennirnir töldu, að þessi þáttur hefði létt ómældri vinnu af skrifstofu fé- lagsins. KJARAMÁL Gildandi kjarasamningar lækna eru allir lausir miðað við 1. nóvember 1979. Kröfu- gerðir sjúkrahúslækna, svo og megintillög- ur að sérkjarasamningi fyrir fastráðna lækna, hafa verið sendar viðsemjendum, enda er lögboðið, að þær skuli sendar sam- hliða uppsögn. Nánar er skýrt frá efni kröfugerðanna síðar í skýrslunni. Kjararáð í Kjararáði sitja formenn allra samn- inganefnda læknafélaganna. Ráðið hélt 3 fundi á starfsárinu og fjallaði um tillögur og önnur atriði varðandi kjarasamninga, sem vísað hefur verið til þess til umsagn- ar. Einnig hefur það fjallað um hugmyndir að kröfugerðum fyrir væntanlega kjara- samninga. Á síðasta fundi ráðsins í júní var eink- um fjallað um kröfugerð sjúkrahúslækna, sem þá var langt komin. Enn er talsvert starf óunnið til samræm- ingar á samningum um kjör einstakra hópa innan læknasamtakanna, en þó er það skoðun kjararáðsmanna, að nokkuð hafi miðað í rétta átt með starfi ráðsins og þeir, sem starfa í einstökum samninganefndum

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.