Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.09.1979, Page 81

Læknablaðið - 01.09.1979, Page 81
LÆKNABLAÐIÐ 215 Það virðist almenn álit þeirra, sem taxt- ann nota, að hann sé nú einfaldari en áður var. Gagnrýnt hefur verið lágt gjald fyrir vitjanir samanborið við vitjanagjöld á vöktum, þar sem númerasamningar eru. Því er ekki að leyna, að gagnrýni á hvern- ig einstaka læknar beita taxtanum, olli töf- um og erfiðleikum við samningsgerðina. Er enn eftir að móta af hálfu L.f. tillögur um eftirlit með beitingu taxtans og reiknings- gerð lækna og viðurlög, ef út af er brugðið. Þessar tillögur þarf L.í. að leggja fram fyrir 1. okt. 1979, sbr. bókun með samn- ingnum. L.í. og L.R. hafa sameiginlega skipað nefnd til að kanna mögulegar leiðir til slíks eftirlits. Breyting á sérkjarasamningi fyrir fastráðna Iækna 1. júlí 1978 voru starfandi heilsugæzlu- læknar skipaðir ásamt borgarlækni í Reykjavík til þess að gegna embættum héraðslækna (kjördæmislækna) til fjög- urra ára. Nokkurn tíma tók að semja um þóknun fyrir þessi störf, en í maí 1979 var gengið frá breytingu á sérkjarasamn- ingi. Fá þessir læknar 20% af launaflokki 116 í þóknun fyrir þessi störf frá skipun- artíma. Ný vottorðagjaldskrá Læknafélag Reykjavíkur gaf út nýja vottorðagjaldskrá í ársbyrjun 1979. Gjald- skrá þessi er notuð af öllum starfandi læknum og því rétt að skýra frá henni hér. Breytt var um form á verðlagningu vott- orða, þannig að gjaldið er nú ákveðið i ein- ingafjölda miðað við gjaldskrá sérfræðinga og breytist þannig um leið og eininga- verðið. Áður hafði gjaldskráin gilt fyrir heilt ár í einu og þá verið tekið mið af væntanlegum launabreytingum komandi árs við setningu hennar í upphafi árs. Má ætla, að þetta breytta fyrirkomulag mælist vel fyrir hjá læknum. Ágreiningur um ákvæði í samningi um sérfræðilæknishjálp Stjórn L.R. hafði samráð við stjórn L.l. um lausn þess ágreinings, sem upp kom, er almennur félagsfundur í L.R. sam- þykkti, að fellt skyldi niður í næsta samn- ingi ákvæði um eftirlitsnefnd með reikn- ingum lækna. Fundur þessi var haldinn að beiðni 30 lækna, sem töldu ákvæðið brjóta í bága við Codex Ethicus og landslög. Stjórnirnar hafa óskað eftir áliti Siða- nefndar á því, hvort ákvæðið brjóti gegn Codex Ethicus. Stjórn L.í. vonast til þess, að nefnd sú, sem minnst er á í kaflanum um sérkjarasamning hér að framan, skili áliti, sem hægt verði að leggja fyrir aðal- fundinn í haust. Undirbúningur nýrra kjarasamninga Samninganefndir sjúkrahúslækna hafa haldið sem næst vikulega fundi frá því í febrúar. Nefndirnar hafa haldið fundi með læknum á ríkisspítölunum og Borgarspít- ala, bæði til að þeir gætu komið fram með hugmyndir sínar og til að kynna endanlega kröfugerð. Helztu kröfur eru þessar: Vinnuvikan verði 36 klst., þar af verði 6 klst. ætlaðar til símenntunar, fræðslu heilbrigðisstétta, þátttöku í námskeiðum o.fl. þess háttar, yfirvinnugreiðsla hækki úr 1% af mánaðarlaunum í 1.25%, laun fyrir gæzluvaktir hækki úr 0.205% í 0.25%, laun á bundnum vöktum verði 0.4%. Þá er gerð krafa um, að vaktagreiðsl- ur hækki um 50% á tímabilinu kl. 12.00— 08.00 og á frídögum. Gerð er krafa um, að heimilt sé að taka frí í stað greiðslu fyrir yfirvinnu og komi 2ja klst. frí í stað unn- innar klst. Lífeyrissjóðsframlag atvinnu- rekanda hækki úr 6% í 8%. Vinna á göngudeildum verði metin tvöfalt við aðra vinnu. Þá er gerð krafa um auknar tíma- greiðslur fyrir útköll á vöktum. Farið er fram á breytingar á fríum fyrir vaktir og yfirvinnu og aukningu á orlofi, sem aukist með hækkuðum aldri, einnig að orlofsfé verði verðtryggt. Sérstök krafa, sem snert- ir unglækna aðallega, er sett fram um, að læknir, sem ráðinn er til skamms tíma, skuli eiga rétt á orlofi innan ráðningartím- ans. Sett er fram krafa um lengingu á heimiluðum veikindafjarvistum án frá- dráttar á launum. Ætlunin er einnig að reyna að fá bættar reglur um námsferðir og tryggingar lækna. Samninganefndir sérfræðinga utan sjúkrahúsa og heimilislækna hafa haldið nokkra fundi, en undirbúningur kröfugerða þeirra er ekki kominn á það stig, að unnt sé að rekja þær hér, enda er þeim ekki

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.