Læknablaðið - 15.02.1993, Page 6
48
LÆKNABLAÐIÐ
alþjóðlegri samvinnu því fremur hefur okkur
skort tæknilega aðstöðu og tæknilegan búnað
en hugvitið sjálft. Þetta hefur skilað okkur og
þjóðinni allri árangri og hinum stóra heimi
stundum mikilvægum upplýsingum. Enn má
það ekki gleymast að við höfum einnig átt
mikilvæga brautryðjendur á sviði vísinda og
er við hæfi að nefna hér starf Björns heitins
Sigurðssonar sem jafnan er kenndur við
Keldur. Ljóst er að fleiri munu skrá nöfn sín á
brautryðjendalistann fyrr en varir.
Svo sem undirstaða læknisstarfsins er
vísindaleg þekking er framkvæmd þess eftir
siðareglum okkar í Codex Ethicus. Aukin
tækni samhliða aukinni þekkingarleit, nýir
möguleikar til meðferðar og fleira, hefur allt
leitt til aukinnar siðfræðilegrar umræðu og
siðfræðilegrar niðurstöðu og markmiða. Full
þörf er aukinnar samvinnu læknasamtakanna
og læknadeildar Háskóla íslands á þessu
sviði. Mörgum spurningum er ósvarað í
Ijósi nýrra viðhorfa og aukinna möguleika.
Læknasamtökin hafa stofnað sitt eigið
siðfræðiráð og hlutverk þess er meðal
annars að vinna að stöðugri endurskoðun
á Codex Ethicus, að fjalla um álitamál og
ágreiningsntál er varða lífsiðfræði og að
ræða siðræn vandamál er varða læknastéttina
sérstaklega.
Fátt hefði verið betur viðeigandi í upphafi
afmælisárs en efni þau sem að ofan eru rædd
og kynnt í erindum þeim sem á eftir fara.
Sverrir Bergmann,
formaður LÍ