Læknablaðið - 15.02.1993, Side 24
66
LÆKNABLAÐIÐ
án þess að vera neitt sérstaklega á móti þeim
eða taka að öðru leyti afstöðu til þeirra.
ER ÞÖRF FYRIR GRUNNRANNSÓKNIR
í LÆKNISFRÆÐI Á ÍSLANDI?
Ekki þarf að hafa mörg orð um hin almennu
rök fyrir ástundun grunnrannsókna í
læknisfræði. Nauðsyn nýrrar eða aukinnar
þekkingar virðist augljós meðan fólk þjáist og
deyr úr ólæknandi sjúkdómum. Spurningin
snýst miklu frekar um, hvort ástæða og
raunhæfir möguleikar séu til að stunda slíkar
rannsóknir á Islandi. Ég get þó ekki stillt mig
um að greina hér frá mjög þekktri könnun,
sem bandarísku læknarnir Comroe og Dripps
gerðu á því, hvernig staðið hafði
verið að mikilvægum uppgötvunum í hjarta-,
æða- og lungnasjúkdómum. Þeir spurðu
spurningarinnar: Hver var aðdragandi þess
að tiltekin framfaraspor voru stigin? Þeir
komust að þeirri niðurstöðu að 41% þeirra
rannsókna, sem sköpum skiptu fyrir þessi
mikilvægu framfaraspor, hafi ekki haft neitt
samband, ekki einu sinni hugrenningatengsl,
við þá sjúkdóma sem þær seinna lögðu til
þekkingu til að fyrirbyggja, greina eða lækna.
Sem dæmi um spurningu sem leiddi til mjög
hagnýtra rannsókna var: Hvers vegita er
himinninn blár? Breski eðlisfræðingurinn
Tyndall sýndi fram á það með klassískum
athugunum, að litur himinbogans stafar af
fíngerðum ögnum í lofthjúpnum, sem við
horfum í gegnum út í geimmyrkrið. Hann
beitti síðan sömu tækni til að sýna fram á,
að í lofti sem innihéldi engar agnir og dreifði
því ekki ljósi, kviknuðu ekki bakteríur. Þannig
renndi hann stoðum undir hugmyndir Pasteurs,
sem ollu raunverulegri byltingu í líffræði og
læknisfræði, að líf kviknaði ekki af sjálfu
sér. Önnur afsprengi spurningarinnar um
orsök himinblámans má nefna: Skilningur
á hlutverki efri loftvega, mælingar á stærð
veira í náttúrulegu ástandi og sveigjanlegur
berkjuspegill.
Comroe, annar þeirra höfunda sem hér var
vitnað til, hefur einnig kannað nákvæmlega
öll skref, sem leitt hafa til þeirrar gagngeru
breytingar, sem orðið hefur á umönnun
fyrirbura og hefur stórbætt horfur þeirra.
Það þarf ekki að fjölyrða um það í þessum
hópi, að ein helsta ógn þessara barna er
öndunarbilun, vegna þess að vanþroskuð
lungu þeirra framleiða ófullnægjandi
Tafla.
Mælingar á sameindastærð
Rafskaut til mælinga á súrefni og koltvísýrlingi
Mæling á þrýstingi í vélinda
Rafeindasmásjá
Efnafræði fitu - sundurgreiningartækni
Uppruni fósturvökva
Taugagas og öndunarlömun
Sápuhimnur og sápukúlur
Þyngdarlögmál og gangur himintungla
Geislamerkt mótefni
Rafleiðni um strekktan vír
magn af sérstöku fosfólípíði, sem lækkar
yíirborðsspennu og varnar því, að lungun,
eða hlutar þeirra falli saman. í meðfylgjandi
töflu er langur listi efnisatriða, sem í fljótu
bragði virðast ekkert eiga sammerkt, en
rannsóknir eða þróun á öllum þessum
sviðum voru nauðsynlegir hlekkir í þeirri
framfarakeðju, sem gerir nútímameðferð
mögulega á öndunarörðugleikum barna, sem
fæðast fyrir tímann.
Af þessum athugunum verða þær ályktanir
dregnar, að framfarir á rúmstokknum,
það er framfarir í öllu því sem lýtur að
greiningu og meðferð sjúkdóma, þarfnist
margs konar rannsókna á mörgum sviðum;
grunnrannsókna, skipulegra nytjarannsókna,
tækniþróunar og svo framvegis. Þegar
Comroe og Dripps reyndu að meta hvers
konar rannsóknir leiddu til mestra framfara
varð niðurstaðan sú, að grunnrannsóknir
skiluðu ríkulegustum árangri, þótt aðeins væri
lagt hagnýtt mat á árangurinn. Hér kemur
fram sú þversögn, að því óhagnýtari sem
rannsóknirnar voru í upphafi því hagnýtari
hafi þær orðið þegar öll kurl voru komin
til grafar. Ef þetta er orðað öðruvísi skilst
ef til vill lærdómurinn í þversögninni: Því
óháðari sem menn hafa verið skammtíma
hagnýtingarsjónarmiðum því frjálsari hafa
þeir verið að leita grundvallarskilnings. Ef
slíkur grundvallarskilningur finnst er aðeins
tímaspursmál hvenær hann er hagnýttur.
Ég hygg að frekari rökstuðnings sé ekki
þörf um almennt og raunverulega mjög
hagnýtt gildi grunnrannsókna í læknisfræði.
Spurningarnar sem að okkur snúa eru miklu
fremur: Eiga Islendingar að verja fjármunum
til grunnrannsókna í læknisfræði? Og sé svo,
hvaða rannsókna?
Ýmis rök má færa gegn því að skynsamlegt