Læknablaðið - 15.08.1994, Side 44
250
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
lítið toglos en engin göt í sambandi við það. í samtali
við sjúkling kom í ljós að hann var fyrirburi og vóg
1250 g við fæðingu. Breytingar í augnbotnum taldar
vera menjar eftir „fyrirbura augnveiki“ (retinopathy
of prematurity) en ekki tengdar slysinu.
13. Sjúkratilfelli
Kristján Þórðarson
Sagt var frá sjúkratilfelli tæplega fimmtugrar
konu, sem hafði farið í æðagúlsaðgerð á art. com-
municans anterior, en sú æð tengir saman vertibralis
og carotis æðakerfið. Sjúklingur leitaði sjálfur á
stofu augnlæknis þrem mánuðum eftir þessa aðgerð
vegna minnkaðrar sjónar og truflunar á sjóninni.
Skoðun sýndi mikla minnkun á sjónskerpu,
sjónsvið sýndi bitemporal hemianopsiu. Augnbotn-
ar voru eðlilegir sérstaklega ekkert athugavert við
papillur. Tölvusneiðmynd var eðlileg. Byrjað var á
sterameðferð, og sjónskerpa og sjónsvið notuð sem
mælikvarði á árangur meðferðar.
Undirstrikaðir voru kostir þeirra ódýru „funk-
tionellu" rannsókna sem sjónsviðs- og sjónskerpu-
mæling er til þess að fylgjast með sjúklingum eftir
slíka aðgerð. Varpað var fram spurningu um nánara
samstarf augnlækna og heilaskurðlækna.
14. Er augnþrýstingur í öðru
auga háður þrýstingnum í hinu?
Eiríkur Þorgeirsson1, Haraldur Sigurösson1, Ár-
sæll Arnarsson2, Þór Eysteinsson2, Einar Ste-
fánsson1,2.1 Augndeild Landakotsspítala,2 Rann-
sóknastofa í lífeðlisfræði, læknadeild H í.
Háþrýstingur í augum er eitt helsta einkenni
giáku. Stjórn augnþrýstings er flókið ferli og ræðst af
samspili margra þátta, þar sem margir ólíkir viðtak-
ar koma við sögu. Talið hefur verið að stjórn augn-
þrýstings í hvoru auga sé óháð þrýstingi í hinu. Þekkt
er að þrýstingur getur lækkað í gagnstæðu auga
þegar þrýstingslækkandi augndropum er dreypt í
hitt. Þessi áhrif eru talin berast um blóðrás. Mögu-
legt er að stjórn augnþrýstings ráðist einnig af boð-
flutningi á milli þeirra með öðrum hætti en um blóð-
rás, s.s. með beinum skynboðum um taugakerfi.
Markmið þessa verkefnis er að prófa þá tilgátu að
augnþrýstingsbreyting á öðru auga hafi bein áhrif á
augnþrýsting í hinu auganu. Verður greint frá fyrstu
niðurstöðum tilrauna, þar sem tilgátan var prófuð
og gerð grein fyrir tilraunalíkaninu. Tilraunadýr eru
marsvín, sem eru svæfð. Augnþrýstingur er mældur
samfellt með þrýstingsnemum og skráður rafrænt
inn á tölvu. Hver tilraun tekur 10 til 14 klst. Ýmsir
tæknilegir byrjunarörðugleikar eru á framkvæmd-
inni, en fyrstu niðurstöður tilrauna benda til að til-
gátan geti staðist. Þannig hefur tekist að mæla veru-
lega hækkun á augnþrýstingi gagnstæða augans
þegar þrýstingur á hinu er hækkaður.
15. Leber’s Hereditary Optic
Neuropathy í íslenskri fjölskyldu
Þórður Sverrisson. Augndeild Landakots-
spítala
Fyrir rúmum 100 árum lýsti þýski augnlæknirinn
Leber arfgengum sjóntaugarsjúkdómi sem ber hans
nafn. Sjúkdómurinn leggst aðallega á unga karlmenn
og veldur skyndilegu og alvarlegu sjóntapi. Venjulega
leggst sjúkdómurinn á bæði augu með stuttu millibili.
Miðlæg sjón skerðist varanlega og einnig miðlægt
sjónsvið. Erfðamáti sjúkdómsins var lengi ráðgáta.
Á síðustu árum hafa fundist stökkbreytingar í mi-
tochondrial DNA þessara sjúklinga og skýrir það
erfðamynstrið frá móður til sonar. Önnur áhrif þurfa
þó greinilega að koma til þannig að sjúkdómurinn geri
sig gildandi.
Fyrstu íslensku fjölskyldunni með Leber’s Heredit-
ary Optic Neuropathy er lýst. Tveir einstaklingar hafa
fengið hina fullu sjúkdómsmynd. Greinst hefur stökk-
breyting ND/3460 í mitochondrial DNA. Ættin er
verulega heteroplasminsk, þannig að mjög mismikið
af mitochondrial DNA er stökkbreytt eftir einstak-
lingum og er þeirri tilgátu varpað fram í ljósi hinnar
klínísku myndar að heteropiasmy kunni að hafa áhrif á
hvenær sjúkdómurinn geri sig gildandi en ekki hversu
alvarleg sjónskerðingin verði.
16. Bráðadrep í sjónu,
sjúkratilfelli
Ingimundur Gíslason. Augndeild Landakotsspít-
ala, Reykjavík
Sagt er frá 51 árs gamalli konu sem kom til augn-
læknis með öll helstu einkenni bráðadreps í sjónu í
vinstra auga. Þau voru lithimnubólga, bráða vefjadrep
í útjaðri sjónu og glerhlaupsbólga. Sjónhimna losnaði
síðan að hluta frá eins og getur gerst þegar bólguvið-
brögðin í auganu fara að hjaðna.
Orsök þessa augnsjúkdóms er sýking af völdum
HSV eða HZV veiru. Meðferð fellst í gjöf acyklovir en
einnig eru gefnir sterar þegar bólgan er mikil í forhólfi
eða glerhlaupi. Sjúklingar sem fá bráðadrep í sjónu
eru yfirleitt við góða heilsu fyrir sýkingu ólíkt þeim
sem sýkjast með CMV sjónbólgu, en í þeim flokki eru
alnæmissjúklingar í meiri hluta. Eftir því sem næst
verður komist er þetta í fýrsta skipti sem bráðadrep í
sjónu greinist á Islandi.