Læknablaðið - 15.08.1994, Síða 64
264
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Heilsustofnun
N.L.F.Í.
í ágústmánuði næstkomandi
hefjast hópmeðferðir að nýju
eftir sumarhlé. Verður þar um
eftirfarandi fjögurra vikna áætl-
anir að ræða:
* Skipulagða hópmeðferð á
sjúklingum með óþægindi frá
baki.
* Endurhæfingu hjartasjúk-
linga.
* Offitumeðferð.
Pá kemur til með að hefjast
ný tegund hópmeðferðar sem er
fyrir konur með áreynsluþvag-
leka. Pessi meðferð verður í
samráði við Eirík Jónsson þvag-
færaskurðlækni. Þeir læknar
sem senda vilja skjólstæðinga
sína á Heilsustofnun til með-
ferðar í þessum hópum sendið
vinsamlegast beiðni um það.
Óski læknar eftir nánari upp-
lýsingum um þessa meðferð eða
aðra meðferðarmöguleika á
Heilsustofnun er þeim vinsam-
legast bent á að hafa samband
við Guðrúnu Friðriksdóttur
þjónustufulltrúa eða Guðmund
Björnsson yfirlækni í sírna
98-30 300.
Athugasemd
Um framtíðarsjúkrahús - öldrunardeildir
Vegna greinar félaganna Pálma V. Jónssonar og Þórs Halldórs-
sonar um framtíðarsjúkrahús og öldrunarlækningar í Fréttabréfi
lækna 6/94.
Landlæknir hefur ekki gleymt öldrunarlækningum. Hvernig má
það vera þar eð landlæknir nálgast nú óðum þann aldur að öldrun-
ardeildin bíður hans ef Guð lofar.
Grein mín fjallaði um bráðasjúkrahús. Tími umfjöllunar bíður
vegna anna.
Ólafur Ólafsson
landlæknir
Aðvörun
Rivotril lyfjaeitrun
Landlæknisembættinu hefur í dag (7.7.94) borist tilkynning
frá Landspítalanum, lyflækningadeild, um að þrjú ungmenni
hafi nú á stuttum tíma verið lögð inn vegna Rivotril lyfjaeitr-
unar, eitt þeirra var meðvitundarlaust við komu. Ungmenn-
in leituðu til lækna og kváðust þjást af flogaveiki.
Með þessu vill landlæknir vara lækna við.
Landiæknir
Vorúthlutun úr Vísindasjóði FÍH
Stjórn Vísindasjóðs Félags íslenskra heimilislækna hefur veitt eftirfarandi styrki á
vormisseri 1994:
Gæðatrygginganefnd FÍH til fræðslu og fundahalda, kr. 150.000.
Könnun á brjóstagjöf. Hjálmar Freysteinsson, kr. 80.000.
Notkun róandi lyfja og svefnlyfja. Jóhann Ág. Sigurðsson, kr. 160.000.
Fæðuofnæmi hjá börnum. Jón Steinar Jónsson, kr. 50.000.
Samband sykurþols/próteinurins/háþrýstings. Karl Kristjánsson, kr. 70.000.
Verkir barna. Ólafur Mixa, kr. 300.000.
Samskipti á heilsugæslustöðvum. Porsteinn Njálsson, kr. 420.000.
Umsóknarfrestur fyrir haustmisseri er til 1. október næstkomandi og skulu umsóknir
sendast ritara heimilislæknisfræði, Háskóla íslands, Sigtúni 1, 105 Reykjavík, þar sem
umsóknareyðublöð fást.