Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1995, Side 20

Læknablaðið - 15.10.1995, Side 20
714 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 Þetta yfirlit um almennar réttlætiskenningar geldur að vísu stuttleika síns en það greiðir þó vonandi fyrir skilningi á þeim einstöku for- gangskvörðum a)-h) sem upp hafa verið taldir og nú er orðið mál að hyggja betur að. F organgskvarðarnir Nærri má geta að ekki verði, í almennu yfir- liti, grafið fyrir rætur allra þeirra tillagna sem fram hafa verið bornar um rétta forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu, svo vítt og djúpt sem þær standa. Ég mun hér á eftir tíunda fyrrnefnda kosti, a)-h), og leita síðan agnúanna á hverjum fyrir sig með því að telja upp, í hálfgerðum stikkorðastfl, helstu rökin sem menn hafa fært gegn þeim. Ekki er tóm hér til að útmála rökin fyrir hverjum kosti, enda leiðir flest þeirra af hinni almennu siðferðisafstöðu sem að baki býr (sjá kaflann Hvað er réttlœti?). Né heldur er möguleiki á að vega og meta hvert gagnrýn- isatriði sem upp verður talið. Á einstaka stað er bent á hvernig talsmenn viðkomandi kvarða myndu (að líkindum) svara gagnrýninni, en yfirleitt er lesendum látið eftir að meta hversu veigamikill hinn meinti ágalli sé og hvort hann nægi til að granda kvarðanum. í lokakaflanum gaumgæfi ég hins vegar aftur suma umtöluð- ustu kvarðana og reyni að leggja á þá mat út frá eigin heimspekilegum forsendum. a) Verðskuldunarkvarði. í krafti verðskuld- unarkenningarinnar um réttlæti mælir þessi kvarði fyrir um að þeim skuli skipað aftast í forgangsröð sem síst verðskuldi þjónustuna, vegna vals á óheilbrigðum lífsháttum. Syndum bera gjöld, og manni sem auðsýnir áhættu- hegðun bera þau gjöld að vera fráskila ger um sinn skerf úr hinum sameiginlega sjóði (þar sem heilbrigðiskerfið er ríkisrekið). Ekki næg- ir að sjálfsögðu að viðkomandi sé ábyrgur fyrir eigin hegðun, eins og brunaliðs- eða björgun- arsveitarmaður er ábyrgur fyrir því að velja áhættusaman starfa, heldur verður starfinn að vera saknœmur í þeim skilningi að hann sé lasts verður en ekki lofs (30): Reykingar, ofdrykkja, eiturlyfjaneysla, varasöm kynhegðun, of- dirfska af hvaða tagi sem er og svo framvegis. Þá dugir ekki sem afsökun að hegðunin stafi af fíkn sem maður ráði ekki við, því að fíkillinn vann sér það til óhelgi að gefa sig fíkninni á vald í upphafi þegar honum stóð enn til boða að koma sér ekki á bragðið. Engar málsbætur felast heldur í því í heimshluta okkar að þykjast óvitandi um heilbrigða og óheilbrigða lífshætti: Rannsóknir staðfesta sífellt að þær fáu, ein- földu meginreglur um forse.ndur heilbrigði sem við lærðum í heilsufræðinni okkar í barnaskóla standast (31). Forseti handlækningadeildar Columbia-læknaskólans ályktar að til að bæta heilsufar almennings þurfi að taka upp „kerfi umbunar og refsinga, byggt á einstaklingsvali", og heimspekingurinn Robert M. Veatch geng- ur svo langt að staðhæfa að það væri ekki aðeins sanngjarnt að fífldirfingar, sem bakað hafa sér mein sín sjálfir, fengju aðra fyrir- greiðslu en þeir sem ólánið hefur steypst yfir ófyrirsynju; það væri beinlínis ranglátt ef ekki yrði gert upp á milli þeirra (32). Gagnrýni: 1) Þessi kvarði skapaði óleysan- legan úrskurðarvanda í mörgum tilvikum: Starfsmaður í álveri, sem reykt hefur tvo pakka af vindlingum á dag, fær lungnakrabba- mein. Stafar meinið af reykingunum eða vinnuumhverfinu? 2) Er nokkur frjáls ákvörð- un til; erum við ekki öll leiksoppar óviðráðan- legra afla í umhverfi og/eða eigin sálarlífi? Ætl- um við þannig að segja við heróínsjúkling úr fátækrahverfi, eða konu sem ítrekað reynir að fremja sjálfsvíg vegna ástleysis foreldra og eig- inmanns, að þau fái ekki opinbera aðstoð þar sem þau eigi hana ekki skilið? 3) Er ekki nógu erfitt að tilkynna einstaklingi að hann þurfi að mæta afgangi vegna fjárskorts í heilbrigðiskerf- inu þó að ekki sé bætt gráu ofan á svart með því að staðhæfa að hann verði hafður útundan vegna þess að hann eigi ekki betra skilið? (Þessi rök hljóma þó grunsamlega svipað og önnur, ógild: Er ekki nógu erfitt að segja manni að loka verði hann inni í fangaklefa þó að ekki sé bætt við að loka eigi hann inni vegna þess að hann hafi brotið af sér?!) 4) Það kæmi úr hörðustu átt að ríkisvaldið, sem sjálft selur og/eða heimilar sölu á vímuefnum, ætlaði svo að refsa fólki fyrir að neyta þeirra. 5) Er ekki hampaminna að skattleggja áhættuvaldana fyrirfram (hækka til dæmis enn verð á áfengi og tóbaki) í stað þess að reyna að hanka fórnar- lömbin eftir á? Þessi rök hrína þó ekki á öllum áhættuvöldum; til dæmis er torvelt að hugsa sér leið til þess að skattleggja varasama kyn- hegðun, eða ofát, fyrirfram. b) Þarfakvarði. Þar sem líf allra er jafnmikils virði, segja jafnaðarmenn, skulu þeir njóta for- gangs sem mest þurfa á þjónustunni að halda. Þetta er meðal annars skoðun sósíalistans Kai Nielsen (33). Nielsen efast að vísu um að skömmtunarumræðan eigi yfirhöfuð við í

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.