Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1995, Page 44

Læknablaðið - 15.10.1995, Page 44
734 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 Ágrip erinda frá ársþingi Augnlæknafélags íslands 1995 Ársþing Augnlæknafélags íslands 1995 var haldið í fundarsal læknafélaganna í Hlíðasmára 8, föstudaginn 31. mars og iaugardaginn 1. apríl. Hér á eftir fara ágrip nokkurra erinda sem flutt voru á ársþinginu. 1. Breytingar á öxullengd og glærukúpu með aldri Vésteinn Jónsson, Jens Þórisson Hér eru birtar fyrstu niðurstöður úr rannsókn á þessu viðfangsefni sem höfundar vinna að. A St. Jósefsspítala í Hafnarfirði hefur frá árinu 1990 verið notað handhægt tæki til mælingar á lengd augna þeirra sjúklinga sem koma þangað til aðgerð- ar vegna skýs á augasteini (BIO-PEN, Mentor). Þegar einnig hefur verið mæld glærukúpa má reikna út með svonefndri SRKII jöfnu (1) hvaða gerviauga- steinn henti í augað. Höfundar þróuðu tölvuforrit til að sjá um útreikningana og halda til haga gögnum þessum. Athuguð voru mæligildi 454 sjúklinga sem skoð- aðir höfðu verið frá september 1991 til febrúar 1995. Tafla I sýnir samantekt á niðurstöðunum. Þessar tölur eru í allgóðu samræmi við niðurstöð- ur úr ýmsum erlendum rannsóknum (2-5), sem sum- ar hafa sýnt marktækan mun á stærð augna milli kynja. Þegar mæligildin eru sett upp í dreifigraf og reikn- uð lína sem lýsir tilhneigingu þá koma fram eftirfar- andi myndir. Mynd 1 sýnir breytingu á öxullengd en mynd 2 breytingu á glærukúpu með aldri. Af gröfunum má sjá að í þessu úrtaki virðist lengd augans minnka með aldrinum um leið og glæran verður kúptari. Þessi tilhneiging er svipuð hjá báð- um kynjum. Þrátt fyrir að þessi mælitækni sé ekki ný af nálinni og ókjör af slíkum mælingum hafi verið framkvæmdar er ekki að finna margar rannsóknir sambærilegar við þessa við heimildaleit. Leighton og Tomlinson gerðu litla samanburðarrannsókn á pör- uðum einstaklingum sem voru samt misgamlir og fundu marktækan mun á K-gildum og öxullengd eins og þessar niðurstöður benda til. Midelfart og Aamo fundu vísbendingar í sömu átt. Hugsanlegir skekkjuvaldar í þessu dæmi eru til dæmis þeir að meðalhæð fullorðinna fslendinga fer vaxandi með hverri kynslóð og því fylgir ef til vill að augað fari stækkandi. Athuga ber einnig að ekki er um að ræða heilbrigð augu heldur með skýjaðan augastein og er því ekki víst að hann endurspegli heildina hvað varðar þessar breytur. Unnið er að frekari tölfræðilegri úrvinnslu gagn- anna til að fá skýrari mynd af þessu og hvort um marktæka tilhneigingu sé að ræða. HEIMILDIR 1. Retzlaff JA, Sanders DS, Kraff M. Lens implant power calculation. A manual for ophthalmologists & biome- trists. Thorofare, NJ, USA: Slack Inc, Grove Road, 1990. 2. Leighton DA, Tomlinson A. Changes in axial length and other dimension of the eyeball with increasing age. Acta Ophthalmol 1972; 50: 815-26. 3. Hoffer KJ. Biometry of 7,500 cataractous eyes. Am J Ophthalmol 1981; 90: 360-8. 4. Fledelius HC. Refraction and eye size in the elderly. A review based on literature, including own results. Acta Ophthalmol 1988; 66: 241-8. 5. Midelfart A, Aamo B. Ocular parameters in elderly in Norway. Acta Ophthalmol 1994; 72: 61-6.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.