Læknablaðið - 15.10.1995, Blaðsíða 44
734
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Ágrip erinda frá ársþingi
Augnlæknafélags íslands 1995
Ársþing Augnlæknafélags íslands 1995 var haldið í fundarsal læknafélaganna í Hlíðasmára 8,
föstudaginn 31. mars og iaugardaginn 1. apríl.
Hér á eftir fara ágrip nokkurra erinda sem flutt
voru á ársþinginu.
1. Breytingar á öxullengd og
glærukúpu með aldri
Vésteinn Jónsson, Jens Þórisson
Hér eru birtar fyrstu niðurstöður úr rannsókn á
þessu viðfangsefni sem höfundar vinna að.
A St. Jósefsspítala í Hafnarfirði hefur frá árinu
1990 verið notað handhægt tæki til mælingar á lengd
augna þeirra sjúklinga sem koma þangað til aðgerð-
ar vegna skýs á augasteini (BIO-PEN, Mentor).
Þegar einnig hefur verið mæld glærukúpa má reikna
út með svonefndri SRKII jöfnu (1) hvaða gerviauga-
steinn henti í augað. Höfundar þróuðu tölvuforrit til
að sjá um útreikningana og halda til haga gögnum
þessum.
Athuguð voru mæligildi 454 sjúklinga sem skoð-
aðir höfðu verið frá september 1991 til febrúar 1995.
Tafla I sýnir samantekt á niðurstöðunum.
Þessar tölur eru í allgóðu samræmi við niðurstöð-
ur úr ýmsum erlendum rannsóknum (2-5), sem sum-
ar hafa sýnt marktækan mun á stærð augna milli
kynja.
Þegar mæligildin eru sett upp í dreifigraf og reikn-
uð lína sem lýsir tilhneigingu þá koma fram eftirfar-
andi myndir. Mynd 1 sýnir breytingu á öxullengd en
mynd 2 breytingu á glærukúpu með aldri.
Af gröfunum má sjá að í þessu úrtaki virðist lengd
augans minnka með aldrinum um leið og glæran
verður kúptari. Þessi tilhneiging er svipuð hjá báð-
um kynjum. Þrátt fyrir að þessi mælitækni sé ekki ný
af nálinni og ókjör af slíkum mælingum hafi verið
framkvæmdar er ekki að finna margar rannsóknir
sambærilegar við þessa við heimildaleit. Leighton og
Tomlinson gerðu litla samanburðarrannsókn á pör-
uðum einstaklingum sem voru samt misgamlir og
fundu marktækan mun á K-gildum og öxullengd eins
og þessar niðurstöður benda til. Midelfart og Aamo
fundu vísbendingar í sömu átt.
Hugsanlegir skekkjuvaldar í þessu dæmi eru til
dæmis þeir að meðalhæð fullorðinna fslendinga fer
vaxandi með hverri kynslóð og því fylgir ef til vill að
augað fari stækkandi. Athuga ber einnig að ekki er
um að ræða heilbrigð augu heldur með skýjaðan
augastein og er því ekki víst að hann endurspegli
heildina hvað varðar þessar breytur.
Unnið er að frekari tölfræðilegri úrvinnslu gagn-
anna til að fá skýrari mynd af þessu og hvort um
marktæka tilhneigingu sé að ræða.
HEIMILDIR
1. Retzlaff JA, Sanders DS, Kraff M. Lens implant power
calculation. A manual for ophthalmologists & biome-
trists. Thorofare, NJ, USA: Slack Inc, Grove Road, 1990.
2. Leighton DA, Tomlinson A. Changes in axial length and
other dimension of the eyeball with increasing age. Acta
Ophthalmol 1972; 50: 815-26.
3. Hoffer KJ. Biometry of 7,500 cataractous eyes. Am J
Ophthalmol 1981; 90: 360-8.
4. Fledelius HC. Refraction and eye size in the elderly. A
review based on literature, including own results. Acta
Ophthalmol 1988; 66: 241-8.
5. Midelfart A, Aamo B. Ocular parameters in elderly in
Norway. Acta Ophthalmol 1994; 72: 61-6.