Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1995, Side 50

Læknablaðið - 15.10.1995, Side 50
740 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 miðmæti voru eðlilegar. Tölvusneiðmynd af spjaldliðum (articulatio sacroiliaca) var eðlileg. Blöðruspeglun sýndi nokkrar bólgubreytingar og fékk sjúklingur Doxycycline sem langtímameðferð við þvagfærasýkingu. í september höfðu sjónhimnublæðingarnar minnkað mjög og í nóvembermánuði voru þær horfnar. Notkun Trimethoprimum/Sulfamethoxazole (Pri- mazol®/Bactrim®) við þvagfærasýkingum er al- menn hér á landi sem annars staðar. Aukaverkanir súlfonamíða eru margar og vel þekktar. Trimetho- primum/Sulfamethoxazole er talið vera þrisvar sinn- um líklegra til að valda útbrotum á húð en Sulfa- methoxazole eitt og sér. Lithimnubólga er sjaldgæf aukaverkun súlfonamíða og voru einungis 12 banda- rísk tilfelli skráð á árunum 1976 til 1989 hjá US Food and Drug Administration og The National Registry of Drug-Induced Ocular Side Effects. Sjónhimnublæðingar eru mjög sjaldgæf aukaverk- un af Sulfamethoxazole. Þetta tilfelli er hið eina sem tilkynnt hefur verið í kjölfar Trimethoprimum-gjaf- ar án Sulfamethoxazole. Notkun súlfonamíða og Trimethoprimum er mjög almenn hér á landi og nauðsynlegt að vera á varð- bergi gagnvart aukaverkunum þeirra, þótt sjaldgæf- ar séu. 10. Gláka á Vesturlandi Guðrún J. Guðmundsdóttir Markmið þessarar athugunar var annars vegar að kanna algengi gláku á Vesturlandi og hins vegar að kanna hvort algengi væri mismikið eftir svæðum inn- an fjórðungsins. I könnun sem gerð var á fyrra ári á sjóndepru á Vesturlandi kom í Ijós að tíðni sjón- skerðingar vegna gláku var mjög misjöfn eftir svæð- um, minnst á Akranesi þar sem 0,11% íbúa voru sjónskertir á öðru eða báðum augum vegna gláku en mest í Dalasýslu eða 1,26% íbúa. Markmiðið nú var því meðal annars að kanna hvort gláka væri í raun algengari í Dalasýslu eða hvort aðrar skýringar fynd- ust, svo sem hærri meðalaldur íbúa á þessu svæði. Upplýsingar voru fengnar úr sjúkraskrám og tald- ir allir einstaklingar sem voru á lyfjameðferð vegna gláku eða höfðu gengist undir augnaðgerð vegna gláku og voru á lífi 1. desember 1994. Undanskildir voru einstaklingar með glákugrun. Niðurstöður: Skráðir voru 149 einstaklingar með gláku, þar af 147 eldri en 50 ára og voru þeir allir með hæggenga gláku. Karlar voru 79 eða 53% en konur 70 eða 47%, er það kynjahlutfall í samræmi við aðrar kannanir. Heildaralgengi miðað við íbúa- fjölda var 1,02%, 1,05% karla en 0,99% kvenna. Algengi meðal íbúa 50 ára og eldri var 4,33% (karlar 5,53%, konur 4,12%) og60 ára og eldri 6,47% (karl- ar 6,83%, konur 6,47%). Algengi gláku var flokkað nánar eftir kyni og fimm ára aldursflokkum, fór algengi mjög vaxandi í eldri aldursflokkunum til dæmis voru 15,8% karla og 18,6% kvenna á aldrin- um 80-84 ára með gláku en 22,7% karla og 11,8% kvenna 85 ára og eldri. Samanburður við könnun Guðmundar Björns- sonar og Guðmundar Viggóssonar 1982 á gláku á landinu öllu sýnir að bæði þá og nú er algengi gláku á Vesturlandi nokkuð yfir landsmeðallagi, einkum í eldri aldursflokkunum (80 ára og eldri). Allt landið 1982; 10,8%, Vesturland 1982; 15,2% og Vesturland 1994; 16,8%. Heildaralgengi eftir svœðum: Akranes 0,84%, Snæfellsnes 0,84%, Mýra- og Borgarfjarðarsýsla I, 13%, Reykhólahreppur 1,44, Dalasýsla 2,37%. Fimmtíu ára og eldri; Akranes 3,56%, Snæfellsnes 4,24%, Mýra- og Borgarfjarðarsýsla 4,31%, Reyk- hólahreppur 5,10%, Dalasýsla 8,23%. Sextíu ára og eldri; Akranes 5,38%, Snæfellsnes 6,90%, Mýra- og Borgarfjarðarsýsla 6,04%, Reykhólahreppur 7,46%, Dalasýsla 11,8%. Sjónskertir glákusjúklingar: Attatíu og þrír sjúk- lingar voru sjónskertir á öðru auga eða báðum (mið- að við sjón minni en 0,3), það er 55,75% allra gláku- sjúklinga. Tíðni var minnst á Snæfellsnesi (44,7%) en mest í Dalasýslu (65%). Margir voru sjónskertir fyrst og fremst af öðrum orsökum og voru þeir flokk- aðir úr, reyndust 43 sjónskertir á öðru eða báðum augum af völdum gláku eingöngu eða 43% allra glákusjúklinga. Skipting eftir svæðum: Akranes 13,9%, Snæfellsnes 23,7%, Mýra- og Borgarfjarðar- sýsla 31,8%, Reykhólahreppur 60%, Dalasýsla 55%. Blinda af völdum gláku: Þrjátíu og einn sjúk- lingur var blindur á öðru auga eða báðum vegna gláku, það er 20,8%. Skipting eftir svæðum: Akranes 10%, Snæfeilsnes 8%, Mýra- og Borgarfjarðarsýsla 28%, Reykhóla- hreppur 40%, Dalasýsla 50%. Það er því niðurstaða þessarar könnunar að bæði er algengi gláku meira í Dalasýslu og Reykhóla- hreppi en á öðrum svæðum og einnig mun meira um sjónskerðingu og blindu af völdum gláku á þessum sömu svæðum. II. Bogfrymlasótt á Landakotsspítala 1985-94 Ólafur Grétar Guðmundsson Bogfrymlasótt (toxoplasmosis) er algengasta þekkta orsök æðu- og sjónubólgu (chorioretinitis) í heiminum og er ein talin orsök tæplega þriðjungs allra tilfella. Sýkingin er þekkt um allan heim en er mjög misalgeng eftir löndum. I Mið-Ameríku og Frakklandi er allt að 90% fólks með mótefni gegn sýklinum í blóði en hér á Islandi er tíðnin talin á bilinu 4-17%. í Bandaríkjunum er tíðnin 3-30%, mismunandi eftir fylkjum.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.