Læknablaðið - 15.10.1995, Qupperneq 51
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
741
Bogfrymill (toxoplasma gondii) er frumdýr (pro-
tozoa) eða gródýr (sporozoa), náskylt malaríusýkl-
inum og fjölgar sér inni í frumum og getur sýkt bæði
dýr og menn. Aðalhýslar sýkilsins eru dýr af katta-
ætt. Bogfrymlasótt er næstum alltaf meðfædd en
áunnin sýking kemur þó fyrir. Sjúkdómsmyndir bog-
frymlasóttar eru fjórar talsins: Meðfædd, almenn
bogfrymlasótt, meðfædd, afturvirk bogfrymlasýking
í augum, áunnin bogfrymlasótt og bogfrymlasótt í
ónæmisbældum sjúklingum. Kerfisbundin
bogfrymlasýking er oftast vægur og góðkynja sjúk-
dómur nema sjúklingurinn sé annað hvort barnshaf-
andi kona eða ónæmisbældur. Ef barnshafandi kona
sýkist af bogfrymlasótt eru um 40% líkur á að barn
hennar muni sýkjast. í Bandaríkjunum eru líkurnar
á að kona ali barn sýkt af bogfrymlasótt taldar vera
um 1:10.000.
Meðfædd, kerfisbundin bogfrymlasótt getur verið
bæði virk og óvirk við fæðingu. Frá klínísku sjónar-
horni er bæði meðfædda augnbólgan og hin áunna
bráð, afmörkuð æðu- og sjónubólga sem verður aft-
urvirk á aldrinum 11-40 ára. Pó frumorsök sjúk-
dómsins sé vissulega sýkillinn toxoplasma gondii,
leika ýmsir aðrir þættir mikilvæg hlutverk, einkum
ýmiss konar hýsilviðbrögð, sérlega af hálfu ónæmis-
kerfisins. Helstu mismunagreiningar við meðfædda
bogfrymlasótt í augum eru: Meðfædd lituglufa (col-
oboma) í macula, cýtómegalóvírusbólga, herpes
simplex æðu- og sjónubólga, nýburahemólýsa, toru-
losis, heilaskaði og sjónukímfrumuæxli (retinoblas-
toma). Hjá fullorðnum er rétt að hafa í huga berkla,
hvítsveppasýkingu (candidiasis) og váfumyglu (his-
toplasmosis). Greiningin byggist einkum á sjúk-
dómseinkennum og blóðvatnsprófum. Meðferð er
með barksterum en einnig sérhæfðum sýklalyfjum.
Á 10 ára tímabili, 1985-94, fengu 10 sjúklingar á
Landakotsspítala, fimm af hvoru kyni, greiningu
sem benti til að þeir hefðu fengið eða verið grunaðir
um bogfrymlasótt. Meðalaldur þeirra var 18,6 ár
(tveggja mánaða til 34 ára). Níu sjúklinganna höfðu
augnbólgu en einn eitlabólgu í holhönd. Gerð er
grein fyrir sjúkrasögum þeirra.
12. Framvirk rannsókn á
sjónlagsbreytingum á fímm árum
Eiríkur Þorgeirsson, Kristján Þórðarson
Með rannsókninni er leitast við að svara þeirri
spurningu, hvort breyting verði á sjónlagi fólks á
fimm ára tímabili. Jafnframt er kannað hvort besta
sjónskerpa með gleraugum breytist á sama tíma.
Rannsóknin hófst 1989 og henni lauk 1994. Allir
sjúklingarnir voru skoðaðir af sama augnlækni í upp-
hafi og við lok rannsóknar. Sjúklingarnir eru hjarta-
sjúklingar sem taka þátt í tvíblindri lyfjarannsókn á
kólesteróllækkandi lyfi, Simvastatin (MSD). Við
upphaf rannsóknar voru sjúklingar 50 til 75 ára. Eitt
hundrað tuttugu og fjórir hófu þátttöku. Um það bil
10% létust á tímabilinu. Nokkrir voru útlokaðir
vegna annarra augnsjúkdóma, svo sem gláku, ský-
myndunar og sykursýki. I lokavinnslu féllu tveir ein-
staklingar út vegna mikilla frávika. Eftir stóðu 99
sjúklingar. Þeim var skipt í fimm hópa eftir aldri.
Niðurstöður:
1. Breyting á sjónlagi: í tveimur yngstu hópunum
(22 sjúklingar) er væg tilhneiging til aukinnar fjar-
sýni, +0,15. í tveimur næstu aldurshópum (55 sjúk-
lingar) verður ekki breyting á sjónlagi. Elsti aldurs-
hópurinn, 70 til 75 ára, sýnir væga aukningu á nær-
sýni, -0,45 sjónlagseiningar. Ekki er munur á hægra
og vinstra auga.
2. Breyting á sjónskerpu: Allir hóparnir sýna lítils-
háttar tilhneigingu til minnkandi sjónskerpu. Yngri
hópar tæplega 0,1 að meðaltali og elsti hópur um 0,2.
Ekki er vitað hvort hjartasjúkdómurinn eða hækkað
kólesteról hefur áhrif á þessa þróun. Á þessari
stundu er ekki vitað hverjir tóku virkt lyf eða hverjir
fengu óvirkt lyf.
Höfundaskrá
Númer vísa til ágripa
Ásbjörn Sigfússon............................ 5
Einar Stefánsson .......................... 6,8
Eiríkur Þorgeirsson......................... 12
Friðbert Jónasson ......................... 4,8
Guðrún J. Guðmundsdóttir.................... 10
Haraldur Sigurðsson...................... 5,7
Harpa Hauksdóttir....................... 6,7,8
Hörður Þorleifsson .......................... 9
Ingimundur Gíslason...................... 6,8
Jens Þórisson ............................... 1
Jóhannes Kári Kristinsson.............. 5,6,8,9
Jón Sigurður Karlsson........................ 2
Kristján Þórðarson ......................... 12
Margrét Loftsdóttir........................ 3,4
Ólafur Grétar Guðmundsson.................... U
ÓIi Björn Hannesson ......................... 9
Sigurður Guðmundsson......................... 5
Vésteinn Jónsson ............................ 1
Þórður Sverrisson............................ 3
Örn Sveinsson ............................... 9