Læknablaðið - 15.10.1995, Page 54
744
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Umræða og fréttir
Frá Læknafélagi Reykjavíkur
Nýgerður kjarasamningur milli
TR og LR um sérfræðilæknishjálp
„Ágætu kollegar
Eins og flestum ykkar mun
kunnugt eru nú liðin tæp tvö ár
síðan Tryggingastofnun ríkisins
sagði upp samningi sínum við
Læknafélag Reykjavíkur vegna
sérfræðiþjónustu utan sjúkra-
húsa. Á þessum árum sem síðan
eru liðin hafa samningaumleit-
anir staðið með nokkrum hléum
nánast sleitulaust. Markmið
Heilbrigðisráðuneytisins og rík-
isstjórnarinnar var að spara 100
milljónir króna á sérfræðiþjón-
ustu á árinu 1995. Heilbrigðis-
ráðuneytið vildi koma á tilvís-
anakerfi en almenn andstaða
var meðal sérfræðinga gegn því
og hefur reglugerð um tilvísana-
kerfi nú verið frestað jafnlengi
og sá samningur gildir sem gerð-
ur var á milli aðila 15. ágúst 1995
eða til 31. desember 1995.
Meginatriði samningsins eru
þau helst að sérfræðingar gefa
afslátt ef heildareiningafjöldi
fyrir klínísk verk fer fram úr átta
milljón einingum árið 1995 og
verð á rannsóknum lækkar um
10% auk þess sem viðbótaraf-
sláttur kemur ef einingafjöldi
Sent þann 31. ágúst 1995:
Stjórn LÍ, Sérfræðingafélagi ís-
lenskra lækna, Félagi ungra lækna,
Aðildarfélögum LI erlendis.
fyrir rannsóknir fer fram úr
2.358.000 einingum á árinu.
Ein meginkrafa samninga-
nefndar TR sem í sitja jafnframt
fulltrúar Heilbrigðisráðuneytis
og Fjármálaráðuneytis hefur
verið krafan um takmarkað að-
gengi inn á samninginn. í fjöl-
miðlum hafa fyrr á þessu ári
fulltrúar ráðuneytisins eins og
svo oft áður rætt um að sérfræð-
ingar geti komið hvenær sem er
erlendis frá og byrjað að senda
reikninga á TR. Meðal sumra
kollega hefur einnig gætt ákveð-
innar óánægju með hið frjálsa
aðgengi á samning sérfræðinga
við TR á meðan ekki er unnt að
fjölga læknum í heilsugæslunni
og staðan á sjúkrahúsunum er
þannig að stefnt er að fækkun
lækna. Samninganefnd sérfræð-
inga hefur orðið að viðurkenna
það að í sumum tilvikum hafa
sérfræðingar hafið starfsemi án
þess að þekkja samninginn
nægilega vel og hafa jafnvel ráð-
herrar bent á slíkt þegar deilur
stóðu sem hæst. Sérfræðingar
hafa í samningaþófi síðustu ára
bent á að ákveðið jafnvægi virð-
ist komið á í sérfræðiþjónust-
unni þannig að takmarkað að-
gengi að samningnum sé óþarft
enda hefur kostnaður við þjón-
ustuna ekkert aukist síðastliðin
þrjú ár þrátt fyrir nokkra fjölg-
un sérfræðinga sem vinna eftir
samningnum. f>ar sem samið
var um heildarkvóta að þessu
sinni var samninganefnd TR
bent á það að hún tæki enga
áhættu þótt sleppt væri
ákvæðinu um sérstakt samþykki
inn á samninginn. Eftir sem
áður var þessi krafa skilyrði af
hálfu TR. Til þess að milda
kröfuna um samþykki TR var
sett inn ákvæðið um meðmæli
samráðsnefndar að frumkvæði
samninganefndar sérfræðinga
þar sem menn óttuðust að TR
hefði ekki skilning á því að
nauðsynleg endurnýjun ætti sér
stað í því liði lækna sem ynni
eftir samningnum. Ég hef litið
svo á að þetta ákvæði gæti ein-
ungis valdið einhverri töf inn á
samninginn þannig að allir sér-
fræðingar sem þess óskuðu yrðu
samþykktir.
Þar sem samráðsnefnd TR og
LR skipuð tveimur aðilum úr
hvorri samninganefnd hefur
ekki haft neinar sérstakar reglur
eða staðla til að fara eftir er hér
með óskað eftir því að forystu-
menn lækna og stjórnir lækna-
samtaka komi með ábendingar
eða hugmyndir að starfsreglum
fyrir samráðsnefnd. í mínum
huga ber samráðsnefnd fyrst og
fremst að kynna samninginn,
hvaða kröfur skulu gera til