Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1995, Síða 62

Læknablaðið - 15.10.1995, Síða 62
752 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 Heilsustofnun NLFÍ Hveragerði Undanfarin ár hafa verið 30 rúm á endurhæfin^ardeild Heilsustofnunar NLFI. Sjúk- lingar hafa verið í þessum rúm- um án endurgjalds. Hins vegar hafa þjónustugjöld verið greidd fyrir 130 rúm. Tekjur af þessum þjónustugjöldum hafa greitt um 20 af hundraði rekstrarkostnað- ar Heilsustofnunar. Á þessu ári hafa orðið tals- verðar launahækkanir hjá flest- um starfshópum heilbrigðis- stofnana. Heilsustofnun NLFÍ, sem er á föstum fjárlögum, hef- ur að óverulegu leyti fengið aukinn launakostnað bættan. Til að létta greiðsluerfið- leika, sem þetta hefur skapað, hefur heilbrigðisráðherra sam- þykkt fyrir sitt leyti, að Heilsu- stofnun NLFI taki þjónustu- gjöld fyrir öll rúm. Þessi breyt- ing tók gildi frá og með 1. septeniber 1995. Eftir þann tíma eru 160 rúm Heilsustofnunar gjaldskyld. (Fréttatilkynning) Rannsóknastofnun Jónasar Kristjánssonar læknis, Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði Sett hefur verið á fót rann- sóknastofnun í minningu Jónas- ar Kristjánssonar læknis og í til- efni af 40 ára afmæli Heilsu- stofnunar NLFÍ í Hveragerði. Tilgangur rannsóknastofnunar- innar er að veita þeim sem stunda vilja rannsóknir sem tengjast starfsemi Heilsustofn- unar tækifæri til dvalar- og vinnuaðstöðu í fallegu og frið- sælu umhverfi. Möguleiki er á að nýta þjálfunar- og meðferð- araðstöðu. Heilsustofnun NLFÍ er nátt- úrulækningastofnun sem byggir starf sitt á fræðslu um heilsu- samlegt líferni, líkamsþjálfun og mataræði. f heilsustofnun er auk þess rekin umfangsmikil endurhæfingarstarfsemi. Sérstök stjórn fjallar um væntanlegar umsóknir en gert er ráð fyrir að rannsóknartími geti orðið allt að tveir til þrír mánuðir. Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Björnsson yfir- læknir í síma 483-0300.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.